Fréttablaðið - 26.10.2006, Qupperneq 88
26. október 2006 FIMMTUDAGUR48
maturogvin@frettabladid.is
ÞRÚGUR GLEÐINNAR
Einar Logi Vignisson
> Athugaðu...
...að áleggið á uppáhaldspitsunni
þinni gæti verið góður pastaréttur
ef þú blandar því í tómatmauk og
hitar á pönnu. Túnfiskur, paprika,
tabasco og óreganó virk-
ar alveg jafn vel með
pasta og á pitsu.
Hvaða matar gætirðu síst verið án?
Kókópuffs.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Grillaði humarinn sem ég var með um helgina. Ég bar hann fram
með hvítlaukssmjöri og steinselju.
Er einhver matur sem þér finnst vondur?
Já, paprika er ógeðsleg. Mér finnst uppáhaldsréttur konunnar
minnar, hakk og spagettí, líka vondur.
Leyndarmál úr eldhússkápnum:
Ég legg mikið upp úr því hvernig maturinn er borinn fram. Þá
skiptir ekki máli hvernig hann er á bragðið, það verður aukaatriði.
Hvað borðar þú til að láta þér líða betur?
Mér finnst rosa gott að fá mér popp.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Ost og pestó.
Ef þú yrðir fastur á eyðieyju, hvað tækirðu
með þér?
Ég tæki með mér kókópuffs og Matreiðslubók
Nönnu, þar er hægt að finna allar uppskrift-
ir í heiminum og hægt að fletta upp
eftir hráefni.
Hvað er það skrítnasta sem þú
hefur borðað?
Hundakjöt. Ég fékk það í Suður-
Ameríku, borið fram í lang-
lokubrauði. Það var mjög
seigt, enda varla úrvals-
hundur heldur eitthvað
gamalt grey.
MATGÆÐINGURINN: ATLI ÞÓR ALBERTSSON LEIKARI
Fékk seigan hund í langlokubrauði
Carmen Jóhannsdóttir er
nýsnúin heim úr ferðalög-
um erlendis. Hún dvaldist
síðast í Barcelona, þaðan
sem hún er ættuð.
„Ég er svo heppin að eiga ættir
að rekja út í heim. Þá er af meiri,
eða fjölbreyttari menningu að
taka,“ segir Carmen. „Ég ólst
upp við spænska og katalónska
matargerð og elda eiginlega
frekar þannig mat en íslenskan.“
Matarmenning í löndum Suður-
Evrópu er sem kunnugt er ólík
þeirri íslensku, og Carmen segist
njóta hennar þegar hún dvelst á
Spáni. „Mér finnst ótrúlega
gaman að sitja lengi við að borða.
Ég er nýkomin frá Barcelona þar
sem ég var að heimsækja vini, og
við tókum heilt kvöld í að fara á
milli staða og borða eitthvað
smávegis á hverjum og einum,“
sagði hún, en bætti því við að hér
heima ætti hún það til að festast
í því að borða á hlaupum eins og
aðrir.
Carmen segist hafa tekið eftir
því í vinahóp sínum að strákar
hafi nú meiri áhuga á mat en stelp-
ur. „Það eru vinir mínir frekar en
vinkonur sem eru að prófa sig
áfram í eldamennsku og tala sín á
milli um hvað þeir hafa eldað,“
sagði Carmen. Hún er einnig með
kenningu um hver orsökin sé.
„Ætli stelpurnar séu ekki bara
orðnar latar, það er svo gott að
hafa gæja til að dunda við sig,“
segir hún og hlær.
Uppskriftina sem Carmen
lætur lesendum Fréttablaðsins í té
segir hún vera týpískan katalónsk-
an rétt. „Þetta er fyrst og fremst
hugsað sem forréttur en getur líka
alveg verið léttur réttur,“ segir
hún.
Gambas a la ajo eða rækjur í hvítlauk.
Fyrir fjóra.
400 g frosnar rækjur
ólífuolía
cayenne pipar
steinselja
4 hvítlauksrif
pínulítið salt
Látið rækjurnar þiðna og hellið
öllum vökva af þeim. Takið fram
fjórar litlar, eldfastar skálar og
hellið hálfum bolla af olíu í hverja
skál. Pressið eitt hvítlauksrif út í
hverja skál og hrærið vel saman.
Hitið í ofni við 220 gráður þar til að
hvítlaukurinn er farinn að krauma.
Það þarf að passa vel að laukurinn
brenni ekki. Þegar hann er farinn
að krauma á yfirborði olíunnar eru
rækjurnar og steinseljan sett út í.
Setjið skálarnir aftur inn í ofn í 15-
20 mínútur. Berið fram með fersku
snittubrauði og frekar þurru hvít-
víni. Gott kampavín væri náttúru-
lega alls ekki verra.
Eldar katalónskan mat
ELDAR FREKAR FYRIR AÐRA Carmen finnst gaman að halda matarboð, en segist geta verið duglegri að elda fyrir sjálfa sig.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Sigrún Þorsteinsdóttir býr í Lond-
on ásamt manni sínum. Hún starf-
ar bæði þar og hérlendis sem sér-
fræðingur í aðgengismálum
fatlaðra á netinu. Meðfram því
heldur hún úti uppskriftasíðunni
Café Sigrúnu, með einum 300 upp-
skriftum. Hún segir um 200 manns
skoða síðuna daglega.
„Þetta eru mestmegnis græn-
metisuppskriftir, uppskriftir án
sykurs, hveitis, gers og almennt án
aukaefna. Ég forðast unnar matvör-
ur og það endurspeglast í uppskrift-
unum,“ segir Sigrún.
Sigrún viðurkennir að erfitt geti
verið að skipta um mataræði. „Sér-
staklega ef fólk þekkir engan sem
getur veitt því ráð. Það getur líka
verið dýrt og flókið að kúvenda því
allt í einu. Það er ekki auðvelt að
byrja en alveg þess virði!“ segir
Sigrún. Hún segir best að taka lítil
skref. „Það má baka í stað þess að
steikja, og nota jógúrt í stað rjóma í
köldum sósum. Svo má breyta upp-
skriftum, nota minni sykur og spelti
til helminga við hveiti.“ Sigrún
segir mikilvægt að kunna að lesa í
upplýsingar utan á pakkningum
matvöru. „Þetta ætti að vera kennt í
skólum. Fólk á að vera meðvitað um
hvað það lætur ofan í sig, við eigum
bara einn líkama.“ Uppskriftir má
nálgast á www.cafesigrun.com.
Hollur matur á Café Sigrúnu
SIGRÚN MÆLIR MEÐ
ÞESSUM UPPSKRIFTUM
FYRIR BYRJENDUR:
Kjúklingabaunasúpa
Morgunverður í glasi
Brauð með sólblóma- og sesamfræjum
Sultukaka með carobkremi
HOLLUR ÚTILEGUMATUR Í
GÖNGUFERÐ Í SKOTLANDI
Sigrún hætti að borða sykur
og skyndibita fyrir tuttugu
árum og saknar þess ekki.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR
Hann er vinsæll og veit af því. Þannig lýsti Hallbjörn Hjartarson svo
glæsilega Steingrími Hermannssyni í lagi tileinkuðu honum. Ef þrúgan
grenache yrði persónugerð er ólíklegt að sjálfsmynd hennar yrði jafn
traust. Hún er að öllum líkindum mest ræktaða þrúga heims en samt er
hún lítt kunn þorra neytenda og vín úr henni njóta ekki sömu frægðar
og virðuleika og vín úr helstu vínþrúgum heims. Ástæðanna er helst að
leita í erfðafræðinni. Grenache er ein erfiðasta vínþrúgan í ræktun
vegna þess hve auðvelt er að rækta hana. Hljómar sem öfugmæli en
kemur til af því að séu aðstæður of góðar, nóg af vatni og sæmilegur
hiti, þá gefur vínviðurinn af sér óhóflegt magn af fljótsprottnum
vínberjum. Slíkur ofvöxtur þykir ekki góð latína í víngerð þar sem
miklu skiptir að þrúgurnar vaxi hægt en örugglega og nái að kalla
fram einkenni úr jarðveginum.
Fljótsprottin vínber framkalla þunn og léttvæg vín. Þannig er
megnið af víni úr grenache alkóhólríkt borðvín sem suðrænar þjóðir
gera skil með hraði á nokkrum mánuðum frá því að það er sett á
flöskur. Þessi vín eru ekki til geymslu og rata sjaldnast út fyrir
landsteinana. Séu aðstæðurnar til ræktunar hinsvegar temmilega
erfiðar, þurrkur og rýr jörð, og vínviðurinn giska gamall þá geta vín úr
grenache sannarlega orðið dásamleg. Hún er aðalþrúgan í suðurhluta
Rhône og undirstaðan í hinum frægu vínum héraðsins Chateauneuf-du-
Pape. Þau vín geta innihaldið allt að þrettán mismunandi þrúgutegund-
ir en grenache er alltaf aðalþrúgan.
Sökum þess hversu vel grenache hentar til blöndunar með öðrum
þrúgum er ekki algengt að fá vín eingöngu úr grenache. Helst er það í
spænskum vínum, t.d. frá héruðunum Navarra og
Priorato. Grenache virðist hafa þann mikla kost að
draga fram það besta í öðrum þrúgum og slípa af
vankantana. Þetta sést best í sambúðinni við syrah-
þrúguna í frönsku vínunum og við tempranillo í
spænsku vínunum.
Á uppskerudögum í vínbúðum sem lýkur í næstu
viku eru níu vín úr grenache á lækkuðu verði. Fimm
þeirra eru frá Frakklandi, flott vín sem gefa góða
mynd af því hvað býr í þrúgunni. Þarna eru líka bæði
dæmigerður fulltrúi einfaldleikans í spænsku hefðinni
og risavín frá Spáni með öllum þeim glæsileika sem
einkenna stóru spænsku vínin. Ástralir eiga tvo
fulltrúa þar sem shiraz er blandað við að frönskum sið.
Vinsæl en veit ekki af því
Á botninn hvolft:
Ekki eru allir hrifnir af eikuðum vínum en vilja samt stór og
bragðmikil vín með steikinni. Slík vín má fá úr grenache.
���������������
����� ������������� �����������������������
����������������������� ������������������������������������������� ���
������ ����� ��������������������� ������������
�����������������������������������������������������������
������ ��������� ����� ������������
����������������������������� ��� ����������������������������
�������������������������� ������������
�����������������������������������������������������������������
�������������� �������� ������������
��������������������������� �������������������
���������������������������������� ������������
����������������������������������������������������������
��������������������������� ����������������
�������������������������������������� ����������
����������
���������������������
��������������������������������