Fréttablaðið - 15.09.2006, Page 31
FÖSTUDAGUR 15. september 2006 7
Stefán Pálsson, sagnfræðingur
og friðarsinni, á barmmerkja-
vél sinni margt að þakka. Hún
hefur bæði hjálpað mörgu góðu
málefninu með merkjum sínum
og það sem meira er, hún
hefur hjálpað Stefáni að finna
ástina.
Árið 2001 lét Stefán gamlan draum
rætast þegar hann, í slagtogi við
félaga sinn, fékk sér barmmerkja-
vél. „Við vorum búnir að gæla við
þessa hugmynd lengi, sem sagt að
koma pólitískum áróðri og ýmsum
skilaboðum á framfæri með barm-
merkjum. Við slógum til og keypt-
um vél til barmmerkjagerðar á
netinu,“ segir Stefán.
Fjölmörg kvöld hafa farið í
merkjagerð fyrir ýmis samtök og
málefni, en eins og alþjóð veit er
Stefán ötull baráttumaður fyrir
friði. Vélin kom sér líka vel þegar
hann var í tilhugalífinu. „Barm-
merkjavélin spilaði stóran part í
því þegar ég náði í konuna mína.
Þá þurfti að gera merki fyrir ein-
hvern góðan málstað, mótmæla-
aðgerðir, friðargöngu eða eitthvað
slíkt. Þá þurfti að kalla til vinnu-
fúsar hendur til aðstoðar og það
gaf færi á óformlegum fyrstu
stefnumótum heima í stofu.“ segir
Stefán. „Sumar konur falla fyrir
sportbílum en aðrar fyrir verkleg-
um barmmerkjavélum.“
Til að rifja upp verstu kaup
Stefáns þarf að hverfa aftur til
bernsku hans. „Það var einn vet-
urinn þegar ég var 11 eða 12 ára
hér um bil. Þá beit ég það í mig að
sniðugt væri að læra á skauta,“
segir Stefán. „Mér tókst með
herkjum að öngla saman fyrir
skautapari en þetta var fyrir daga
skautahalla svo eina vonin til að
geta nýtt fjárfestinguna var tjörn-
in. En það var eins og við manninn
mælt, um leið og ég var búinn að
kaupa skautana fór að hlána.“
Það sem eftir lifði veturs festi
engan frekari ís á tjörnina og það
sama var uppi á teningnum næsta
vetur. „Þá sjaldan að tjörnin var
mannbær þá raðaðist það þannig
að ég komst ekki,“ segir Stefán,
sem neyddist til að selja skautana,
nánast ónotaða og fyrir slikk,
þegar hann var vaxinn upp úr
þeim. Stefán er enn ekki búinn að
ná sér að fullu og segir hann í gríni
að hann reki hlýnun jarðar til
þessara kaupa, miklu frekar en
gróðurhúsalofttegundanna. „Ég
veit samt ekki hvort ég fæ Gore til
að taka undir það með mér,“ segir
Stefán.
tryggvi@frettabladid.is
Barmmerkjavél ástarinnar
Stefán með hjálpartæki ástarinnar: Barmmerkjavél. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VALHÚSGÖGN Í ÁRMÚLA BJÓÐA STÓR-
GOTT VERÐ Á LOKADÖGUM ÚTSÖLU
SINNAR.
Útsölunni hjá Valhúsgögnum fer senn
að ljúka og nú er því rétti tíminn
að skella sér í búðir og gera góð
kaup. Meðal þess sem er á sérstöku
útsöluverði er vandaður slökunarsófi
úr leðri með skemlum á 119 þúsund
en sófinn kostar venjulega 149 þús-
und. Einnig má fá sófasett úr þykku
nautaleðri á 221 þúsund og áklætt
sófasett á 99 þúsund. Einnig er til
sölu fallegur tungusófi úr leðri á 79
þúsund og vandaðir borðstofustólar
eru á góðum afslætti.
Fyrir þá sem vilja svo kaupa sér
eitthvað fallegt utan útsölunnar voru
Valhúsgögn að fá nýja sendingu af
hvíldarstólum með skemlum.
Húsgögn á góðu verði
Síðustu dagar útsölunnar standa nú yfir
í Valhúsgögnum.
NÚ ERU ALLIR AÐ BYRJA Í SKÓLANUM ÞAR SEM FAR-
TÖLVA ER AÐ VERÐA JAFN NAUÐSYNLEG OG PENNA-
VESKI.
Í Svar tækni er hægt að fá Acer-fartölvur á skólatil-
boði. Meðal þeirra véla sem henta námsmönnum er
Acer Aspire 366 WLMi, enda er hún kölluð námshest-
urinn. Hún er með Intel Celeron M 1,5 Ghz-örgjörva,
512 MB DDR2-vinnsluminni, 80 GB hörðum disk,
með innbyggðum kortalesara, myndavél í skjá og
Windows XP home stýrikerfi.
Vélin kostar 89.900 krónur og henni fylgir þriggja ára
ábyrgð. Ef tölvan er keypt býðst viðskiptavini Lexmark
X2470 fjölnotatæki sem prentar, skannar, og ljósritar
á 8.900 krónur og að uppfæra stýrikerfið í Windows
XP PRO fyrir 9.900 krónur.
Svar tækni er til húsa í Síðumúla 37, en allar nánari upplýsingar er að finna á
www.svar.is.
Tilboð á Acer í Svari
Í Svari er hægt að fá
fjölmargar gerðir Acer-
fartölva.
SUSHI- OG FISKISÚPUDAGAR ERU Á MÁNUDÖGUM Í
SEPTEMBER Í SUSHI-SMIÐJUNNI AÐ GEIRSGÖTU 3.
Á mánudögum í september eru tilboðsdagar í
Sushi-smiðjunni. Þá er boðið upp á fiskisúpu fulla
af fersku sjávarfangi, hvítum fisk, laxi, rækjum,
krækling og kúfskel, brauð, hummus og fimm bita
sushibakka á 1.200 krónur.
Þar er líka tilboð sem felst í því að tíundi hver tíu
bita sushibakki er frír.
Ferskt sjávarfang og sushi
Sushibakki frá
Sushi-smiðjunni.
�����������
������������������������
����������������������������������������������
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-16
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
06