Fréttablaðið - 04.05.2007, Qupperneq 6
Treystir þú einkafyrirtæki til að
sinna vopnaleit og öryggiseftir-
liti á flugvöllum?
Áttirðu von á þessari niðurstöðu
í Baugsmálinu?
Enginn viðbættur sykur
Engin viðbætt vítamín
Engin rotvarnarefni
Engin litarefni
Engin bragðefni
Knorr Vie
100% náttúrulegur ávaxta- og grænmetisdrykkur
Úr hverri flösku af Knorr Vie fást
200 g af því besta og hollasta
úr ávöxtum og grænmeti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
9
8
9
7
Ferskt úr kæli
safnaðu 10 Knorrstrikamerkjum ogveldu þér frábærahluti í eldhúsið! Þrír heppnir safnarar fá 100.000 kr. vöru-úttekt í Kringlunni,hvorki meirané minna!
Samanlagður hagnaður
viðskiptabankanna þriggja, Glitn-
is, Kaupþings og Landsbankans,
og Straums-Burðaráss fjárfest-
ingabanka nam samanlagt 47,1
milljarði króna á fyrsta ársfjórð-
ungi. Þetta er nokkuð lægri heild-
artala en á sama ársfjórðungi í
fyrra en þá var hagnaður bank-
anna fjögurra alls um 60,5 millj-
arðar króna.
Gengishagnaður var óvenju-
mikill á fyrsta fjórðungi 2006 sem
skýrir að hluta til þessa afkomu-
lækkun.
Afkoma Glitnis, Landsbankans
og Straums-Burðaráss dróst
saman en lítils háttar hagnaðar-
aukning varð hjá Kaupþingi sem
hagnaðist mest, um 20,3 milljarða
króna. Arðsemi eigin fjár á árs-
grundvelli var á breiðu bili, frá 4,6
prósentum til 45,2 prósenta.
Heildareignir bankanna í lok
mars voru komnar yfir 9.200 millj-
arða króna sem svara til áttfaldr-
ar landsframleiðslu síðasta árs.
Eigið fé bankanna stóð í 750 millj-
örðum króna.
Hvorki fjármálaþjónustufyrir-
tækið Exista, sem hagnaðist um
57,2 milljarða, né fjárfestingarfé-
lagið FL Group, sem var með 15,1
milljarðs króna hagnað, eru tekin
með í þessum tölum. Það vekur
athygli að Exista hagnaðist meira
en sem nemur heildarhagnaði
bankanna fjögurra.
Högnuðust yfir 47 milljarða
„Með því að birta upp-
lýsingar sem Kastljós hefur feng-
ið með ólögmætum hætti um
umsókn stúlkunnar hefur verið
brotið gegn friðhelgi einkalífs
hennar,“ segir Jónína Bjartmarz
umhverfisráðherra.
Jónína gerir umfjöllun Kast-
ljóss ríkisútvarpsins um málefni
unnustu sonar hennar að umfjöll-
unarefni í grein sem Morgunblað-
ið birti í gær. Þar spyr ráðherrann
hvort Kastljósið sé að láta misnota
sig til að koma höggi á hana og
Framsóknarflokkinn í aðdraganda
alþingiskosninganna. Þórhallur
Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss,
neitaði þessari ásökun í yfirlýs-
ingu. Sagði hann engan misnota
þáttinn.
„Allir þeir sem heyrt hafa svör
Bjarna Benediktssonar, Guðrúnar
Ögmundsdóttur og Guðjóns Ólafs
Jónssonar hljóta að spyrja sig
þess hvað Kastljósinu gangi til
með umfjöllun um veitingu ríkis-
borgararéttar til eins tiltekins
umsækjanda, ungrar stúlku frá
Mið-Ameríku, sem tengist mér,“
segir í bréfi Jónínu sem telur
margt athugavert við umfjöllun
Kastljóssins:
„Stórfrétt Kastljóssins í upphafi
var að umræddur umsækjandi
hefði einungis dvalist í fimmtán
mánuði á Íslandi áður en Alþingi
veitti réttinn og mátti skilja sem
svo að væri nánast einsdæmi og
hin mesta spilling. Staðreyndir
málsins eru þær að á þessu kjör-
tímabili hafa 144 einstaklingar
fengið ríkisborgararétt með lögum
frá Alþingi. Þar af höfðu 30 ein-
staklingar dvalist hér eitt ár eða
skemur,“ segir í bréfi ráðherrans.
Þórhallur segir í svari sínu að
Jónína kjósi að horfa fram hjá því
að alþingismennirnir Bjarni Bene-
diktsson, Guðrún Ögmundsdóttir
og Guðjón Ólafur Jónsson væru
þau sem afgreiddu hina umdeildu
umsókn unnustu sonar hennar um
ríkisborgararétt á Íslandi.
„Aldrei var sagt að Jónína hefði
beitt sér í málinu heldur vakin
athygli á óvenjulegri afgreiðslu
málsins.
Þegar við bætist að stúlkan býr
á heimili umhverfisráðherra er
full ástæða fyrir fjölmiðla að
spyrja spurninga,“ segir í yfirlýs-
ingu ritstjóra Kastljóss.
Í samtali við Fréttablaðið segist
Jónína Bjartmarz ekki vita hvort
kæra verði lögð fram á hendur
Kastljósinu fyrir að hafa birt úr
gögnum sem fengin væru á ólög-
legan hátt og brotið á friðhelgi
einkalífs unnustu sonar hennar.
Stúlkan sjálf yrði að ákveða það.
Ráðherrann sakar
Kastljós um lögbrot
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra segir Kastljós hafa brotið friðhelgi einka-
lífs á unnustu sonar hennar með birtingu gagna sem fengin hafi verið með
ólögmætum hætti. Ritstjóri Kastljóss aftekur að þátturinn sé misnotaður.
„Allt í þessum gögn-
um leiðir líkur að því að ég hafi
haft fyllilega rétt fyrir mér. Ég
stend við allar mínar fyrri full-
yrðingar,“ segir Sigurjón Þórðar-
son, alþingismaður Frjálslynda
flokksins, sem í gær fékk að skoða
umsókn unnustu sonar umhverf-
isráðherra um ríkisborgararétt.
Aðspurður hvort nafn Jónínu
Bjartmarz umhverfisráðherra
komi fyrir á umsókn tengdadóttur
hennar segist Sigurjón bundinn
trúnaði um innihald umsóknar-
innar.
„Ferillinn í stjórnsýslunni er
með ólíkindum. Umsóknin kemur
sjötta mars í dómsmálaráðuneyt-
ið og daginn eftir er búið að óska
eftir umsögnum Útlendingastofn-
unar og Lögreglunnar í Reykjavík
og sömuleiðis er aflað gagna hjá
sakaskrá. Öllum umsögnum er
skilað innan sólarhrings og sam-
dægurs sendir ráðuneytið alls-
herjarnefnd Alþingis gögnin,“
segir Sigurjón. „Þetta eru ekki
vinnubrögð sem hafa tíðkast við
að aðstoða útlendinga í gegn um
þennan skóg. Ég fór í gegn um
aðrar umsóknir og það er ekkert
mál sem líkist þessu.“
Dómsmálaráðuneytið segir
afgreiðslu ráðuneytisins á umsókn
stúlkunnar hafa verið hefð-
bundna. „Fullyrðingar um það
efni eru ekki réttar miðað við
starfsvenjur ráðuneytisins, þegar
umsókn er lögð fyrir Alþingi.
Upplýsingar frá lögreglu og
Útlendingastofnun eru þess eðlis,
að almennt er unnt að veita þær
samdægurs, ef svo ber undir,“
segir ráðuneytið.
Segir gögnin styðja mál sitt
Lögreglan rannsakar nú
hvort eigandi heimasíðu sem hýst
var á Íslandi hefur gerst sekur um
dreifingu á barnaklámi og öðru
klámefni. Síðunni var lokað stuttu
eftir að fréttastofa Stöðvar 2 fór
að grennslast fyrir um hana í gær.
Greint var frá því að á síðunni
hafi verið aragrúi af ógeðfelldum
myndum af látnu fólki, dýraklámi
og barnaklámi. Netfyrirtækið
Hive, sem hýsti síðuna, bað
eigandann um að loka henni sem
hann gerði.
Þar sem síðan var er nú textinn
„Síðan er farin. Netlögreglan
komst í hana. Kannski kemur hún
aftur - hver veit.“
Lögregla skoðar
ógeðfellda síðu
Aldrei var sagt að Jónína
hefði beitt sér í málinu
heldur vakin athygli á óvenjulegri
afgreiðslu málsins