Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 8
Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær Jón Ásgeir
Jóhannesson og Tryggva Jónsson í
þriggja og níu mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir bókhaldsbrot
í hinu svokallaða Baugsmáli. Ákæru
á hendur Jóni Gerald Sullenberger
var vísað frá. Bæði Jón Ásgeir og
Tryggvi lýstu því yfir í gær að
dómnum yrði áfrýjað.
Ákæran í þessum hluta Baugs-
málsins var í 19 liðum, en fyrsta
ákæruliðnum hafði áður verið vísað
frá dómi. Í dómi héraðsdóms í gær
var 10 ákæruliðum til viðbótar
vísað frá dómi þar sem ýmist var
ekki refsiheimild til staðar
eða ákæruefni var ekki
lýst nægilega vel. Jón
Ásgeir, forstjóri Baugs
Group, var ákærður í
17 ákæruliðum og
var hann sakfelldur
í einum þeirra.
Tryggvi, fyrrverandi
aðstoðarforstjóri Baugs, var ákærð-
ur í 10 liðum og var sakfelldur í
fjórum þeirra. Jón Gerald var
ákærður í einum ákærulið og var
ákæru á hendur honum vísað frá
þar sem hann hafði stöðu vitnis en
ekki sakbornings við rannsókn
málsins.
Jón Ásgeir og Tryggvi voru báðir
sakfelldir fyrir að nota tilhæfulaus-
an 62 milljóna króna kreditreikn-
ing sem fyrirtæki Jóns Geralds
Sullenbergers gaf út til þess
að rangfæra bókhald Baugs.
Niðurstaða dómsins var
sú að sannað hafi verið,
þrátt fyrir neitun ákærðu,
að þeim hafi báðum verið ljóst að
reikningurinn var tilhæfulaus.
Brotið hafi haft áhrif á árshluta-
uppgjör Baugs og þar af leiðandi
hafi tilkynning félagsins til verð-
bréfaþings verið röng.
Tryggvi var einn sakfelldur fyrir
að færa kredityfirlýsingu frá fær-
eysku verslunarkeðjunni SMS sem
tekjur í bókhaldi Baugs. Jón Ásgeir
var sýknaður af þeim ákærulið þar
sem ósannað þótti að færslan hafi
verið gerð með vitund og vilja
hans.
Þá var Tryggvi sakfelldur í
tveimur ákæruliðum sem tengjast
vörslureikningi fyrir hlutabréf sem
Baugur átti hjá Kaupþingi í Lúxem-
borg. Það er niðurstaða dómsins að
fjórar færslur á reikningnum hafi
verið rangar og Tryggva hafi verið
það ljóst. Hins vegar sé ósannað að
Jón Ásgeir hafi vitað af þeim.
Jón Ásgeir og Tryggvi voru sak-
aðir um fjárdrátt með því að draga
fé úr Baugi til að fjármagna hlut
Gaums í skemmtibátnum Thee Vik-
ing. Sýknað var í þeim ákærulið
þar sem dómnum þótti ljóst að féð
hafi ekki runnið til Gaums, heldur
til Nordica, félags Jóns Geralds.
Þar með áleit dómurinn þann
ákærulið ekki standast nánari skoð-
un og fjallaði ekki sérstaklega um
skýringar ákærðu.
Ákærulið þar sem Tryggvi var
ákærður fyrir að draga sér fé með
notkun á greiðslukorti var vísað
frá þar sem ákæruvaldið sundur-
liðaði ekki kortareikninga
Tryggva.
Sakfellt í fjórum ákæruliðum
Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggvi Jónsson fengu skilorðsbundna fangelsisdóma í Baugsmálinu í gær. Þætti
Jóns Geralds Sullenberger var vísað frá. Jón Ásgeir og Tryggvi hyggjast áfrýja dómnum til Hæstaréttar.
BAUGS M Á L I Ð