Fréttablaðið - 15.09.2006, Side 56
15. september 2006 FÖSTUDAGUR16
„Á föstudegi flygi ég til Færeyja því
þangað hef ég aldrei komið, eyddi
kvöldinu í góðum félagsskap og sypi
öl,“ segir Bryndís Nielsen, kynning-
arfulltrúi hjá Íslenska dansflokknum,
sem undirbýr nú frumsýningu á
tveimur nýjum spennandi verkum í
október, „Flest um fátt“ og „Við erum
komin“.
„Laugardaginn nýtti ég til skoðun-
arferða um grænar hlíðar eyjanna og
kannaði þorp og bæi,“ heldur Bryndís
áfram og segir að hún færi síðan til
New York um kvöldið en þar bjó hún
um skeið.
„Þetta er einstaklega heillandi
borg, þar sem mikið er hægt að sjá
og gera,“ segir Bryndís. „Sjálf kysi
ég að snæða góðan kvöldmat á
veitingastaðnum Asia de Cuba sem
er í uppáhaldi hjá mér og færi á frum-
lega og skemmtilega danssýningu að
honum loknum. Sunnudeginum verði
ég í göngutúr um Central Park með
ilmandi kaffibolla og svo í bókabúð-
inni Barnes & Nobles við bókalestur,
en þar var ég oft klukkustundum
saman enda er búðin margra hæða
og með góðu kaffihúsi. Ekki skemmdi
fyrir að hafa draumprinsinn með í
för, en hann hef ég ekki enn fundið,“
bætir hún hlæjandi við. -rve
DRAUMAHELGIN
Á danssýningu í New York
BRYNDÍS GÆTI VEL HUGSAÐ SÉR AÐ EYÐA
SUNNUDEGI Í BARNES & NOBLES.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VISSIR ÞÚ...
– Mest lesið
Þetta gæti tekið tíma
Er fasteignin þín ekki í mest lesna fasteignablaðinu?
Þegar hægist um á fasteignamarkaði er mikilvægara en nokkru sinni að auglýsa
á besta staðnum. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 40% fleiri Íslendingar á
aldrinum 25–49 ára Allt-fasteignir en Fasteignablað Morgunblaðsins. Vertu viss
um að eignin þín nái athygli sem flestra!
*Samkvæmt könnun Gallup, maí 2006
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Dimmuborgir eru einstæðar hraun-
myndanir við austanvert Mývatn. Þær
eru í Yngra-Laxárhrauni og eru um
tveir kílómetrar í þvermál.
Helstu staðir í Dimmuborgum eru
Kirkjan, sem er stór hellir sem svipar
til kirkju að innan, Kindahellir, sem er
hellir þar sem kindur voru hafðar, og
Gatklettur, sem er gengið í gegnum.
Í Dimmuborgir kemur fjöldi ferða-
manna á ári hverju en þar hafa verið
lagðir fínir göngustígar. Einnig liggja
göngustígar frá Dimmuborgum og
upp á Hverfjall.
STAÐURINN: DIMMUBORGIR
að rokkarinn Tommy Lee heitir í
raun Thomas Lee Bass?
að hann er fæddur 3. október
1962 og er því að verða 44 ára
gamall?
að hann fæddist í Aþenu á Grikk-
landi?
að móðir hans, Vassilikki Papad-
imitriou, var kosin ungfrú Grikk-
land árið 1957?
að faðir hans var David Lee Thom-
as Bass, velskur hermaður?
að hann flutti til Bandaríkjanna
aðeins árs gamall?
að hann fékk fyrsta trommusettið
þegar hann var fjögurra ára?
að fyrsta alvöru hljómsveitin hans
hét Suite 19?
að hann er best þekktur sem
trommuleikarinn í hljómsveitinni
Mötley Crue?
að þegar hann gekk til liðs við
hljómsveitina breytti hann nafni
sínu í Tommy Lee?
að fyrsta plata Mötley Crue hét
Too fast for love og kom út árið
1981?
að Tommy Lee vakti á þessum
árum athygli fyrir val sitt á ást-
konum?
að hann giftist nektardansmeynni
Elaine Starchuk árið 1984?
að hann giftist leikkonunni Heath-
er Locklear árið 1986?
að hann skildi við hana árið 1993
eftir að upp komst um kynferðis-
legt samband hans við klám-
myndaleikkonuna Debi Diamond?
að hann giftist Pamelu Anderson
árið 1995?
að hann eignaðist með henni tvö
börn?
að þau skildu árið 1998?
að Tommy Lee var dæmdur í
fjögurra mánaða fangelsi fyrir að
sparka í klofið á Pamelu?
að hann ákvað að hætta í hljóm-
sveit sinni meðan hann dvaldi í
fangelsinu?
að hann hefur samt sem áður
spilað með hljómsveitinni af og til
síðustu ár?
að hann gaf út ævisögu árið 2004
sem heitir Tommyland?
að hann gerði raunveruleikaþátt
um háskólann í Nebraska sem
hann gekk í?
að hann hefur nú stofnað hljóm-
sveit ásamt þeim Jason Newsted,
Gilby Clarke og Lucas Rossi?