Fréttablaðið - 23.09.2006, Síða 8
8 23. september 2006 LAUGARDAGUR
DANMÖRK, AP Fjórir menn voru
handteknir í Noregi á þriðjudaginn,
grunaðir um að hafa staðið að skot-
árás á samkunduhús gyðinga í Ósló
um síðustu helgi. Þeir eru einnig
grunaðir um að hafa skipulagt
sprengjuárásir á bandaríska og
ísraelska sendiráðið í Ósló. Frá
þessu var skýrt í norskum fjölmiðl-
um í gær.
Ákærur á hendur mönnunum
eru að hluta byggðar á upptökum
úr hlerunarbúnaði, sem hafði verið
komið fyrir í bifreið eins þeirra.
Samkvæmt fréttaflutningi norskra
fjölmiðla heyrðust mennirnir þar
ræða sín á milli um sprengjuárásir
á sendiráðin.
Einnig eru þeir sagðir hafa
talað um að höggva höfuðið af Mir-
iam Shomrat, sendiherra Ísraels í
Noregi.
Hættan af hryðjuverkum hefur
verið mikið til umræðu á Norður-
löndunum nú í vikunni.
Á fimmtudaginn fullyrti leyni-
þjónusta dönsku lögreglunnar, PET,
að hættan af íslömskum hryðju-
verkamönnum í Evrópu stafaði
helst af litlum og einangruðum
hópum, en síður af stærri og þekkt-
ari samtökum á borð við Al Kaída.
Þetta kom fram í ársskýrslu
PET, þar sem segir enn fremur að
hættan á slíkum hryðjuverkum sé
meiri nú en áður, meðal annars í
Danmörku, og þá beinlínis vegna
þátttöku Dana í hernaði í Írak og
Afganistan. Einnig hafi birting
skopmyndanna af Múhameð spá-
manni í Jótlandspóstinum gert sitt
til þess að auka hættuna.
Danska leyniþjónustan segist
hafa á þessu ári fengið veður af
meira en tvö hundruð hótunum, sem
bárust í tengslum við skopmyndirn-
ar af Múhameð. Ekki er þó tekið
fram hvort þær hótanir hafi allar
komið frá herskáum múslimum eða
hvort sumar þeirra hafi beinst að
múslimum sem búa í Danmörku.
Á fimmtudaginn hittust einnig í
Finnlandi dómsmála- og innanríkis-
ráðherrar Evrópusambandsríkj-
anna til þess að ræða aðferðir til að
berjast gegn bæði hryðjuverkum
og skipulagðri glæpastarfsemi.
Þeir komust að þeirri niðurstöðu
að nauðsynlegt væri að efla sam-
starf ríkjanna á þessu sviði til þess
að ná betri árangri.
gudsteinn@frettabladid.is
Fjórir grunaðir
um hryðjuverk
Fjórir eru grunaðir um að hafa skipulagt sprengju-
árásir á sendiráð Bandaríkjanna og Ísraels í Ósló.
Danir segja meiri hættu stafa af litlum hryðjuverka-
hópum en þekktari samtökum á borð við Al Kaída.
VIÐBRAGÐSÆFING Á KASTRUP-FLUGVELLI Danskar og sænskar varðsveitir efndu til
æfinga á Kastrup-flugvelli á miðvikudaginn þar sem líkt var eftir árás hryðjuverka-
manna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1. Forseti hvaða lands kallaði
George W. Bush djöful í manns-
mynd?
2. Hvaða knattspyrnufélag
sagði Ásgeiri Elíassyni upp
störfum?
3. Hvaða millinafni fékk Benja-
mín Árnason loksins leyfi fyrir?
SVÖRIN ERU Á BLS. 58
vaxtaauki!
10%
A
RG
U
S
/
06
-0
47
2
Kynntu þér málið á spron.is
VEISTU SVARIÐ?
SAMGÖNGUR Landsflug hættir öllu
áætlunarflugi milli Vestmanna-
eyja og Reykjavíkur frá og með
mánudeginum 25. september.
Ákvörðunin er til komin vegna
þess að flugleiðin hefur ekki stað-
ist væntingar um arðsemiskröfur.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Landsflugi. Ekkert annað flug-
félag flýgur þessa leið.
Bæjarstjóri Vestmannaeyja
segir mikilvægt að flugsamgöng-
um milli Reykjavíkur og Vest-
mannaeyja sé haldið uppi. Hann
vill að flugleiðin verði boðin út
sem allra fyrst.
„Þetta er ekkert sem kemur
okkur á óvart, við höfum átt von á
því í allt of langan tíma að þessi
staða komi upp,“ segir Elliði
Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum. „Við lítum svo á að
vandamál gærdagsins séu orðin
verkefni dagsins í dag fyrir ríkið.
Samgöngur eru á forræði ríkisins
og við óskum eftir viðbrögðum
þaðan um þetta mál.“
Hann segist hafa rætt við full-
trúa samgönguráðuneytisins um
þetta og eiga ekki von á öðru en að
málið verði tekið upp á
ríkisstjórnarfundi í næstu viku.
„Krafa okkar er og hefur verið
ófrávíkjanleg, að flugleiðin milli
Vestmannaeyja og Reykjavíkur
verði boðin út.“ - sþs
Landsflug hættir á mánudaginn öllu áætlunarflugi í Vestmannaeyjum:
Bæjarstjórinn vill að ríkið bjóði flugið út
FLUGVÉL LANDSFLUGS Flugleiðin milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur þótti ekki nógu
arðbær og því ákváðu forsvarsmenn Landsflugs að leggja hana af, að því er kemur
fram í tilkynningu frá félaginu.
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Ný launakönnun VR er komin út. Kynntu þér niðurstöður
hennar á www.vr.is og berðu mánaðarlaun þín saman
við kjör annarra félagsmanna.
Hvar stendur þú
í launastiganum?
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
�������������
��������������������������������
15% september
afsláttur til 30 september
Tréstigar fyrir heimilið þitt,
sérsmíðaðir eftir máli án aukakostnaðar.