Fréttablaðið - 04.05.2007, Side 46
fréttablaðið kópavogur 4. MAÍ 2007 FÖSTUDAGUR2
Landsmót UMFÍ verður haldið
í Kópavogi dagana 5.-8. júlí í
sumar. Jón Júlíusson, íþrótta-
fulltrúi Kópavogs, segir alla
aðstöðu verða til fyrirmyndar
þegar mótið hefjist.
Þetta er í fyrsta sinn sem Lands-
mótið er haldið í Kópavogi og
segir Jón alla aðstöðu vera fyrir
hendi til að halda mótið. „Samt
sem áður er verið að bæta aðstöð-
una í bænum en til dæmis er verið
að byggja nýja stúku við aðalleik-
vanginn. Hún verður tekin í notk-
un rétt fyrir Landsmót,“ segir Jón
og bætir því við að undir stúk-
unni verði fjórir nútímalegir bún-
ingsklefar með pottum og fleiru.
„Húsið verður á þremur hæðum
og sú efsta verður fyrir heiðurs-
fólk.”
„Það verður keppt um allan
bæinn þó aðallega fari keppnin
fram í Kópavogsdalnum, Smáran-
um og Smáralindinni en þar fara
fram nokkrar greinar,“ segir Jón
og nefnir starfsgreinar eins og að
leggja á borð og pönnukökubakst-
ur en einnig verður keppt í dansi í
Smáralindinni.
Oft gjörbreyta Landsmótin allri
aðstöðu til íþróttaiðkunar í sveit-
arfélögunum þar sem þau eru
haldin en Jón segir það ekki vera
raunin í Kópavogi. „Það má segja
að við hefðum getað tekið Lands-
mótið nokkurn veginn án þess að
leggja í neinn kostnað. Það var
hins vegar komið að því að byggja
nýja stúku við fótbolta- og frjáls-
íþróttavöllinn, svo þetta var fínt
tækifæri til þess. Að öðru leyti
reynum við að standsetja mann-
virkin þannig að þau geti tekið við
þeirri keppni sem þeim er ætlað.“
Á Landsmótinu verður keppt
í 25 greinum en auk þess verður
keppt í óhefðbundnum greinum.
„Í ár verður keppt í sparkvallafót-
bolta í fyrsta sinn en þar verður
gestum boðið að taka þátt í móti
á sparkvöllum bæjarins. Þar er
öllum heimilt að skrá sig í keppn-
ina sem verður með bikarkeppnis-
fyrirkomulagi. Sá sem vinnur á
einum sparkvelli keppir við sigur-
vegarann á þeim næsta og þannig
koll af kolli þar til eitt lið stend-
ur uppi sem sigurvegari,“ segir
Jón og nefnir einnig almennings-
hlaup og golfkeppni fyrir almenn-
ing sem verður utan venjulegu
keppninnar.
„Það er allt í fullum undirbún-
ingi og hjólin snúast hratt því
það er alltaf eitthvað sem þarf
að huga að. Annars held ég að við
séum frekar snemma í því að gera
alla aðstöðu tilbúna og stefnum að
því að geta sett Landsmótið þann
5. júlí með alla keppnisaðstöðu til
fyrirmyndar.“
sigridurh@frettabladid.is
Undirbúningur Lands-
móts í fullum gangi
Jón Júlíusson, íþróttafulltrúi Kópavogs, segir bæjarfélagið vel undirbúið fyrir Landsmót UMFÍ í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
66° Norður opnaði á dögunum 130 fer-
metra verslun í Smáralindinni. Þar
með eru verslanir 66° Norður orðnar
sjö talsins; sex á höfuðborgarsvæð-
inu og ein á Akureyri. Úrvalið í þess-
ari nýju verslun er sérstaklega stíl-
að inn á fjölskyldufólk þar sem mikið
úrval er af útivistarfatnaði í versl-
uninni bæði fyrir börn og full-
orðna. Verslunin er við inngang-
inn hjá Nóatúni.
Warehouse opnaði einnig
nýverið nýja verslun í
Smáralindinni, en vörur
frá Warehouse fást einnig
í Debenhams, auk þess
sem Warehouse-verslun er
í Kringlunni. Warehouse
selur tískufatnað fyrir
konur.
66° Norður hefur opnað nýja
verslun í Smáralindinni.
66° Norður og Ware-
house í Smáralindinni
Leikfélag Kópavogs hefur á undanförnum árum verið eitt öflug-
asta áhugaleikfélag landsins. Þar hefur margur leikarinn stigið
sín fyrstu skref á sviði, enda hefur starfið verið öflugt og marg-
ar sýningar vel heppnaðar.
Í vikunni fór fram síðasta sýning leikfélagsins í gamla hús-
næðinu. Að henni lokinni fóru meðlimir að taka niður kastara
og tjöld og koma fyrir í
gámi. „Við erum búin að
vera hér í 20 ár svo auð-
vitað verður söknuður
að húsinu,“ segir Gísli
Björn Heimisson, for-
maður Leikfélags Kópa-
vogs. „En leikfélagið
er 50 ára í ár og því við
hæfi að fá nýtt húsnæði
í afmælisgjöf.“
Leikfélagið er búið
að skrifa undir samning
um kaup á nýju húsnæði en það er Kópavogsbær sem gerir leik-
félaginu kleift að ráðast í svo stórar aðgerðir. „Bærinn hefur allt-
af staðið við bakið á okkur og hann virðist ekki ætla að bregð-
ast okkur nú,“ segir Gísli. „Það er reyndar ekki alveg komið á
hreint hvernig þeir hjálpa okkur en það skýrist á bæjarráðsfundi
í dag.“ -tg
Leikfélag Kópavogs
fær nýtt húsnæði
Leikfélag Kópavogs fagnar 50 ára leik-
afmæli á árinu. Myndin er úr einni af síðustu
sýningum leikfélagsins í gamla húsnæðinu,
Allt og ekkert.
Skráning á sumarnámskeið Hraðlestrarskólans er hafin á www.h.is og í síma 586-9400
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott, skipulagning, einbeiting,
jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.
Náðu forskoti með okkur í sumar!
“Snilldarnámskeið..kom skemmtilega á óvart hversu
miklum hraða ég náði.”
Guðbjörg Jónsdóttir, 40 ára Framhaldsskólakennari.
“Loksins sé ég fram á það að geta klárað
lesbækur fyrir próf”
Elín Björk Jónsdóttir, 15 ára nemi.
“Ég sexfaldaði lestrarhraða minn á 3 vikum!
Frábært!”
Guðjón Bergmann, 34 ára rithöfundur, f
yrirlesari og jógakennari.
“Ykkur að þakka mun ég rúlla upp samræmdu
prófunum.”
Jökull Torfason, 15 ára nemi.
“Þetta mun nýtast mér alla ævi.”
Jóhanna Helga, 15 ára grunnskólanemi.
“...á eftir að spara mér hellings tíma af
námsbókalestri.”
Ragna Björk Ólafsdóttir, 17 ára nemi og golfari.