Fréttablaðið - 15.09.2006, Síða 78

Fréttablaðið - 15.09.2006, Síða 78
 15. september 2006 FÖSTUDAGUR46 HRÓSIÐ FÆR … Mikill viðbúnaður er vegna komu Magna Ásgeirssonar til landsins á sunnudaginn. Eins og sönnum afreksmanni sæmir verður Magni að sjálfsögðu boðinn velkominn í Smáralindinni en það verður annaðhvort forsætisráðherrann Geir H. Haarde eða utanríkis- ráðherrann Valgerður Sverrisdóttir sem tekur á móti Magna og þakkar honum vel unnin störf í þágu þjóðarinnar. Rjóminn af íslenskum poppurum ætlar enn fremur að heiðra Magna með nærveru sinni enda hefur söngvarinn frá Borgarfirði eystri vakið áhuga útlendinga á íslenskri popp- tónlist. Hljómsveit Magna, Á móti Sól, hefur að sjálfsögðu hug á að nýta sér þessa frægð söngvar- ans og er fyrirhugað tónleikaferða- lag í kringum landið. „Það verða stórtónleikar á Broadway 30. sept- ember, einir um daginn fyrir alla en svo stórdansleikur um kvöld- ið,“ segir Heimir og viður- kennir að hljómsveitin sé þegar farin að æfa lögin sem Magni söng í þættinum. „Sum þeirra höfum við reyndar spilað áður en önnur erum við að „pikka“ upp,“ útskýrir Heimir en segist ekki hafa hugmynd um hvert fram- haldið verði þegar rúntinum lýkur 21.október. „Við vitum ekkert hvort hann tekur eitthvað af þessum tilboð- um eða hvernig framhaldið verð- ur hjá honum,“ bætir Heim- ir við. - fgg 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT: 2 eldhúsáhald 6 hvað 8 þangað til 9 hljóma 11 samtök 12 leynir 14 rífa 16 grískur bókstafur 17 lágvær niður 18 kúgun 20 guð 21 steintegund. LÓÐRÉTT: 1 ofneysla 3 tveir eins 4 krappur 5 flýti 7 heimsálfa 10 fæða 13 suss 15 hástétt 16 ot 19 gangþófi. LAUSN: LÁRÉTT: 2 ausa, 6 ha, 8 uns, 9 óma, 11 aa, 12 felur, 14 raspa, 16 pí, 17 suð, 18 oki, 20 ra, 21 talk. LÓÐRÉTT: 1 óhóf, 3 uu, 4 snarpur, 5 asa, 7 ameríka, 10 ala, 13 uss, 15 aðal, 16 pot, 19 il. Vasa línan Fer vel í veski Fiskbúðin Hafberg vantar öflugan starfsmann til að sjá um undirbúning fiskrétta og afgreiðslu í búðinni. Viðkomandi þarf að vera samviskusamur, góður í mannlegum samskiptum, sjálfstæður og vandvirkur. Góð laun i boði, allar nánari uppl, veitir Geir s. 820-3413. Fréttamaðurinn góðkunni, Logi Bergmann Eiðsson, er með mörg járn í eldinum. Auk þess að starfa sem fréttamaður er Logi aðalmað- urinn á bak við spurningaþáttinn Meistarann sem sýndur var á Stöð 2 síðasta vetur. Meistarinn verður aftur á dagskrá nú í vetur en Logi vinnur auk þess að útgáfu spurn- ingaspils, sem samið verður út frá þáttunum. „Það eru náttúrlega engin jól nema það sé nýtt spurningaspil,“ segir Logi, sem settist niður og bjó til nýtt spil í samvinnu við fyrir- tækið Veruleikann. „Við erum mjög trúir þáttunum við gerð spilsins en þar eru til dæmis bjöllu- spurningar og valflokkaspurning- ar, auk þess sem hægt er að leggja undir og velja spurningaflokk fyrir andstæðingana. Ég er búinn að prófa spilið og það er alveg magnað,“ segir Logi og bendir á að spilið sé mjög spennandi því það sé allt opið í því alveg þangað til í rest- ina. „Þá er hægt að fá meistaraspurningu, sem getur aukið mikið á spennuna, alveg eins og í þáttunum. Öll fjöl- skyldan getur spilað saman enda eru spurning- arnar töluvert léttari en í þættinum þannig að allir ættu að geta svarað einhverju. Þetta er því alveg tilvalin möndlu- gjöf.“ Sjálfur samdi Logi mikið af spurningun- um, rétt eins og hann mun gera fyrir nýju þáttaröðina, og fékk í lið með sér menn sem eru vanir að semja spurningar. „Við settum þetta þannig upp að margir geti spilað í einu þannig að það er mik- ill leikur í þessu,“ segir spyrillinn og fréttamaður- inn, Logi Bergmann Eiðsson. sigridurh@frettabladid.is LOGI BERGMANN EIÐSSON: MEISTARASPIL Í MÖNDLUGJÖF Semur sjálfur spurningar fyrir Meistarann LOGI BERGMANN Segir að öll fjölskyldan geti spilað nýja Meistaraspilið, sem kemur út fyrir jólin. Sjálfur semur Logi hluta spurn- inganna. