Fréttablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 80
Íþjóðfélagsumræðunni er oftar en ekki talað um „þær þjóðir sem Ís-
lendingar vilja bera sig saman við“.
Hingað til hef ég ekki heyrt minnst
á Aserbaídsjan í þeim flokki en upp
á síðkastið hefur þó komið í ljós
að Íslendingar eiga ýmislegt sam-
eiginlegt með Aserum. Við erum í
öðru sæti á eftir þeim á lista yfir
þær þjóðir sem stela mestum hug-
búnaði og nú deilir íslenska karla-
landsliðið í knattspyrnu sæti með
því aserska á styrkleikalista FIFA.
Við ættum kannski að fara að tala
um þá sem „frændur okkar“ við
Kaspíahaf.
landsliðið dúsir í 109.
til 110. sæti á styrkleikalistanum og
hefur aldrei verið neðar. Það er þó
huggun harmi gegn að frá því á 10.
áratugnum hafa tugir ríkja hlotið
sjálfstæði, þar á meðal Aserbaíd-
sjan, þannig að hlutfallslega erum
við sennilega betur sett en þá. Það
þykir hins vegar ekki boðlegt að
eyríki sem telur 300 þúsund sálir
eigi álíka gott landslið í fótbolta og
átta milljóna þjóð í Suðvestur-Asíu.
Þetta hugarfar má í besta falli kalla
stórlæti, í því versta afneitun.
rímar betur við
mínar hugmyndir. Líklega er það
ekki óáþekkt hlutskipti að vera eld-
heitur stuðningsmaður íslenska
landsliðsins og að eiga helgar-
pabba sem á við drykkjuvandamál
að stríða. Hvort tveggja veldur ei-
lífum vonbrigðum en þegar maður
er við það að gefa upp vonina sýnir
liðið hvers það er megnugt á góðum
degi. Jafntefli við Frakka er ígildi
þess að fá fjarstýrðan bíl, ferð í
Húsdýragarðinn og McDonald‘s að
lokinni bíósýningu um sömu helgi.
Landsliðið er allt í einu besti pabbi
í heimi. Þangað til í næsta leik. Það
getur ekki haldið hreinu og fellur.
eru tveir kostir í stöðunni og
báðir illir: Hinn fyrri er að leita á
náðir AA-fræðanna; snúa baki við
liðinu og láta það hjálpa sér sjálft.
Það er svo annar handleggur hvort
tólf spora kerfið sé heppilegt fyrir
íþróttalið. Níunda skrefið yrði að
minnsta kosti frekar tímafrekt þar
sem strákarnir þyrftu að hringja í
hvern einasta landsmann og biðj-
ast afsökunar á jafnteflinu við
Liechtenstein. Seinni kosturinn, og
sá illskárri, væri að horfast í augu
við að Ísland verður aldrei yfir-
burðaþjóð í fótbolta. Það er ómak-
legt að vera reiður út í einhvern
hvers eina sök er að standa ekki
undir óraunsæjum væntingum.
þurfa að læra að
velja sér orrustur eftir efnum. Það
er ástæðulaust að láta það trufla
sig þótt við deilum sæti með Aser-
um á styrkleikalista FIFA, enda
ekkert sem segir að við hljótum að
vera betri í fótbolta en þeir. Aftur
á móti höfum við allt til alls til að
stela miklu meiri hugbúnaði. Hirð-
um efsta sætið af Aserbaídsjan sem
fyrst.
Íslandbaídsjan
www.uu.is
Ferðaskrifstofa
Innifalið: Flug, fl ugvallarskattar, íslensk fararstjórn og gisting með morgunverði. Verð miðast við að bókað
sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega.
PARQUE DEL SOL HÓTEL GALA
Verðdæmi: 49.984,-
- á mann m.v. 2 með 2 börn í viku.
Brotttför 9. janúar. Verð á mann m.v. 2 fullorðna 62.737
Verðdæmi: 67.287,-
- á mann m.v. 2 fullorðna.
Brotttför 9. janúar.
Í vetur verður fl ogið til Tenerife tvisvar
í viku, enda skín sólin þar fl esta daga
ársins. Hvergi í heiminum er jafn lítill
hitamunur á sumri og „vetri“ og
teljast 15 gráður vera með því allra
kaldasta sem gerist. Eyjuna sjálfa
þarf vart að kynna: Furuskógar og
blómahöf í norðurhlutanum,
magnaðar sólarstrendur í suður-
hlutanum og frábær hótel þar sem
öll fjölskyldan nýtur sín. Komdu til
Tenerife og skemmtu þér meira.
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
Stórglæsilegt 4 stjörnu hótel, vel staðsett á Playa
de las Americas og í fi mm mínútna göngufjarlægð
frá ströndinni. Mjög góð sólbaðsaðstaða við
hótelið, tvær stórar sundlaugar, skemmtileg
barnalaug og afar góð aðstaða fyrir börnin.
Fyrsta fl okks íbúðahótel, vel staðsett í einungis
300 metra fjarlægð frá strönd. Rúmgóðar íbúðir
sem eru byggðar umhverfi s glæsilegt sundlauga-
svæði. Frábær staður fyrir fjölskylduna þar sem
öll aðstaða og þjónusta er til fyrirmyndar.
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is