Fréttablaðið - 15.09.2006, Qupperneq 26
[ ]Gefið tækifæri Margir lenda í því að fara á veitingastað og verða fyrir vonbrigðum með þjónustuna eða matinn. Hafið í huga að slæmir dagar finnast líka á veitingahúsum rétt eins og annars staðar. Gefið staðnum annað tækifæri en látið þar við sitja ef allt er á sömu lund.
Á heilsubar Heilsuhússins í
Lágmúla er boðið upp á rétti
í anda grunnreglnanna tíu, en
kynning á nýjum matseðli er
nýhafin.
Matreiðslumaðurinn Oscar
Umahro Cadogan mun í þessari
viku kynna nýjan matseðil á
heilsubar Heilsuhússins í Lág-
múla, þar sem boðið verður upp á
súpur, sykurlaus sætindi, rétti
dagsins „smoothies“ eða hristing
og ýmiss konar safa. Að hans sögn
var maturinn kynntur á nýafstað-
inni heilsusýningu í Egilshöll við
góðar undirtektir.
Umahro og Þorbjörg Hafsteins-
dóttir hafa um nokkurt skeið hald-
ið matreiðslunámskeið undir
merkjum grunnreglnanna tíu og
heilsubarinn, sem sprottinn er upp
úr þeirri heildarhugmynd, er liður
í nýrri matvörulínu og hollum
skyndibitamat sem boðið er upp á
í samvinnu við Heilsuhúsið.
„Hinar tíu grunnlegur byggja á
þeirri hugmynd að sameina megi
næringarríka og bragðgóða mats-
eld,“ útskýrir Umahro. „Lögð er
áhersla á notkuna hráefna eins og
fisks, heilkorns, grænmetis og
ávaxta og fleira, en unninni mat-
vöru á borð við smjör, sykur og
hvítt brauð er sleppt.“
Umahro segir að þar að auki sé
fólki kennt að elda á einfaldan og
skjótvirkan hátt mat sem geyma
má í nokkra daga. „Margir hafa
lítinn tíma til einhverra stórfram-
kvæmda í eldhúsinu og þá er hætt
við að einhver fljótútbúin eða til-
búin óhollusta verði fyrir valinu,“
útskýrir hann. „Grunnreglurnar
tíu hjálpa þeim að snúa blaðinu
við.“
Hægt er að kynna sér betur
þessar reglur með því að sækja
námskeið sem Umahro og Þor-
björg munu halda í Heilsuhúsinu,
bæði fyrir byrjendur og lengra
komna. Í gær hófst einmitt nám-
skeið þar sem kennt verður hvern-
ig búa megi til gómsæta, sykur-
lausa eftirrétti og verður það
endurtekið í nóvember. Auk þess
er alveg tilvalið að kynna sér nýja
matseðlinn á Heilsubar Heilsu-
hússins.
Sjá nánar www.10grunnreglur.
com
roald@frettabladid.is
Súpur og sykurlaus sætindi
Á námskeiðunum er fólki kennt að elda
hollan og góðan mat, sem má geyma
í nokkra daga, á skjótan og einfaldan
hátt.
Umahro verður með kynningu á nýjum matseðli á heilsubar Heilsuhússins. Hér sést hann við kennslu á einu námskeiðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kínakál er ákaflega A- og C-vítamín-
ríkt. Einnig er mikið af steinefnum í
kínakáli og er það því sérlega nær-
ingarríkt. Um kál gildir sú regla að
ystu blöðin eru hvað næringarríkust.
Græn blöð innihalda meira af stein-
efnum og vítamínum en þau sem
ljósari eru. Hafa skal þó í huga að við
suðu tapast nokkuð af vítamínum
og steinefnum. Kínakálið er betra að
nota hrátt þar sem það er ekki jafn
trefjaríkt og annað kál. Kínakálið er
þar að auki hitaeiningasnautt og má
því borða í tíma og ótíma án þess að
þess gæti á vigtinni.
(www.islenskt.is)
hráefnið }
Kínakál
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is