Fréttablaðið - 15.09.2006, Qupperneq 14
14 15. september 2006 FÖSTUDAGUR
LOFTHELGIN Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins getur Flugmála-
stjórn ekki tekið við öllu því hlut-
verki sem Bandaríkjamenn sinntu
við eftirlit með óþekktum flug-
vélum í lofthelgi Íslands vegna
þess að NATO myndi aldrei sam-
þykkja slíka tilhögun. Eftir að
Bandaríkjaher lokaði stjórnstöð
sem vann úr upplýsingum frá
frumratsjám í vor geta flugvélar
nú flogið um íslenska lofthelgi án
þess að sjást. Heimildir Frétta-
blaðsins herma að ýmsir innan
stjórnsýslunnar hafi miklar
áhyggjur af þessari stöðu mála.
Þær segja að það skorti sýn á
hvernig bregðast eigi við þessum
breytingum og að stjórnvöld þurfi
að fara í stefnumörkunarumræðu
um hvernig eigi að gæta og starf-
rækja öryggissvæði Keflavíkur.
Það sé ekki tækt að vera með
sýnilegar varnir og hernaðarvið-
veru á landinu einn daginn en
vakta ekki einu sinni alla flugum-
ferð með trúverðugum aðila sem
NATO samþykkir þann næsta.
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
segir að slíkur málatilbúnaður sé
á misskilningi byggður. „Ég hef
ekki verið að tala um að við
gætum tekið við allri þeirri starf-
semi sem hefur farið fram í
stjórnstöðinni. En við getum hins
vegar unnið úr merkjum frumrat-
sjáa til að geta fylgst með vélum
sem senda ekki auðkenni sitt með
ratsjám. Það er ekkert óalgengt
erlendis að flugstjórnarmiðstöðv-
ar séu að vinna úr slíkum merkj-
um þó að við höfum ekki haft þörf
fyrir það til þessa.“ Hann bætir
við að hlutverk Flugmálastofnun-
ar sé fyrst og fremst að sjá til
þess að flugumferðin gangi
örugglega fyrir sig og því þurfi
hún að vita af öllum flugvélum
sem eru í loftrýminu.
Samkvæmt Ólafi Erni Har-
aldssyni, forstjóra Ratsjárstofn-
unar Íslands, er allur búnaður til
þess að sinna eftirlitinu nú þegar
til staðar. Sá búnaður er að hans
sögn í eigu NATO og var skilinn
eftir í höndum Íslendinga þegar
varnarliðið lokaði stjórnstöð
sinni.
Halldór Árnason, skrifstofu-
stjóri í forsætisráðuneytinu, segir
að það sé ekki komið á hreint
hvort búnaðurinn sem notaður er
til eftirlitsins verði áfram hér á
landi. Hann segir þó að farið sé að
huga að því hvaða stofnun muni
taka við þessu eftirlitshlutverki
en ótímabært sé að tjá sig um
málið nú vegna þess að varnar-
viðræðurnar standi enn yfir.
„Sendinefndin er úti núna að
funda um varnarmálin og það er
mest að frétta þegar þeim við-
ræðum er að fullu lokið. Þó að
margt hafi verið rætt í þessum
efnum þá verður gengið frá öllum
málum í lokin. Það verður ekki
tekin ákvörðun um einn hluta
núna.“ - þsj
KÍNVERSKIR GÍRAFFAR Þessir gír-
affar eru í dýragarði í Kína og sendi
kínverska fréttastofan Xinhua frá sér
þessa mynd fyrr í vikunni í tilefni
þess að yngsti meðlimur fjölskyld-
unnar, gíraffinn Ping An, var orðinn
mánaðargamall. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Jakob Hrafnsson og
Stefán Bogi Sveinsson sækjast
eftir formennsku í Sambandi ungra
framsóknarmanna en sambands-
þing þess fer fram í húsakynnum
Framsóknarflokksins við Hverfis-
götu í Reykjavík um helgina. Jakob
er núverandi formaður sambands-
ins.
Ráðherrar Framsóknarflokksins
munu sitja fyrir svörum fundar-
manna í fyrramálið en afgreiðsla
ályktana og kosningar til stjórnar
fara fram á sunnudag. - bþs
Ungir framsóknarmenn:
Tveir vilja for-
mannsstólinn
JAKOB HRAFNS-
SON
EFNAHAGSMÁL Vöruskiptajöfnuður
Íslendinga var neikvæður um 11,3
milljarða króna í ágúst. Þetta
kemur fram í vefriti fjármála-
ráðuneytisins. Innflutningur virð-
ist vera að dragast saman frá því
sem verið hefur.
Útflutningsvirði var 16,6 millj-
arðar en innflutningurinn nam 28,3
milljörðum króna. Þetta er mikil
breyting frá því í júlí þegar vöru-
skiptahallinn var óvenju mikill.
Innflutningur á vörum vegna
framkvæmda dróst saman um
þriðjung milli mánaða. Þessi inn-
flutningur hefur að jafnaði verið
ríflega fjórðungur alls innflutn-
ings síðustu misseri.
Innflutningur á bílum dróst
nokkuð saman en hann hefur dreg-
ist saman um tæpan þriðjung á
ársgrundvelli. Eldsneytisinnflutn-
ingur dróst talsvert saman.
Innflutningsverðmæti varan-
legra neysluvara, til dæmis heim-
ilistækja, minnkaði lítillega en
nokkur aukning er í hálfvaranleg-
um neysluvörum, til dæmis fatn-
aði. Innflutningur á rekstrar- og
hrávörum, til dæmis sementi, er
hins vegar á fullri ferð og hefur
aukist milli mánaða.
Þorsteinn Þorgeirsson, skrif-
stofustjóri hjá fjármálaráðuneyt-
inu, segir að þessi þróun sé í sam-
ræmi við það sem búist hafi verið
við og telur að hún aukist á næst-
unni. - ghs
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR Innflutningur á
bílum hefur dregist nokkuð saman.
Vöruskiptajöfnuður neikvæður um 11,3 milljarða í ágúst:
Innflutningur dregst saman
ÞORGEIR PÁLSSON
Stjórnvöld
marki stefnu
Eftirlit með óþekktum flugvélum er öryggismál og
því getur Flugmálastjórn ekki sinnt því hlutverki.
Flugmálastjóri segir málið á misskilningi byggt.
STEFÁN BOGI
SVEINSSON
HERSTÖÐIN Á MIÐNESHEIÐI Enn liggur ekkert fyrir um hvort búnaður sem fylgist
með óþekktum flugvélum verður áfram hér á landi.
HALLDÓR
ÁRNASON
ÓLAFUR ÖRN
HARALDSSON
ÞORGEIR
PÁLSSON
SVEITARSTJÓRNARMÁL Nýráðinn
bæjarstjóri Bolungarvíkur,
Grímur Atlason, fær bónus fjölgi
íbúum staðarins á kjörtímabilinu.
Grímur hefur dágóðan tíma til að
ná takmarkinu en fari svo að
íbúar Bolungarvíkur verði fleiri
en 960 í desember á síðasta ári
kjörtímabilsins fær hann bónus
sem nemur einum mánaðarlaun-
um, eða um 600 þúsund krónur.
Grímur getur síðan unnið sér
inn aukabónus ef bæjarbúar
verða orðnir 985 á þessum tíma
og enn meiri bónus ef þeir verða
1.010 talsins. Íbúatala Bolungar-
víkur var 907 íbúar 1. júlí
síðastliðinn. - hs
Bæjarstjórinn í Bolungarvík:
Fær bónus fyrir
fjölgun íbúa
HEILSUGÆSLA Starfsfólk einkarek-
inna heilsugæslustöðva er ánægð-
ara í starfi en starfsfólk á ríkis-
reknum heilsugæslustöðvum og
jafnframt stoltara af starfi sínu
samkvæmt nýrri sænskri við-
horfsrannsókn sem sagt er frá á
heimasíðu Samtaka atvinnulífs-
ins.
Sænsku samtök atvinnulífs-
ins, SN, létu vinna rannsóknina
og benda þau á að heilbrigð sam-
keppni leiði til betri heilbrigðis-
þjónustu.
Í rannsókninni kemur fram að
rúmur helmingur starfsfólks á
einkareknum heilsugæslustöðv-
um segir vinnuumhverfi gott og
álag hæfilegt en rúmur helming-
ur starfsmanna hjá hinu opinbera
segir álag vera of mikið. Jafn-
framt kemur fram að starfsfólk
einkarekinna heilsugæslustöðva
hefur meiri áhrif á starfsum-
hverfi sitt og frumkvæði þeirra
nýtist betur.
Í Svíþjóð keppa bæði opinber-
ir aðilar og einkaaðilar um gerð
þjónustusamninga við heilbrigð-
isyfirvöld. Í skýrslu Samtaka
atvinnulífsins sem kom út í
sumar, Heilbrigður einkarekstur,
kemur fram að 50 af 120 heilsu-
gæslum í Stokkhólmi voru rekn-
ar af einkaaðilum árið 2002 með
samtals helming veltunnar í
heilsugæslu. Þá var tæpur þriðj-
ungur veltu allrar heilbrigðis-
þjónustu í höndum einkaaðila.
- sdg
Viðhorf sænskra starfsmanna til heilsugæslu kannað:
Meiri starfsánægja
í einkarekstri