Fréttablaðið - 04.05.2007, Side 48
fréttablaðið kópavogur 4. MAÍ 2007 FÖSTUDAGUR4
Skólahljómsveit Kópavogs er
40 ára í ár. Í tilefni afmælisins
hefur meðal annars verið
gefinn út geisladiskur og farið
verður til útlanda bæði með
eldri og yngri sveitir.
Skólahljómsveit Kópavogs er í
augum margra ómissandi hluti
af bæjarlífinu í Kópavogi. Í ár á
hljómsveitin stórafmæli en fyrstu
tónleika sína hélt hún fyrir 40
árum. „Sveitin var reyndar stofn-
uð 1966 en við miðum afmælisdag-
inn við fyrstu tónleika sveitarinn-
ar, sem haldnir voru 22. febrúar
árið 1967,“ segir Össur Geirsson,
stjórnandi skólahljómsveitarinn-
ar til fjölda ára.
Mikið verður um dýrðir á af-
mælisárinu. Búið er að halda
stóra afmælistónleika í Háskóla-
bíó þar sem meðal annars voru
flutt þrjú verk sem samin voru
sérstaklega fyrir hljómsveitina á
afmælisárinu. „Við fengum þrjá
unga tónsmiði úr Kópavoginum til
að semja tónverk fyrir okkur. Tvo
sem eru tiltölulega nýútskrifaðir
úr tónsmíðanámi og svo einn sem
er nýhættur í hljómsveitinni hjá
okkur,“ segir Össur. „Ekkert þess-
ara tónskálda hafði samið fyrir
lúðrasveit áður enda vildum við
fá nýjan vinkil inn í myndina. Það
gekk algjörlega upp og við erum
mjög ánægð með útkomuna.“
Auk laganna þriggja var eitt
nýtt verk á efnisskránni, verk sem
er útkoma samvinnu tveggja kyn-
slóða Kópavogsbúa. „Ég útsetti lag
sem einn meðlimur sveitarinnar
samdi fyrir tónskáldakeppni sem
við héldum. Hún sigraði í sínum
flokki en hún var níu ára þegar
hún samdi lagið.“
Fyrir afmælistónleikana var
tekinn upp geisladiskur með sveit-
inni. „Þetta eru ýmiss lög af efnis-
skrá okkar, bæði erlend og inn-
lend lög,“ segir Össur. „Við feng-
um fagmenn í lið með okkur og nú
er kominn út eins konar afmælis-
diskur.“
Skólahljómsveitin hefur það
að reglu að fara til útlanda annað
hvert ár með elstu nemendurna.
„Þetta eru skemmti- og tónlistar-
ferðir en við leggjum mikið upp
úr því að spila fyrir þá sem við
heimsækjum og fara á tónleika
þegar við getum,“ segir Össur.
„Við leggjum líka mikla áherslu á
forvarnargildi og félagslega þátt-
inn og því eru ferðirnar vímuefna-
lausar bæði fyrir krakkana og alla
sem ferðast með hópnum.“
Í ár fer elsta sveitin til Austur-
ríkis, Ítalíu og Króatíu. Í tilefni af-
mælisársins fer einnig miðsveitin,
sem skipuð er yngri krökkum, til
útlanda. „Við förum til Svíþjóðar í
viku þar sem við tökum þátt í al-
þjóðlegri tónlistarkeppni í Gauta-
borg,“ segir Össur. „Kór Snæ-
landsskóla fer með okkur og við
munum spila og syngja saman.“
Lúðrasveit er góður skóli að
mati Össurar og þar læra krakk-
arnir gildi hópvinnu og að beita
sig aga. „Þau upplifa sig sem
hlut af hóp þar sem allir þurfa að
skila sínu og allir eru mikilvægir.
Krakkarnir bera líka ábyrgð á að
þau æfi sig heima svo þau skili
sínu fyrir hópinn og það kallar á
heilmikinn sjálfsaga,“ segir Össur.
„Svo er það auðvitað félagslegi
þátturinn og forvarnargildið sem
ég nefndi áðan sem eru gríðarlega
mikilvægir þættir í starfi okkar.“
tryggvi@frettabladid.is
Níu ára tónskáld á 40 ára
afmælistónleikum
Össur Geirsson fékk þrjú tónskáld til að semja verk fyrir Skólahljómsveit Kópavogs í tilefni 40 ára afmælis sveitarinnar. Ekkert
tónskáldanna hafði áður samið fyrir lúðrasveit.
MYND/VILHELM
Hljómsveitin fer reglulega til útlanda. Hér leiðir sveitin skrúðgöngu í Eurodisney.
Salurinn
VÖRUBÍLAVARAHLUTIR
SCANIA, VOLVO OG MAN
G.T. ÓSKARSSON
VESTURVÖR 23, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 554 6000
www.islandia.is/scania
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir