Fréttablaðið - 15.09.2006, Page 39
Magni um hina
keppendurna
www.bluelagoon.is
Líf
Lukas
„Hann virkar
kannski illa á
marga en hann
meinar ekkert illt
með því. Hann er
eiginlega bara eins
og litli bróðir minn. Einn ljúfasti
drengur sem ég hef hitt og mikill
vinur vina sinna. Ég gæti ekki verið
ánægðari með að hann hafi unnið
enda smellpassar hann í þetta
band.“
Sástu fljótlega að hann myndi sigra?
„Ég vissi að hann myndi vinna frá
fyrsta degi, held ég. Hann hefur
nefnilega þetta extra stjörnu „quality“
sem þarf.“
Toby
„Þegar ég byrjaði
í þessum þætti
hélt ég að hann
væri óþolandi
íþróttagaurinn.
Kom mér fyrir sjónir
sem hrokafullur brimbrettagaur. En
hann er svo langt frá því að vera það
og hefur vaxið hvað mest sem per-
sóna held ég. Í lokin var hann orðinn
gæinn sem sá um að hugga alla og
opna sig. Storm átti til dæmis svolít-
ið erfitt í lokin, var þunglynd og
svona. Hann sá alveg um hana og
stappaði í hana stálinu enda voru
allir að hjálpa hver öðrum. Þetta var
bara eins og að búa með systkinum
sínum.“
Dilana
„Ég sá um að
halda henni
gangandi en hún
er náttúrlega
snargeðveik. Eða
nei, nei, hún er ekkert svo klikkuð og
er líklega besti performinn sem var
þarna. Hún átti aldrei slæman dag á
meðan við hin fórum upp og niður
og gleymdum orðum og svona. Hún
er algjör snillingur og á eftir að vera
mjög stór. Eða þú veist, hún verður
náttúrlega alltaf dvergur en á annan
veg.“
„Toby djókaði nú alltaf með það
þegar hún sagðist vera eina stelpan
sem væri eftir. Þá leit hann á hana
og sagði þú ert ekkert stelpa og
hristi hausinn. Við kölluðum hana
lukkutröllið.“
Hún sannaði nú að hún væri kona
þegar hún hljóp allsber?
„Já, var það? Það var nú ekki mikið
að gerast þarna.“