Fréttablaðið - 04.05.2007, Side 24
Suðvesturkjördæmi samanstendur af sveit-
arfélögum höfuðborgarsvæðisins utan
Reykjavíkur sem áður voru hluti af Reykja-
neskjördæmi. Kjördæmið er stundum kall-
að Kraginn vegna þess hvernig það umlykur
Reykjavík.
Áherslur efstu manna á öllum listum
sem bjóða fram í kjördæminu draga nokk-
urn dám af þeim áherslum sem eiga við á
höfuðborgarsvæðinu í heild. Atvinnu-, sam-
göngu- og velferðarmál tengjast þannig náið
aðstæðum í höfuðborginni. Margir sækja at-
vinnu sína á milli einstakra sveitarfélaga og
samgöngubætur innan Reykjavíkur koma
nágrannabyggðum vel. Stjórnmálaumræð-
an í Suðvesturkjördæmi litast því frekar af
málefnaáherslum flokkanna á landsvísu, en
í landsbyggðarkjördæmum eru einstakar
framkvæmdir frekar settar á oddinn.
Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki, segist
leggja jafna áherslu á nokkur mál. Hún vill
tryggja stöðugleika og góða afkomu fólksins
í landinu með því að halda sköttum lágum og
segir öflugt atvinnulíf forsendu þess að unnt
sé að halda áfram uppbyggingu í félags- og
heilbrigðiskerfi og til að efla menntakerfið.
„Við leggjum sérstaka áherslu á að standa
við bakið á barnafjölskyldum og eldri borg-
urum. Ég minni á að við erum að fara að
byggja fjölda hjúkrunarrýma í öllum sveit-
arfélögum kjördæmisins. Þetta er mikið
hagsmunamál aldraðra og skiptir mig miklu
máli að hlúa að öldruðum íbúum sem þurfa
á slíku rými að halda, en ég legg jafnframt
mikla áherslu á að auka heimaþjónustu,“
segir Siv.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Sjálf-
stæðisflokki, vill tryggja að uppbygging
haldi áfram í efnahags- og atvinnulífi. Hún
segir fjölbreytni í atvinnulífinu hafa aukist
og grunnstoðirnar séu fleiri en áður var, til
dæmis fjármálastarfsemi og þekkingariðn-
aður. „Það er ekki hægt að tala um velferð
nema að verðmætasköpun sé samhliða,“
segir Þorgerður. „Innan kjördæmisins leggj-
um við sérstaka áherslu á málefni eldri borg-
ara. Við þurfum að bjóða fjölbreytta þjón-
ustu og hafa hana mun einstaklingsmiðaðri
en verið hefur. Við verðum að hafa hugfast
að þetta er ekki einsleitur hópur heldur ein-
staklingar með mjög mismunandi þarfir.“
Kolbrún Stefánsdóttir, Frjálslynda flokkn-
um, segir aðal baráttumál sitt vera velferð-
armálin. „Þó að úrlausnarefni þessa mála-
flokks séu á landsvísu þá er þetta brýn-
asta verkefnið á höfuðborgarsvæðinu því
hér er flest fólkið. Það á ekki síst við um
hjúkrunarrými. Við verðum að koma málum
þannig fyrir að fólk geti verið nær sínum
ástvinum.“
Jakob Frímann Magnússon, Íslandshreyf-
ingunni, vill veita auknu fé til velferðarmála
með hækkun skattleysismarka. „Það er sam-
félagi okkar til skammar að sú kynslóð er
skóp forsendur þess samfélags sem við njót-
um í dag skuli vera afgangsstærð og ekki fá
að njóta sem skyldi þeirrar gildu innistæðu
sem hún hefur sannanlega aflað sér. Sama
gildir um þá sem búa við skerta heilsu eða
örorku og þurft hafa að sækja rétt sinn ít-
rekað til Hæstaréttar. Uppeldis- og umönn-
unarstéttirnar í landinu eru að okkar mati
stórlega vanmetnar. Hér þarf gerbreytta
forgangsröðun.“
Gunnar Svavarsson, Samfylkingu, segir
nauðsynlegt að endurreisa velferðarkerf-
ið; margt hafi orðið útundan og ójöfnuð-
ur aukist jafnt og þétt. „Við höfum líka
verið að benda á biðlistana, það á jafnt við
um sjúka, aldraða og börn. Til þessa verk-
efnis eru til nægir fjármunir. Við leggjum
áherslu á fjölbreyttara atvinnulíf og áfram-
haldandi hagvöxt, sem mun skila okkur tekj-
um til að byggja upp sanngjarnara velferð-
arkerfi en við búum við í dag.“ Gunnar segir
að tryggja þurfi stöðugleika og ná niður
þenslunni. „Við verðum að byggja upp fjöl-
breyttara atvinnulíf til að auka velferð allra
í samfélaginu.“
Ögmundur Jónasson, Vinstri grænum,
leggur höfuðáherslu á jöfnuð og jafnvægi
sem séu lykilatriði í pólitískum áherslum
VG. Hann segir það endurspeglast í stefnu
flokksins í atvinnumálum, umhverfismál-
um og velferðarmálum. „Í velferðarmálum
höfum við sett fram markvissa áætlun um
að bæta stöðu velferðarþjónustunnar með
tilliti til þeirra sem njóta hennar, sem greiða
fyrir hana og starfa við hana. Þannig verð-
ur að hugsa allar aðgerðir á sviði velferð-
armála með það meginmarkmið í huga að
bæta þjónustuna á hagkvæman hátt. Þá er
einnig lykilatriði að huga að starfsfólkinu,“
segir Ögmundur sem leggur þunga áherslu
á að staða öryrkja og tekjulítilla aldraðra
verði bætt. „Nátengt velferðarmálunum eru
jafnréttismál en deginum ljósara er að vel-
ferðarþjónustan er borin uppi af fjölmenn-
um kvennastéttum á allt of lágum launum.
Við leggjum einnig áherslu á kvenfrels-
ismál í víðasta skilningi. Mál númer eitt í
kjördæminu er stórefling velferðarþjónust-
unnar og samgöngumál.“
Þegar áherslur einstakra frambjóðenda
eru skoðaðar ber margt á góma. Siv vill
lengja fæðingarorlofið í tólf mánuði, af-
nema stimpilgjöld og hækka skattleysis-
mörk. Þorgerður Katrín segir sjálfstæðis-
menn óhrædda við að leggja áherslu á efna-
hags- og atvinnumál en umhverfismál séu
flokknum vissulega hugleikin. Menntamál
skipti þó meginmáli þegar hlutirnir eru
metnir heildstætt. Jakob Frímann Magnús-
son segir ljóst að „erlendir forsvarsmenn
álrisans í Hafnarfirði munu einskis svíf-
ast þrátt fyrir niðurstöðu íbúakosningar-
innar“ og að Íslandshreyfingin muni berj-
ast af alefli gegn stóriðjufyrirætlunum á
næsta kjörtímabili. Verkalýðsmál eru Kol-
brúnu hugleikin. Hún segist hafa mikla
samkennd með verkafólki í samkeppni við
erlent verkafólk. Gunnar Svavarsson, Sam-
fylkingu, nefnir að efla þurfi almennings-
samgöngur ekki síður en endurskipulagn-
ingu á umferðarmannvirkjum. Það sé ekki
síst mikilvægt til að tryggja umferðarör-
yggi. Ögmundur Jónasson segir umhverfis-
mál forgangsmál í sínum huga. Þar sé horft
til stórvirkjana og náttúruverndar í nær-
umhverfinu.
Þegar spurt er um einstakar framkvæmd-
ir innan kjördæmisins eru allir frambjóð-
endur sammála um að átak þurfi til að bæta
samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Þar er
Hafnarfjarðarvegurinn mönnum efst í huga
og sú staðreynd að illa gengur að komast til
og frá byggðakjörnum á álagstímum. Suð-
vesturkjördæmi er fjölmennast af kjör-
dæmunum sex og fólksfjölgun stöðug. Því
leggja frambjóðendurnir allir mikla áherslu
á framtíðarlausnir í samgöngumálum.
Menntamál brenna einnig á öllum fram-
bjóðendunum og vilja þeir uppbyggingu
menntakerfisins; ekki síst með fjölgun
framhaldsskólanna.
Velferðarmál ofarlega á baugi
Frambjóðendur allra flokka í Suðvesturkjördæmi leggja mikla áherslu á velferðarmál. Efnahags- og atvinnumál eru þar nátengd.
Áherslur draga dám af þörfum höfuðborgarsvæðisins í heild en síður eru nefnd sértæk verkefni eins og hjá frambjóðendum
landsbyggðarkjördæma. Svavar Hávarðsson innti efstu menn flokkanna eftir áherslum þeirra fyrir alþingiskosningarnar 12. maí.