Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.09.2006, Qupperneq 65

Fréttablaðið - 15.09.2006, Qupperneq 65
FÖSTUDAGUR 15. september 2006 33 Nýjasta eintak Tímarits Máls og menningar er ekkert heims- ósómahefti enda fullt af góðum fréttum og fræðandi greinum úr ólíkum menningaráttum. Ástráður Eysteinsson skautar haglega um ljóðabækur síðasta árs og staðfestir í grein sinni að úrtölumenn sem ræða um andar- slitur ljóðsins eru á villigötum í svartsýni sinni. Í heftinu birtast ennfremur ljóð fjölmargra skálda en meðal höfunda að þessu sinni eru Baldur Óskarsson, Þórdís Björnsdóttir, Snæbjörn Brynjars- son og Haukur Már Helgason. Eins er bjartsýnisbragur á spjalli Þórhildar Ólafsdóttur við leikhúsmenn af yngri kynslóðinni þar sem niðurstaðan er sú að kraftur og djörfung leikhússins hafi búið til skilyrði fyrir ótak- markaða sköpun og kræsilegt hlaðborð fyrir áhorfendur í fram- tíðinni. Gísli Sigurðsson ritar líka upplýsandi grein um íslenska málpólitík þar sem hann vekur athygli á þeirri tilhneigingu hér- lendis að tala um „rétt og rangt mál“ fremur en „gott eða slæmt mál“ og bendir hann ennfremur á að lítið verði ráðið við tungumálið með opinber- um aðgerðum fremur en gang sólarinnar. Þetta er aðeins fyrri hluti greinar Gísla en fram- hald hennar mun birtast í næsta hefti tímarits- ins. Stefán Snævarr heim- spekiprófessor skrifar um hentistefnu í samhengi við þróun stjórnmála og kemur víða við í hressilegri grein sem ber undirtitilinn „Hugmynda- fræði handa Samfylkingunni (og kannski fleiri flokkum)?“ Af gagnrýni og umfjöllun má nefna grein Jónasar Sen um Sum- artónleika í Skálholti, dóma um Sólskinshest Stein- unnar Sigurðardóttur, Stefnuljós Hermanns Stefánssonar og Hrafninn eftir Vil- borgu Davíðsdóttur. Auk þess er fjallað um ævisögur Hannesar Hafsteins og Einars Olgeirssonar sem komu út á síðasta ári að ógleymdu bréfi Íslandsvinarins Daniel Willard Fiske sem birt er í heild sinni í heftinu ásamt inngangi og skýringum Þór- unnar Sigurðar- dóttur sagn- fræðings. - khh [ KVIKMYNDIR ] UMFJÖLLUN Kvikmyndin Börn er að mörgu leyti óvenjuleg mynd þar sem aðdrag- andi hennar og vinnsla á sér fá for- dæmi hérlendis. Sagan varð til í kringum persónur sem aðalleikarar myndarinnar, félagar úr leikhópn- um Vesturporti, þróuðu í félagi við leikstjórann Ragnar Bragason, en myndin er sjálfstæður hluti stærra verks því systurmynd hennar, For- eldrar, verður sýnd í byrjun næsta árs. Handritið hefur oftar en ekki verið akkilesarhæll í íslenskri kvik- myndagerð en þessi mynd líður ekki fyrir slíkt. Sögur aðalpersón- anna þriggja, sem tengjast að lokum, standa fyrir sínu hver um sig og mynda saman sterka og eftir- minnilega heild. Þó svo að áherslan sé fyrst og fremst á persónusköpun og aðstæður er framvindan áhuga- verð þó hún sé á köflum fyrirsjáan- leg. Sögurnar fjalla allar um sam- skipti barna og foreldra, einkum mæðra og sona. Í fjölbýlishúsi býr Karítas, einstæð móðir með fjögur börn (Nína Dögg Filippusdóttir) og reynir að láta enda ná saman, á neðri hæðinni býr misþroska maður með móður sinni (Ólafur Darri Ólafsson og Margrét Helga Jóhann- esdóttir) en úti í bæ gengur hand- rukkarinn og misindismaðurinn Gæi (Gísli Örn Garðarsson) ber- serksgang í óþökk móður sinnar (Hönnu Maríu Karlsdóttur) og bróð- ur (einnig leiknum af Gísla Erni). Fórnfýsi mæðranna og fjarvera feðranna er leiðarstef myndarinn- ar, aðalpersónurnar glíma við félagslega erfiðar aðstæður og er myndin á köflum grimm stúdía á von- og skilningsleysi sem fólk mætir hvert hjá öðru. Myndin er stórvel leikin og virð- ing fyrir efninu og persónunum skilar sér á tjaldið. Með fullri virð- ingu fyrir atvinnumönnum og reyndu fólki tekst hinum unga leik- ara Andra Snæ Helgasyni á köflum að stela senunni í hlutverki ungl- ingspiltsins Guðmundar en sam- leikur hans og Nínu Daggar var hrífandi. Ólafur Darri var að sama skapi sympatískur og grátlega fyndinn í sínu hlutverki. Heildarútlit myndarinnar hæfir efninu vel, hér er ekkert „svart- hvítt listakjaftæði“ á ferðinni og hún líður síst fyrir meint vanefni aðstandendanna. Nostur í eftir- vinnslu hennar er til fyrirmyndar og hljóð og klipping unnin af fag- mennsku. Ef tína ætti til nokkuð neikvætt um þessa mynd þá fannst mér tón- listin stundum of yfirdrifin og dramatísk og endirinn alltof lukku- legur miðað við söguna sjálfa. Oft detta íslenskir áhorfendur í þá gryfju að mæla íslenskar mynd- ir með annarri stiku en erlendar en þessi mynd þarf engra slíkra fyrir- greiðslna með, hún stenst fyllilega samanburð við það besta sem berst hingað frá útlöndum og ég bíð spennt eftir Foreldrum. Kristrún Heiða Hauksdóttir BÖRN LEIKSTJÓRI: RAGNAR BRAGASON AÐALHLUTVERK: NÍNA DÖGG FILIPPUS- DÓTTIR, GÍSLI ÖRN GARÐARSSON, ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON, ANDRI SNÆR HELGASON, MARGRÉT HELGA JÓHANNES- DÓTTIR, SIGURÐUR SKÚLASON OG HANNA MARÍA KARLSDÓTTIR Niðurstaða: Fyrirtaks mynd með hæfilegri blöndu af ádeilu og húmor, vel leikin og virðingarverð samfélagsrýni um aðstæður sem margir kannast við en flestir neita að þekkja. Fórnfýsi mæðra og fjarvera feðraEintak með bjartsýnisbrag NÝTT HEFTI INN UM LÚGUR LANDS- MANNA Silja Aðal- steinsdóttir ritstýrir Tímariti Máls og menningar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.