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR SIGURVEGARINN Jónas Örn Helgason sigraði í fyrstu þátta- röð Meistarans, en að sögn Loga verða spurningarnar í spil- inu ekki eins erfiðar og í þáttunum. Konunglegar móttökur Magna á sunnudaginn GEIR H. HAAR- DE Tekur vænt- anlega á móti Magna þegar hann lendir á sunnudaginn. VALGERÐUR SVERR- ISDÓTTIR Gæti orðið þess heiðurs aðnjótandi að bjóða poppstjörnu Íslands velkomin heim. MAGNI ÁSGEIRSSON Snýr aftur heim á sunnudag í veglega athöfn í Smáralind. Fer á tónleikaferð um landið með Á móti sól og spilar lögin úr Rock Star. ...Einar Magnús Magnússon og Umferðarstofa fyrir átakið Stopp sem á að vekja fólk til umhugsunar um glæfraakstur og afleiðingar hans. Söngvarinn ástsæli, Raggi Bjarna, tekur á næstunni upp jólaplötu með Gunnari Þórðarsyni sem mun koma út á næsta ári. Á plötunni verða eingöngu ný íslensk jólalög. Hefur Gunnar þegar samið sjö lög fyrir plötuna og útvarpsmaðurinn Þorgeir Ást- valdsson eitt. Gunnar hefur verið önnum kafinn að und- anförnu við að ljúka við plötu með söngvaranum Óskari Péturssyni þar sem hann syngur lög eftir Gunnar sjálfan. Eru níu þeirra ný af nálinni og fimm gömul. Eftir það mun hann snúa sér að upptökum á jólaplöt- unni. Raggi Bjarna segist vera spenntur að syngja inn á plöt- una, en leggur áherslu á að verkefnið sé komið mjög skammt á veg ennþá. „Það verður ábyggilega mjög gaman að vinna með Gunn- ari,“ segir hann. Raggi hefur ekki gert mikið af því að syngja jólalög í gegnum tíðina. Hann átti tvö lög á jólaplötu sem kom út 1981, þar á meðal hið vinsæla Þegar líða fer að jólum. - fb Raggi Bjarna tekur upp jólaplötu GUNNAR ÞÓRÐARSON Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórð- arson er önnum kafinn um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MEÐ JÓLASVEINUM Raggi Bjarna tekur við gullplötu á Broadway úr höndum tveggja jólasveina. Raggi ætlar að taka upp jóla- plötu á næstunni með hjálp Gunna Þórðar. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. FRÉTTIR AF FÓLKI Í nógu er að snúast hjá þeim fóstbræðrum Kormáki Geirharðs- syni og Skildi Sigurjónssyni. Þeir eru að fara að opna veitingahús ásamt Skagabræðrunum Arnari og Bjarka Gunnlaugssyni í Þingholts- strætinu en um er að ræða asískan „fusion” stað. Ekki er nóg með að þeir félagar ætli að hastla sér völl í veitingahúsageiranum því þeir eru að taka upp úr kössunum fyrir nýja herrafataverslun sem opnuð verður eftir mánuð í Kjörgarði á Laugaveginum. Um er að ræða verslun fyrir „séntilmenni” eins og þeir hafa orðað það en Karl Th. Birg- isson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, er þeim innan hand- ar í því verkefni. Eyjamaðurinn Hermann Hreiðars- son þykir góður fulltrúi lands og þjóðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hermann leikur sem kunnugt er með Lundúnaliðinu Charlton og er vel liðinn meðal leikmanna og annarra hjá klúbbn- um. Eins og sönnum Íslendingi sæmir notar okkar maður hvert tækifæri til að kynna Ísland fyrir Charlton-mönnum, hvort sem um er að ræða íslenskan mat eða íslenska tónlist. Hljómsveitin Jeff Who? er í sérstöku uppáhaldi hjá Hermanni um þessar mundir og hafa liðsfélagar hans fyrir vikið kynnst tónlist hljómsveit- arinnar ágætlega. Ekki fylgir þó sögunni hvort hið vinsæla lag Barfly verður spilað á leikjum liðsins, eins og hjá sumum íslenskum íþróttafélögum. Frétt Fréttablaðsins í vikunni um að Nylonflokkurinn hafi sungið í gyðingafermingu í London vakti þó nokkra athygli. Ekki síst þar sem haft var eftir Ölmu Guðmundsdótt- ur að þær hefðu haft mjög gaman af þessu uppátæki, það væri mun persónulegra en tónleikar og þær væru meira en til í að endurtaka leikinn. Fyrir vikið má líklegt telja að ófáar íslenskar húsmæður sjái sér leik á borði og sláist um að bóka Nylon í ferming- arveislur næsta vor. - fgg/hdm 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.