Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.09.2006, Qupperneq 76

Fréttablaðið - 23.09.2006, Qupperneq 76
 23. september 2006 LAUGARDAGUR40 Hvað varstu að gera í New York? Ég var að versla fyrir næsta vor og sumar. Merkin sem við erum með í búðinni eru mestmegnis keypt í París en við ákváðum að fara til New York til að sjá muninn á tísku- vikunum þar og í París. Munurinn er gríðarlegur, París er bara hörð vinna vinna vinna á meðan í New York snýst allt um partí og frægt fólk. Vinnan er aukatriði þar. Mér fannst hvort tveggja mjög fínt, gott væri ef þeim yrði blandað saman. Það er svolítið skrítið að vera allt í einu hinum megin við borðið sem kaupandi ekki hönnuður, en mér líkaði það mjög vel. Hvenær fæddist sú hugmynd að opna búð? Sko, Jón var búinn að ákveða að opna búð og var að biðja mig um að kíka á eitthvað nýtt merki fyrir sig þegar ég bjó úti í Danmörku. Jóni finnst mjög gaman að opna búðir og held ég að hann vilji helst opna búð í hverri viku. Haha, að minnsta kosti varð ég alveg óð og tróð mér eigin- lega inn í þetta verkefni með honum og sagði bara að við yrðum að gera þá flottustu búð á Íslandi. Við erum bæði það hvatvís að við kýldum bara á þetta, ég flutti heim og nú er hug- myndin að verða að veruleika. Hvernig eru merkin sem þið eruð með? Við erum með ekta fallega hönnun. Ég valdi bara úr þá hönnuði sem ég er búin að fylgjast með vel og lengi sem eru að verða stórir núna. Aðal- grunnurinn er fatnaður frá Ann Demeulemeester. Flíkurnar hennar eru rosalega vandaðar og tímalaus- ar sem mér finnst vera mikill kost- ur við hágæða hönnun. Þú átt að geta keypt þér rándýra vöru sem endist næstu 10-20 árin án þess að skemmast. Hin merkin okkar spila svolítið í kringum Demeulemeester en við erum með 26 merki og þá eru okkar eigin merki, Aftur og Dead, talin með. Flest merkin okkar spila svolítið með myndlist inn í hönnunina sjálfa og ég heillast sjálf mjög af því þegar hönnuðir gera flíkur án þess að stjórnast af hinum týpísku tísku- straumum. Af hverju þetta sérkennilega nafn Liborius á búðinni? Sko, Jón Sæmundur fór að rekja ættir sínar aftur og endaði sú rann- sóknarvinna í Prússlandi þar sem ættin sem hann tengdist bar einmitt eftirnafnið Liborius. Hann vill núna bara vera kallaður Liborius greifi. Hver er verkaskiptingin? Ég sé um búðina, kaupi fötin og vel hönnuðina. Jón hefur séð um allt útlit inni í búðinni og búinn að vera á haus að smíða allar innréttingar sjálfur með tvo lærða smiði sér til aðstoðar. Jón sér um herrafatnaðinn og almennan rekstur fyrirtækisins og einnig verður hann með vinnustofu fyrir myndlistina sína á bak við búð- ina sjálfa. Búðin er við Mýrargötu, í húsi gegnt Slippnum, sem er ekki hin týpíska staðsetning fyrir versl- un af þessu tagi. Af hverju varð Mýrargatan fyrir valinu? Við Jón erum bæði rosalega mikið gettó. Okkur langaði ekki að vera á Laugaveginum í ljótu húsnæði og borga morðfjár í leigu. Við vildum vera öðruvísi og Mýrargatan er að mínu mati ein mest spennandi gata í Reykjavík í dag, mikill uppgangur og margt að sjá, nálægt sjónum og höfninni. Við fengum alveg einstakt húsnæði sem hentaði okkur vel. Ef maður skoðar flottustu búð- irnar í hverri borg þá eru þær í 95% tilvika fyrir utan aðalgötuna sjálfa. Viðskiptavinurinn þarf að leita uppi