Fréttablaðið - 10.11.2007, Page 8
Sjónvarpið og Björgólfur Guð-
mundsson, stjórnarformaður Landsbanka
Íslands, hafa gert samkomulag um að standa
saman að framleiðslu leikins íslensks
sjónvarpsefnis á næstu þremur árum, og
hyggjast verja 200 til 300 milljónum til þess á
tímabilinu.
Áherslan verður á sjónvarpsþáttaraðir, og
er gert ráð fyrir því að Sjónvarpið muni
kaupa tvær þáttaraðir á ári af sjálfstæðum
framleiðendum, segir Páll Magnússon,
útvarpsstjóri RÚV. Sjónvarpið mun verja
ákveðinni upphæð til hvers verkefnis, og
mun Björgólfur tvöfalda þá upphæð
samkvæmt samkomulagi sem undirritað var í
gær.
Leikið íslenskt sjónvarpsefni er sú
listgrein sem hefur orðið hvað mest útundan,
enda afar dýr í framleiðslu, segir Páll. Því sé
það fagnaðarefni að tekist hafi að fá öflugan
stuðning við verkefnið.
„Ég sé fyrir mér að við séum ekki bara að
framleiða þetta fyrir íslenska sjónvarpið, við
ætlum í útrás líka. Við erum að búa til sterka
atvinnugrein með þeim aðilum sem hafa lagt
þetta nám fyrir sig,“ sagði Björgólfur á
kynningarfundi í gær.
Undir það tók Þórhallur Gunnarsson,
dagskrárstjóri Sjónvarpsins. „Við viljum
skila þessu til íslenskra áhorfenda, og selja
þetta utan. Þetta er okkar markmið, við
viljum verða góð í þessu. [...] Vonandi verðum
við eins og Danirnir, farin að keppa um
Emmy-verðlaunin einhvern tímann síðar.“
Stefna á útrás með íslensku þættina
NÓVEMBER
TILBOÐ
TIL SAFNKORTSHAFA
Safnkortstilboðin færðu á næstu
N1 þjónustustöð.
Upplýsingar um Safnkortið og Safnkortstilboðin
er að finna á www.n1.is.
Frábær mynd á DVD með þeim Tobey Maguire
og Kirsten Dunst í aðalhlutverkum.
490 kr.
auk 1.000 punkta
Safnkortshafar
borga aðeins
Punktar
gilda tvöfalt
x2
Spiderman 3 DVD
Vr. 89159406 Fullt verð: 2.490 kr. Tilboðið gildir til 31.12. 2007 eða á meðan birgðir endast.
Remington sléttujárn
Hágæða keramik og teflon sléttujárn sem hitnar á 60 sekúndum.
Sléttujárnið er með tvöfaldri vörn og hitnar í 200°C.
Snúningsvörn á snúru, frálagsstandur, upphengilykkja og
hitaþolinn geymslupoki með sér hólfi fyrir snúru.
2.490 kr.
auk 1.000 punkta
Safnkortshafar
borga aðeins
Punktar
gilda þrefalt
x3
Fullt verð: 5.490 kr. Tilboðið gildir til 31.12. 2007 eða á meðan birgðir endast.Vr. 85069591
Lítill og nettur Winsta ferðageislaspilari sem
spilar CD/MP3/CD-R/RW. Spilarinn er með
LCD skjá og hristivörn.
0 kr.
auk 1000 punkta
Safnkortshafar
borga aðeins
Punktar
gilda fjórfalt
x4
Ferðageislaspilari
Fullt verð: 3.990 kr. Tilboðið gildir til 31.12. 2007 eða á meðan birgðir endast.Vr. 81835532
Vr. 82158072
Hara systur CD
0 kr.
auk 1.000 punkta
Safnkortshafar
borga aðeins
Fullt verð: 1.990 kr. Tilboðið gildir til 31.12. 2007 eða á meðan birgðir endast.
Frábær geisladiskur frá HARA systrum en þær
hafa unnið hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar.
Á þessum geisladisk er að finna lög eftir
marga af helstu lagasmiðum landsins.
Punktar
gilda tvöfalt
x2
Bara
x3
Búðu til þitt eigið jólakort, veldu útlit á
www.hanspetersen.is og settu inn texta og mynd.
Hans Petersen framkallar 40 kort í stærðinni 10x20 cm
á hágæða Kodak pappír. Öllum kortum fylgir umslag.
2.490 kr.
auk 1000 punkta
Safnkortshafar
borga aðeins
Sérprentuð jólakort 40 stk.
Fullt verð: 5.490 kr. Tilboðið gildir til 31.12. 2007 eða á meðan birgðir endast.Vr. 85060623
Punktar
gilda þrefalt
Kynjakvótar og staða
jafnréttis á Norðurlöndum voru
umræðuefni í upphafi Kynja-
fræðiþings á vegum rannsóknar-
stofu í kvenna- og kynjafræðum.
Spurt var hvort kynjakvótar gætu
reynst hjálpartæki í stöðnuðu
jafnréttisumhverfi Norðurlanda.
Drude Dahlerup, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskólann í
Stokkhólmi, hefur rannsakað
kynjakvóta víða um heim og telur
að þeir geti hjálpað, þótt þeir
valdi ekki byltingu í jafnréttis-
málum.
„Ég legg ríka áherslu á að konur
eigi jafnmarga fulltrúa og karlar á
þingi og annars staðar. Ég geri það
af lýðræðislegum ástæðum og af
því að konur í háum embættum
eru mikilvægar fyrirmyndir,“
sagði Dahlerup.
Þorgerður Einarsdóttir, lektor í
kynjafræði við Háskóla Íslands,
sat í pallborði með Dahlrup og hún
benti á að það hefði lítil áhrif á
jafnréttisbaráttuna ef konurnar
sem veljast í embætti vinna ekki
markvisst að málstað kvenna. Þá
myndu kynjakvótar helst gagnast
sjálfstæðiskonum, en þær væru
ekki þekktar fyrir að vinna að
hagsmunum kvenna. Dahlerup er
sammála því að femínískar áhersl-
ur séu mikilvægar.
„Ég tel að framgangur femín-
isma sé mikilvægur en ég tel líka í
lagi að skilja þessi markmið í
sundur. Karlar ættu til dæmis að
hjálpa til við að ná femínískum
markmiðum.
Mitt markmið er fyrst og fremst
að fjölga konum, líka íhaldssöm-
um konum, því ég tel að þær eigi
rétt á því að segja það sem þær
vilja segja, jafnvel þótt það hagn-
ist ekki öðrum konum. Ef þær
komast ekki að, þá höfum við bara
íhaldssama karla, og hvort ætli sé
betra? Ég hef trú á því að konur
breyti umræðunni og breyti við-
horfum karlanna sem þær starfa
með.“
Dahlerup telur að kynjakvótar í
stjórnmálaflokkum muni gefa
góða raun á Norðurlöndum, þá
ekki síst Danmörku og Íslandi,
sem hún kallar glerþakslöndin.
Þar hefur minnstur árangur náðst
og á Íslandi hefur orðið afturför.
„Það mikilvægasta er að staðna
ekki. Norðurlöndin eru fyrirmynd-
in og allir vænta þess að við gerum
eitthvað, að við finnum lausn á
kynbundnum launamuni svo dæmi
sé tekið. Við höfum haft lög um
launajafnrétti í tugi ára en fátt
hefur breyst. Við höfum setið föst
í stjórnsýslulegum útfærslum en
vantar nýja kvennahreyfingu,
grasrótarhreyfingu sem kemur
hlutunum aftur af stað.“
Afturför í íslenskri
jafnréttisbaráttu
Á kynjafræðiþingi var rætt um stöðnun jafnréttisbaráttunnar á Norðurlöndun-
um. Sífellt fleiri ríki taka fram úr hægum framfaraskrefum Norðurlanda. Próf-
essor í stjórnmálafræði telur kynjakvóta geta komið ríkjunum aftur á skrið.
Hver hefur afþakkað laun
fyrir leik sinn í Stundinni
okkar?
Hvað heitir skólinn í Finn-
landi þar sem byssumaður
skaut átta til bana?
Hver hefur verið útnefndur
besti leikmaður fyrstu sjö
umferðanna í úrvalsdeild karla
í handbolta?
Hæstiréttur hefur ógilt úrskurð Héraðsdóms
Vestfjarða í máli karlmanns vegna þess að hann kom aldrei
fyrir þann dómara sem dæmdi í málinu. Maðurinn var sakfelld-
ur í héraðsdómi fyrir að hafa ruðst inn á heimili konu og
tveggja stúlkna, káfað á annarri stúlkunni og reynt að klæða
hina úr buxunum.
Aðalmeðferð málsins fór fram í héraðsdómi í janúar í fyrra,
en brotin áttu sér stað árið 2002. Héraðsdómarinn fór hins
vegar í frí áður en dómur var kveðinn upp og fór skýrslugjöf
og málflutningur fram að nýju hjá dómaranum sem tók við
málinu. Það var gert í janúar á þessu ári.
Maðurinn sem ákærður var kaus að mæta ekki til þinghalds-
ins þegar það var tekið fyrir öðru sinni. Að honum fjarstöddum
var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi og auk þess að greiða
400.000 krónur í skaðabætur og tæplega 900.000 krónur í
sakarkostnað.
Úrskurðinum var áfrýjað til Hæstaréttar, og krafðist maður-
inn þess að málinu yrði vísað frá héraðsdómi eða að dómurinn
yrði ómerktur og vísað aftur í hérað. Hæstiréttur komst að
þeirri niðurstöðu að ekki hefði mátt fella dóm á málið án þess að
ákærði hefði komið fyrir þann dómara sem dæmdi í málinu.
Dómurinn var því ómerktur og vísað aftur til héraðs.
Kom aldrei fyrir dómarann