Fréttablaðið - 04.05.2007, Síða 57

Fréttablaðið - 04.05.2007, Síða 57
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 13kópavogur fréttablaðið Starfsemi Skólagarðanna hefst 1. júní en skráning hefst í dag. Þeir munu starfa á Kópavogstúni neðan Sunnu- hlíðar, í Fossvogsdal við Víði- grund, í Kópavogsdal hjá endurvinnslustöð Sorpu, austan við leikskólann Núp við Núpalind og í Kórum, sunnan Hörðuvallaskóla. Skólagarðarnir eru fyrir 8- 13 ára börn og geta veitt allt að 300 börnum viðtöku. Þar fá þau 12 fermetra garð, útsæði, plöntur, fræ og leiðsögn við ræktun algengustu matjurta. Börnin sinna síðan garðinum fyrir eða eftir hádegi. Auk ræktunarinnar er margt um að vera. Leikja- dagar eru haldnir reglu- lega þar sem farið er í ýmsa leiki eða ákveðnar uppákom- ur. Má nefna skoðunarferð- ir, ratleiki, boltaleiki, drullu- kökukeppni og göngu- og hjólreiðatúra um nágrennið. Skólagarðarnir eru þó hvorki leikjanámskeið né gæsluvell- ir fyrir börn. Skráning og upplýsingar eru á vefsíðunni www.kopavogur.is/skolagard- ar. Frétt af vefnum kopavogur. is. Starf Skóla- garðanna Skólagarðar Kópavogs eru fyrir börn á aldrinum 8-13 ára. Félagarnir Þorsteinn Björns- son og Pétur Andreas Maack eru nemendur í Menntaskól- anum í Kópavogi og hömpuðu á dögunum Íslandsmeistara- titli í ísknattleik með Skauta- félagi Reykjavíkur. Úrslitaviðureignin var hörkuspennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en í víta- keppni þar sem Skautafé- lag Reykjavíkur sigraði með sex mörkum gegn fjórum en eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var staðan 2-2. Pétur og Þorsteinn eru efnilegir íshokkíleikmenn og verður eflaust spennandi að fylgjast með árangri þeirra í framtíðinni. Meistarar úr MK Hamraborg 14 | Kópavogur | sími 554 7744 Kjóstu F ! forysta fyrir íslenska þjóð www.xf.is KOLBRÚN STEFÁNSDÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI SJÁLFSBJARGAR LSF, LEIÐIR LISTA FRJÁLSLYNDA FLOKKSINS Í SUÐVESTURKJÖRDÆMI. Kolbrún Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar lsf, leiðir lista Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi. Kolbrún á að baki tuttugu og fimm ára feril sem bankaútibússtjóri, m.a. á Raufarhöfn, Hellissandi og í Ólafsvík, byggðum þar sem sjávarútvegurinn skiptir sköpum fyrir atvinnulífið. Kolbrún er búsett í Kópavogi. Kolbrún Stefánsdóttir býr að reynslu sem nýtist þjóðinni best á Alþingi. Kjósum okkur að… • Skattleysismörk hækki strax í 150.000 kr. hjá þeim tekjulægstu. • Lækka skuldir heimilanna, burt með verðtrygginguna. • Aldraðir og öryrkjar geti haft 1.000.000 kr. tekjur án bóta- skerðingar og að tekjutenging við maka verði afnumin. • Lífeyrisgreiðslur beri 10% skatt líkt og fjármagnstekjur. „Kópavogsdagarnir eru að byrja á laugardaginn og þá verður Emiliana Torrini með tvenna tón- leika á laugardaginn. Hún mun koma fram með Kársnesskórnum sem hún er fyrrverandi meðlim- ur í,“ segir Kristín Kristjánsdótt- ir, kynningarstjóri Salarins, og bætir því við að tónleikarnir verði klukkan 16 og 20. „Næstu fjórir tónleikar verða hluti af þessari Menningarhá- tíð Kópavogs. Það verða djass- tónleikar á sunnudaginn þar sem flutt verður tónlist eftir Sigfús Halldórsson. Reynir Sigurðsson, Jón Páll Bjarnason og Gunnar Hrafnsson ætla að flytja verk eftir hann,“ segir Kristín. Tónleikar Víkings Heiðars Ólafssonar hinn 11. maí munu marka lok Kópavogsdaganna og segir Kristín að það séu biðlistar á tónleikana hjá honum. „Hann er eitt af undrabörnunum í tónlist og útskrifaðist frá Juilliard í fyrra.“ Tíbrá tónleikaröð Emiliana Torrini er með tvenna tónleika í Salnum í Kópavogi í tengslum við Kópa- vogsdaga sem hefjast um helgina.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.