búðina. Það var líka svolítill liður í staðsetningarvalinu. Hvert er þitt uppáhalds- merki í búðinni? Vá, það er erfitt að velja á milli. Undercover og Number N(i)ne koma mjög sterk inn og svo auðvit- að hinn bandaríski Jeremy Scott þar sem ég er búin að þekkja hann svo lengi. Hann er eins konar lær- ifaðir minn og Báru þar sem hann gaf okkur krítík þegar við hönnuð- um okkar fyrstu Aftur-línu. Ég er hrifin af því að hann gerir alltaf eitthvað skondið og skemmtilegt og er ávallt samkvæmur sjálfum sér. Það er í flestum tilvikum ein- hver ádeila í fatnaðnum hans. Til dæmis er línan fyrir haustið, sem mun fást í búðinni okkar, helguð skyndibitamat og því ádeila á skyndibitaæði Bandaríkjamanna. 3asfour er einnig í miklu uppáhaldi hjá mér en ég hef þekkt hönnuðina mjög lengi og þeir gera ávallt skemmtilega hluti. Eruð þið að reyna að höfða til einhvers ákveðins hóp í samfé- laginu með búðinni? Nei, hingað eru allir velkomnir sem hafa áhuga á tísku og alvöru hönnun ekki bara einhverju fjöldafram- leiddu dóti sem eyðileggst eftir hálft ár. Við erum með hágæða hönnun og auðvitað eru fötin okkar í dýrari kantinum en svo eru merki inn á milli eins og Apríl 77, Dead, Aftur og Velour sem eru aðgengilegri í verðlagi. Þetta er búð fyrir unga sem aldna, tískufrík og ekki tísku- frík. Myndlist verður í hávegum höfð í Liborius og er til að mynda búið að hanna svið inni í búðinni og allar innréttingar eru hreyfanlegar þannig að auðvelt er að hreinsa allt út og halda tónleika, myndlistar- sýningar, tískusýningar eða aðra viðburði. „Í Liborius verður alltaf nóg í gangi og viljum við vera með sem flesta viðburði og skemmtilegt partí. Þetta verður því fyrir vikið miklu meira en bara búð. Við munum líka vera með skartgripi, kerti og alls kyns skemmtilega smá- hluti til sölu í búðinni fyrir utan fatnaðinn sjálfan,“ segir Hrafnhild- ur og heldur á vit tískunnar í París. alfrun@frettabladid.is Hrærigrautur myndlistar og tísku FATAMERKI LIBORIUS Ann Demeulemeester * Undercover * Number N(i)ne * 3as four * Jeremy Scott * Bless * Surface2air * Melodie Wolf * Pleasure Principle * Pierre Henri Mattout * Pudle * Velour * Schisser/Kos- tos * Yoshiko Creations * A‘N‘D * Licentious * Geoffrey B. Small * Jean Pierre Braganza * Jain and Marc * Wig * Talking About The Abstraction * April 77 * Damien Bash * Kendi-ties * Mari- anne Eriksen * Frida Methúsalems * Aftur * Dead Liborius er nýjasta viðbótin í tískuverslanaflóru klakans og verður hún opnuð með pompi og prakt 29. september næstkomandi. Myndlistarmaðurinn og hönnuðurinn Jón Sæmundur Auðarson og Hrafnhildur „Raven“ Hólmgeirsdóttir, fatahönnuður og stíl- isti, eru fólkið á bak við búðina, sem þau telja að muni veita Íslendingum nýja sýn á tísku. Hrafnhildur sér um innkaupin enda búin að lifa og hrærast í tísku alla sína tíð. YFIR 25 HÖNNUÐIR Jón Sæmundur sér um karlmannafötin í versluninni en á meðal merkja eru Jeremy Scott, April 77 og Pierre-Henri Mattout. MYND/SILJA MAGG FÓLKIÐ Á BAK VIÐ BÚÐINA Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir, stílisti og fatahönnuður, með Jóni Sæmundi Auðarsyni, myndlistarmanni og hönnuði. Verslunin Liborius verður opnuð 29. september næstkomandi og á hún að gefa Íslendingum nýja sýn á tísku. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.