Fréttablaðið - 16.08.2007, Qupperneq 4
Sveitarstjórn
Grímseyjarhrepps er allt annað
en ánægð með nokkur atriði sem
fram koma í greinargerð Ríkis-
endurskoðunar um kaup og end-
urnýjun á Grímseyjarferju.
Að sama skapi er Ríkisendur-
skoðun allt annað en ánægð með
gagnrýni Grímseyinga og „getur
á engan hátt fallist á þá efnis-
legu gagnrýni sem fram kemur í
yfirlýsingu sveitarstjórnarinn-
ar.“
Í yfirlýsingu sveitarstjórnar
frá á þriðjudag er því vísað á
bug að Grímseyingar hafi ekki
gert athugasemdir við að ferjan
Oleain Arann skyldi keypt til að
leysa eldri Grímseyjarferju af
hólmi. Þvert á móti hafi vilji
þeirra komið skýrt fram í sam-
tölum, símtölum og tölvupóst-
um. Engu að síður kemur fram í
yfirlýsingu Grímseyinga að þeir
féllust á kaupin.
Grímseyingar mótmæla að í
greinargerð Ríkisendurskoðun-
ar sé vitnað til síðbúinna krafna
þeirra um endurbætur á skipinu.
Þeir viðurkenna þó að hafa sett
fram kröfur eftir að ákveðið var
að ráðast í kaupin en að þær hafi
aðallega snúist um öryggisbún-
að, aðbúnað farþega og innra
skipulag.
Í athugasemd Ríkisendurskoð-
unar segir ljóst að töluverður
hluti þeirra aukaverka, sem nú
standa yfir, á eftir að vinna eða
taka afstöðu til, sé til kominn
vegna krafna Grímseyinga eftir
að kaup voru gerð og verksamn-
ingur undirritaður. Er meðal
annars nefnt að Grímseyingar
hafi krafist endurnýjun á þiljum
og innréttingum íbúða áhafnar,
kýraugu á neðri farþegasal,
plasthurðir í efri farþegasal,
fullkomið sjónvarps- og hljóð-
kerfi og flugstóla í efra farþega-
rými.
Grímseyingar vildu
flugstóla á efra þilfar
Sveitarstjórn Grímseyjarhrepps og Ríkisendurskoðun greinir á um hvort Gríms-
eyingar hafi lýst sig hlynnta kaupum á nýju ferjunni eða ekki. Ríkisendurskoð-
un segir töluverðan hluta aukaverka til kominn vegna krafna Grímseyinga.
Hrönn Greips-
dóttir hefur verið ráðin fram-
kvæmdastjóri SPRON Factoring.
Hrönn starfaði áður sem fram-
kvæmdastjóri
Hótel Sögu frá
árinu 1998 til 2007.
Þar áður starfaði
Hrönn hjá
Ferðaskrifstofu
Úrvals-Útsýn frá
árinu 1987 til 1995.
Hrönn er
viðskiptafræðing-
ur frá Háskóla Íslands og lauk
MBA í fjármálafræðum frá CASS
1997. Hrönn er gift Sigurði
Skagfjörð Sigurðssyni og eiga þau
þrjár dætur.
SPRON Factoring er í eigu
SPRON, Sparisjóðs Keflavíkur og
annarra smærri fjárfesta.
Nýr framkvæmdastjóri:
Hrönn til SPRON
Factoring
Hæstiréttur hefur fellt
úr gildi dóm Héraðsdóms Reykja-
víkur þess efnis að kröfu hjúkrun-
arfræðings um ógildingu á
tilfærslu hans í starfi skyldi vísað
frá. Er héraðsdómi gert að taka
ógildingarkröfuna til efnislegrar
meðferðar. Hjúkrunarfræðingur-
inn, sem er kona, hafði verið
færður til í starfi á Landspítala
háskólasjúkrahúsi eftir að karlkyns
samstarfsmaður hafði kvartað
undan kynferðislegri áreitni.
Dómkröfur konunnar voru þær að
ógild yrði sú ákvörðun að færa hana
til í starfi. Þeim þætti vísaði
héraðsdómur frá, en gerði LSH að
greiða henni hálfa milljón króna.
Dómur héraðs-
dóms ógiltur
Öryrkjabandalagið
fer fram á að úttekt verði gerð á
aðgengi hreyfihamlaðra um borð
í nýju Grímseyjarferjunni og að
samráð verði haft
við bandalagið um
nauðsynlegar
endurbætur.
Stjórnvöldum
ber að tryggja
hreyfihömluðum
greiðan aðgang að
ferjum á borð við
Grímseyjarferj-
una. Í skilningi
reglugerðar þar
að lútandi eru
hreyfihamlaðir þeir sem eiga í
sérstökum erfiðleikum með að
nota almenningssamgöngur, til
dæmis, aldraðir, fatlaðir, þungað-
ar konur og fólk með lítil börn.
Aðgengi og ör-
yggi fyrir alla
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Gæða sængur
og heilsukoddar.
Kristján Möller sam-
gönguráðherra og Jón Rögnvalds-
son vegamálastjóri hafa báðir efa-
semdir um að rétt sé að
ferjusiglingar á vegum ríkisins
heyri undir Vegagerðina.
„Ég er hugsi yfir hvort ferjur
eigi að vera vistaðar hjá Vega-
gerðinni, hvort þeim sé ekki betur
komið hjá Siglingastofnun,“ sagði
Kristján Möller á þriðjudag og
bætti við að flutningur mála-
flokksins verði tekinn til skoðun-
ar.
„Þetta er réttmæt spurning og
við höfum lengi velt þessu fyrir
okkur,“ segir Jón Rögnvaldsson.
„Ferjureksturinn er mjög annars
eðlis en það sem við fáumst við
svona almennt þannig að þetta er
mál sem er virkilega vert að hug-
leiða.“
Siglt er á sex ferjuleiðum á
vegum ríkisins og á ríkið þrjár
ferjur; Herjólf, Hríseyjarferjuna
Sævar og Grímseyjarferjuna
Sæfara.
Ferjusiglingar hafa verið á for-
ræði Vegagerðarinnar í um fimmt-
án ár en heyrðu áður undir fjár-
málaráðuneytið.