Fréttablaðið - 04.05.2007, Síða 82
Einar Jóhannesson klarinettuleik-
ari er meðal þeirra sem standa
að útgáfu hljómdisks til styrktar
munaðarlausum börnum í Kitezh-
þorpinu í Rússlandi. Diskurinn
inniheldur verk eftir Beethoven,
Brahms og Schumann en þar leik-
ur Globalis-sinfóníuhljómsveitin
undir stjórn stofnanda sveitarinn-
ar, Konstantin Krimets, verk Beet-
hovens ásamt píanóleikaranum
Martin Berkofsky en hann leik-
ur síðan ásamt Einari Jóhannes-
syni tvær sónötur Brahms og þrjú
„fantasíustykki“ eftir Schumann.
Kitezh-verkefninu var komið
á fót árið 1992 til hjálpar munað-
arlausum börnum í Rússlandi en
þorpið er í nágrenni Moskvu. Þar
búa nú börn á fósturheimilum
ásamt kennurum, læknum, bænd-
um, listamönnum og sálfræðing-
um en árlega heimsækja tugir
manna þorpið og vinna þar sjálf-
boðastarf. Bakgrunnur þessara
vanræktu barna er afar misjafn
og oft eru þau fórnarlömb ofbeld-
is. Verkefninu er ætlað að veita
þeim skjól og tækifæri sem ekki
bjóðast á hliðstæðum stofnunum
þar í landi og hafa aðferðir hug-
sjónafólksins í Kitezh borið góðan
árangur.
Upptökurnar voru gerðar í
Moskvu og gaf listafólkið vinnu
sína til þessa verðuga málefnis.
Styrkur í austurátt
Kl. 12.00
Málþing um stjórnarmyndanir á vegum Sagn-
fræðingafélags Íslands, Stofnunar um stjórn-
sýslu og stjórnmál og Morgunblaðsins. Guðni Th.
Jóhannesson, Helgi Skúli Kjartansson, Agnes
Bragadóttir og Stefanía Óskarsdóttir ræða um
horfurnar í komandi kosningum. Oddi, stofa 101.
Landsfjórðungar takast
á í fjölbreyttu framboði
listaverka þessa dagana: í
Stykkishólmi opnaði Roni
Horn Vatnasafn sitt í gær
og norður á Akureyri var
ekki smærra verk erlends
listamanns opinberað.
Á morgun verður opnuð í Lista-
safninu á Akureyri yfirlitssýning
á jarðlistaverkefni Andrews Rog-
ers, Lífstakturinn.
Landlist hefur lengi verið mik-
ilvæg grein innnan sjónlistanna
enda stendur hún á fornum meiði.
Við hliðina á rúnaristum og mál-
verkum á stein eru til úr fornöld
risastórar myndir sem þekja stór
svæði og verða vart greind í heild
sinni nema úr loft.
Ástralski skúlptúristinn Andr-
ew Rogers hefur um nokkurra
ára skeið lagt stund á verk af
þessu tagi: með risastórum grjót-
görðum sem hann kallar á enskri
tungu geoglyphs eða jarðrúnir.
Hann lætur sér ekki starfsstöð í
einu landi duga heldur vinnur að
verki sem teygir sig um alla jarð-
arkringluna. Það er í tólf þáttum
og nú eru sjö orðin að veruleika,
þar af eitt á Akureyri.
Ævintýrið hófst í Arava-eyði-
mörkinni í Ísrael í mars 1999
þar sem hann reisti fjögur úti-
listaverk. Næst í röðinni var eitt
mesta þurrkasvæði jarðar, Ata-
cama-eyðimörkin í Chile, og fljót-
lega á eftir fylgdu Cerro Rico-
fjallahéruðin í Bólivíu, Sri Lanka,
You Yangs-þjóðgarðurinn í Ástr-
alíu, Akureyri og nágrenni sem
hann vann í september síðasta ár
og mánuði síðar Góbí-eyðimörk-
in í Kína. Í framtíðinni verða
steingarðar reistir á Indlandi,
í Bandaríkjunum, Bretlandi og
Austur-Evrópu. Þegar verkefn-
inu lýkur munu yfir 5.000 manns
í sex heimsálfum hafa lagt hönd
á plóginn. Samheitið á þessu jarð-
listarverkefni er Lífstakturinn
(Rhythms of Life) og samanstend-
ur hvert myndverk vanalega af
þremur steingörðum eða táknum.
Tvö táknin tengjast viðkomandi
svæði og af fornum meiði. Yfir-
leitt eru táknin í sjónmáli hvert
frá öðru. Flest eru reist utan al-
faraleiða.
Andrew Rogers hafði haft auga-
stað á Íslandi fyrir verkefni sitt.
Hann hefur átt gott samstarf við
heimamenn um staðarval fyrir
verkin þrjú enda verða slík mann-
virki ekki reist nema í samstarfi
við yfirvöld á hverjum stað. Bæði
súla Yoko Ono, Blind Pavilion eftir
Ólaf Elíasson og Áfangar eftir
Richard Serra setja stóran svip á
Viðey við Reykjavík. Eins er með
Macy eftir Paul MacCartney á
Héraði. Þessi útilistaverk verða
kennileiti í landslagi og draga að
sér gesti, bæði innlenda og er-
lenda, ef rétt er á haldið í kynn-
ingu. Eins og á öðrum stöðun var
gengið út frá því að reistar yrðu
þrjár táknmyndir, önnur tákn-
myndin sem varð fyrir valinu er
Akureyrarörninn og hin forn rún
sem táknar Nú. Örninn er í Hlíð-
arfjalli, rúnin Nú efst á Vaðla-
heiði og Lífstakturinn í Fálkafelli.
Úr góðri fjarlægð má auðveldlega
greina táknin sem eru komin til að
vera; þegar verkunum var lokið
leigði Rogers þyrlu eins og venja
hans er og lét skrásetja garðana
með aðstoð Páls Stefánssonar
ljósmyndara. Fimmtán barnshaf-
andi konur á Akureyri sem aug-
lýst var eftir voru ljósmyndaðar í
bak og fyrir ofan á Lífstaktinum
og létu þær ekki hitastigið, fimm
gráður, aftra sér frá því að veita
afkvæminu hlutdeild í ódauðlegu
listaverki. Sýningin í Listasafn-
inu á Akureyri er fyrsta almenna
yfirlitssýningin á verkefninu.
Listasafnið á Akureyri hefur
gefið út 140 síðna bók um jarð-
listaverkefnið Lífstaktinn og
framkvæmd þess í Ísrael, Chile,
Bólivíu, Sri Lanka, Ástralíu, Ak-
ureyri og Kína.
Þetta er fyrsta bókin þar sem
verkefninu eru gerð heildræn
skil og fer hún í alþjóðlega dreif-
ingu. Greinarhöfundar eru Hann-
es Sigurðsson, listfræðingur og
forstöðumaður Listasafnsins, og
hinn virti bandaríski gagnrýnandi
Lilly Wei.
Tveir ástralskir kvikmynda-
tökumenn fylgdu Rogers eftir
hvert fótmál við gerð verkanna
þriggja á Akureyri, en gerðar hafa
verið heimildarmyndir um hvert
og eitt þessara verkefna hans.
Afraksturinn er hálftíma mynd
um gerð verkanna og mannlífið á
Akureyri og verður hún frumsýnd
í Sjónvarpinu á uppstigningardag,
fimmtudaginn 17. maí kl. 19.35.
Þá hefur Discovery Channel fest
kaup á þáttunum og verða þeir
teknir til sýninga um allan heim.
Sýningin stendur uppi í Lista-
safni Akureyrar til 24. júní.