Fréttablaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 51
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { skrifstofan } ■■■■ 9
,,Þetta er til þess að fólk geti sam-
tvinnað að vera á skrifstofu og
búið einnig til kynningar- og
auglýsingaefni fyrir fjölmiðla og
prentsmiðjur, með öðrum orðum,
að víkka sjóndeildarhringinn hjá
skrifstofufólki,“ útskýrir Eva Birg-
itta Eyþórsdóttir, skrifstofustjóri
NTV. Aðspurð hvort því sé um að
ræða hálfgert fjölmiðlafulltrúanám
segir Eva að það sé ekki fjarri lagi.
,,Lokaverkefnið er einmitt að búa til
bækling frá grunni sem hægt er að
skila beint til prentsmiðjunnar.“
Skrifstofunám og hönnun hefur
nánast verið kennt í NTV frá upp-
hafi skólans og segir Eva að vin-
sældir námsins hafi aukist jafnt og
þétt. ,,Þeir sem sækja í þetta nám
eru flestir frá fyrirtækjum en síðan
eru einnig margir sem hafa áhuga
á grafískri hönnun og öðru slíku.
Auglýsingatæknin, hönnunin og
skrifstofunámið hafa svolítið verið
að tvinnast saman, en ástæðan fyrir
því að námið heitir ekki grafísk
hönnun er sú að á námskeiðinu er
ekki verið að kenna skapandi hugs-
un þó svo að hún komi auðvitað inn
í, aðalmálið er kennslan í að koma
hugmyndum á blað og vinna.“
Þegar Eva er spurð um ávinn-
inginn af slíku námi svarar hún því
að hann sé umtalsverður. ,,Nem-
endur geta sýnt fram á að hafa
lokið þessu námi og slíkt styrkir þá
á vinnumarkaðnum. Nemendurn-
ir eru líka komnir með mun betri
grunn sem nýtist þeim við venjuleg
skrifstofustörf. Ávinningur er einn-
ig augljós fyrir minni fyrirtæki sem
borga að öllu jöfnu háar fjárhæðir
fyrir hluti eins og gerð kynning-
arefnis, auglýsinga og þess háttar.
Þessi fyrirtæki geta þá nýtt sér sinn
eigin starfsmann við þessa gerð
ásamt því að sá starfsmaður þekkir
einnig ferlið hjá prentmiðlum og öll
samskipti þar á milli.“ - sha
Aðalmálið að koma hug-
myndum á blað og vinna
Skrifstofunám og hönnun er ein af spennandi brautum NTV, Nýja tölvu- og viðskipta-
skólans. Fyrir utan hefðbundið skrifstofunám kynnast nemendur einnig öðrum þáttum
í kringum auglýsinga- og kynningamiðlun.
Nemendur í skrifstofunámi og hönnun hjá NTV, greinilega í miklu stuði.
Ljósritunarvélin eins og við þekkj-
um hana er hugarfóstur Chesters
Carlson. Carlson vann á einka-
leyfisstofu og þurfti oft að gera
afrit af mikilvægum skjölum. Þar
sem hann var gigtveikur var það
erfitt og kvalarfullt ferli og hann
freistaðist til að nýta uppgötvun
búlgarska eðlisfræðingsins Georgis
Nadjakov til að þróa ljósafritunar-
tækni í eldhúsinu sínu eftir vinnu.
Tilgangurinn var að geta gert mörg
afrit með lítilli fyrirhöfn.
Árið 1938 sótti hann um einka-
leyfi á uppfinningu sinni en þar
sem sjáflblekandi pappír og afritun-
arprentvélar voru tíðar fannst fáum
taka því að búa til rafmagnstæki
til að vinna sama verk. Carlson var
því hafnað af yfir 20 fyrirtækjum
sem hann bauð uppfinninguna til
kaups. Meðal þeirra fyrirtækja voru
IBM og General Electrics sem höfðu
hvorugt trú á því að markaður væri
fyrir ljósritunarvélar.
Árið 1944 var það svo Battelle
Memorial stofnunin sem hafði
samband við Carlson og á næstu
fimm árum var aðferðin þróuð
áfram. Lítið fyrirtæki að nafni
Haloid hóf svo samstarf við Batt-
elle um framleiðslu og markaðs-
setningu ljósafritunarvélanna sem
fengu nafnið Xerox, dregið af orð-
inu xerography sem er gríska og
þýðir þurrskrift.
Ljósritunarvélin verður til
SAGA HLUTANNA
Ljósritunarvélar eru frekar nýjar af nálinni
en hugmyndin er rétt um 80 ára gömul.
Þær eiga talsvert meira fylgi að fagna í dag
en þegar þær voru fyrst settar á markað.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Starf Ólafs Hjálmarssonar verkfræð-
ings snýr meðal annars að hljóðvist
og hvaða áhrif hún hefur á líðan
starfsmanns og heilsufar.
„Vinnuvistfræði er íslenska þýð-
ingin á orðinu ergonomics og snýst
um samspil umhverfis og manns, til
dæmis áhrif umhverfis á afköst og
líðan,“ segir Ólafur og bætir við að
störf hans snúist í víðum skilningi
um vinnuvistfræði út frá hljóðfræði.
Önnur svið væru til dæmis öryggis-
mál, vinnustellingar, aðbúnaður og
félags- og sálfræðiþættir.
„Þetta þarf svo allt að verka
saman. Það er mjög ánægjulegt að
fyrirtæki eru að fá betur og betur
menntað fólk á þessu sviði og við
erum að reyna að hvetja háskólana
til að auka námsframboð í vinnu-
vistfræðum. Það eru verulegir
hagsmunir í húfi fyrir þjóðfélagið í
formi fráveru starfsmanna og veik-
indadaga. Upphæðirnar sem tapast
á hverju ári eru svimandi háar.“
Ólafur segir mikilvægt að gefa
hljóðhönnun gaum strax í upphafi
hönnunar húsa. „Það er mikilvægt
að skoða starfsemina sem á að vera
í húsinu og tryggja að það sé hæfi-
lega hljómmikið, hvorki of né van.
Það er stórt verkefni að tryggja
hæfilegt hljóð og líka að hávaði frá
tækjabúnaði og umhverfi sé ekki of
mikill.
Þegar best lætur komum við
snemma að og náum að tala við
aðra hönnuði um útfærsluna,“ segir
Ólafur og bætir við að það gangi
hægt hér á landi að koma þeim
starfsháttum við en víða í Evrópu
séu það venjubundin vinnubrögð.
„Sumu, eins og varaaflstöð inni
í húsi, er hægt að bregðast við ef
maður veit af því strax í upphafi.
Það getur hins vegar verið þungt
og dýrt eftir á. Stundum er samt
hægt að gera góða hluti á tiltölu-
lega ódýran hátt. Og við reynum að
gera það í samstarfi við arkitektinn
því við erum að glíma við sjáanlegt
yfirborð.“
Kostnaður við hljóðhönnun
nemur 1-1,5 prósentum af bygginga-
kostnaði ef hún er unnin með ann-
arri hönnun hússins á móti til dæmis
5-15 prósenta kostnaði sem fer í
útlitsmótun. Kostnaðurinn kemur
því mörgum þægilega á óvart.
Eitt af því sem skoðað er á stór-
um vinnustöðum er hvort vinnu-
rými eigi að vera afmörkuð eða
opin. „Í minni ráðgjöf mæli ég með
því að bjóða upp á báða möguleika.
Sumum fellur illa að vera í opnu
rými og er illa við truflun. Aðrir
vilja hafa ys og þys í kringum sig.
Opin rými eru lifandi og skemmtileg
og það er ákveðinn kraftur í þeim,
en ókosturinn er hljóðvistin þar.
Microsoft gerði einu sinni tilraun
þar sem allir forritarar voru settir í
opið rými í stað lokaðra og villum
snarfjölgaði. Í símaþjónustuverum
henta opin rými hins vegar vel.
Þá er auðvelt fyrir starfsmenn að
spyrja hina. En lykilatriði er að ef
vinnurýmið er opið séu lokuð rými
fyrir trúnaðarsamtöl og erfið verk-
efni,“ segir Ólafur að lokum.
einareli@frettabladid.is
Hæfilegur hljómur tryggður
Hljóðhönnun snýst um að stjórna því hversu hljómmikið húsnæði er.
Ólafur segir opin og lokuð vinnurými henta misvel eftir því hvers konar störf eru unnin í rýminu. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN