Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 35
Hugi Jónsson óperusöngvari
var stoppaður af lögreglunni
fyrir að vera á of mikilli druslu.
Hugi Jónsson þarf að fara allt
aftur til þrettán ára aldursins til
að rifja upp bestu kaup sín. Fyrir
fermingapeningana keypti hann
rafmagnsbassa. „Hann hefur
fylgt mér síðan þá og verið mér
góður og traustur vinur,“ segir
Hugi. Bassinn kostaði 85 þúsund
þannig að Hugi hefur fengið góða
summu í fermingagjöf. „Þetta
gekk ágætlega,“ bætir Hugi við
og hlær.
Meðal þeirra minninga sem
tengjast bassanum er þátttaka í
Músíktilraunum með hljómsveit-
inni Cyclone. „Mig minnir að við
höfum verið fimmtán ára á þess-
um tíma. Við vorum reyndar
frekar barnalegir, enda kom í ljós
að einhverjir héldu að gaurinn á
bassanum, ég semsagt, væri ekki
deginum eldri en átta ára,“ segir
Hugi og skellir upp úr.
Tónlistaráhuginn hefur nokk-
uð breyst hjá Huga og nú er hann
orðinn óperusöngvari. „Ég er allt-
af eitthvað að syngja og var til
dæmis með tónleika í Salnum í
Kópavogi fyrir ekki svo löngu,“
segir Hugi. „Þeit heppnuðust
mjög vel og ég er mjög sáttur.“
Verstu kaup Huga eru, eins og
hjá svo mörgum, tengd bílum.
„Þegar ég átti heima í Noregi
gerði ég mér ferð til Óslóar til að
kaupa glæsilegan Ford Taurus,“
segir Hugi. „Hann var þrílitur,
ljósgrænn, með eitt dökkgrænt
bretti, og annað brúnt. Bíllinn var
82 árgerð en það var síðasta árið
sem bíllinn var framleiddur.“
Bíllinn kostaði um 130 þúsund
krónur og dugði aðeins í nokkra
mánuði. „Ég var stoppaður í
reglubundinni skoðun af lögregl-
unni og þeir skipuðu mér að fara
með bílinn í aukaskoðun, hann
væri í allt of slæmu ástandi,“
segir Hugi. „Svo þegar ég kom
með hann í skoðun var mér tjáð
að þessi bíll færi aldrei aftur á
götuna.“
Vel nýttir fermingarpeningar
Fallegar íslenskar
peysur
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Tjáðu þig!
Viltu sýn’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Stæsta
bloggsamfélagið!
Yfir 150.000
notendur!