Fréttablaðið - 10.11.2007, Side 48
Tunguháls 15
sími: 564 6070
www.kvarnir.is
Tröppur og stigar
Iðnaðartröppur
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Swopper
vinnustóllinn
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Ánægja við leik og störf
• Fæst í ýmsum litum
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
„Ég hef dundað mér við húsgagna-
hönnun frá því ég byrjaði að læra
arkítektúr en formlega byrjaði ég
fyrir um tíu árum. Ég kláraði arkí-
tektanámið árið 1990 en ég lærði
í Kaupmannahöfn og Ósló. Upp-
haflega ætlaði ég mér eiginlega
að læra iðnhönnun og hafði lengi
langað að læra að hanna bíla en svo
kom raunveruleikinn til skjalanna
og ef maður ætlar að búa á Íslandi
þá er bílahönnun ekki mjög raun-
hæf,“ segir Sigurður og bætir við:
„Það má segja að ég sé í iðnhönn-
un því ég hanna nú fleira en hús-
gögn. Ég hanna til dæmis lampa
og í raun allt sem tengist lokuðum
rýmum bæði úti og inni.“
Sigurður segir kíminn að hann
sé eiginlega orðinn eins og mubla
hjá Källemo sem framleiðir
megnið af húsbúnaði hans. Hönnun
þessa fyrirtækis er frekar framúr-
stefnuleg eða „avant garde“ eins
og það kallast. Aðrir þekktir hönn-
uðir hjá fyrirtækinu eru Jonas
Bolin og Mats Theselius. „Þetta
eru ekki hversdagshlutir sem Käll-
emo býður upp á. Þetta er framúr-
stefnuleg hönnun sem er til þess
gerð að ögra bæði augum og öðrum
skynfærum,“ segir Sigurður sem
notar húsgögn mikið sem rann-
sóknarvinnu.
„Ég er náttúrlega menntaður
arkítekt og þá er maður upptek-
inn af burðarþoli og konstrúktíf-
um raunveruleika, það er hvernig
hlutirnir hanga saman og að það
sé einhver heildstæð hugmynd í
tæknilegri útfærslu og burðar-
virki. Húsgögnin hafa því verið
mér hugleikin því þetta er mæli-
kvarði sem ég ræð við að smíða
sjálfur. Þess vegna hef ég notað
húsgögn mikið í rannsóknarvinnu
á formi,“ útskýrir Sigurður áhuga-
samur. Sigurður notar ýmiss konar
efnivið og segist oft nota það sem
hendi er næst. „Ég hef verið frem-
ur fjölþreifinn á því sviði. Ég
hef hins vegar töluverða reynslu
af smíðum og er eiginlega alinn
upp á trésmíðaverkstæði og það
hefur því legið beint við að ég noti
timbur. Annars hef ég notað mikið
stál og plast og í rauninni bara
allt mögulegt,“ útskýrir Sigurð-
ur og bætir við að hann hafi mikla
þörf fyrir að prófa sig áfram. Sem
dæmi um sérstaka notkun á efni-
viði má nefna lampa eftir Sigurð
sem kallast „Take away“ og hlotið
hefur mikla útbreiðslu.
„Ég saumaði hann sjálfur úr
veggjastriga. Þetta er trefja-
strigi sem notaður er mikið á
Norðurlöndunum og er límd-
ur upp á gifsveggi og býr til
strúktúr í vegginn. Ég kom ein-
hvern tíma inn í málningarvöru-
verslun og datt í hug að það gæti
verið sniðugt að búa eitthvað til
úr þessu vegna þess að það eru
glertrefjar í þessu sem gera það
að verkum að ljósleiðnin verður
mjög skemmtileg. Þetta er eins
og hríspappír nema ekki eins
eldfimt þannig að efnið hent-
ar betur í lampa,“ segir Sigurð-
ur, sem er mjög hugvitssamur í
efnisnotkun. Hann hefur einnig
notað plex sem eru sléttar plast-
plötur og bregður þeim yfir stóls-
etu eins og peysu. „Að öllu jöfnu
er byrjað á að búa til eitthvert
áhald til þess að steypa setuna en
það kostar tugi milljóna. Með því
að nota plex getur maður búið til
setuna með dúkahnífi,“ segir Sig-
urður, sem hugsaði setuna líka
þannig að fólk gæti auðveldlega
skipt ef það vildi til dæmis annan
lit eða ef setan myndi skemmast.
Hönnun Sigurðar er í raun tví-
skipt. Það er annars vegar fram-
úrstefnuleg hönnun þar sem
hlutirnir eru framleiddir í tak-
mörkuðu upplagi og eru frekar
safngripir sem seldir eru dýrum
dómum og hins vegar iðnhönnun
þar sem Sigurður býr til hluti til
hversdagsnotkunar. „Mín hönnun
er praktísk. Ef svo væri ekki
þá væri þetta ekki hönnun held-
ur listaverk. Það sem mér finnst
áhugavert við hönnun er að hún
nær betur athygli fjöldans og því
finnst mér gaman að gera hluti
sem ögra fólki á ýmsa vegu,“ segir
Sigurður, sem finnst þróunin hafa
verið í þá átt að listaverk séu oft
lokuð inni á söfnum og því bara
hluti fólks sem sér þau á meðan
hönnunin er meira í umtalinu.
„Ég er þeirrar skoðunar að ljótt
og illa hannað umhverfi geri fólk
að einhverju leyti verra því það
er eins og að þrífast í sjónræn-
um óþrifnaði. Mér finnst þó ekki
að öll heimili eigi að líta út eins
og einhver húsgagnaverslun. Fólk
á frekar að blanda saman gömlu
og nýju en það eru eðlilegustu og
skemmtilegustu heimilin,“ segir
Sigurður einlægur.
hrefna@frettabladid.is
Skynfærunum ögrað
Sigurður Gústafsson, arkítekt og húsgagnahönnuður, hefur notið mikillar velgengni erlendis
og þá sérstaklega á Norðurlöndunum. Hann hefur hlotið tvö helstu hönnunarverðlaun Norður-
landa, Bruno Mathsson-verðlaunin sænsku árið 2001 og Söderbergs-verðlaunin árið 2003.
Sigurður Gústafsson er nýfluttur með
vinnustofu sína í Mosfellsbæinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hið fræga „Take away” ljós útbúið úr
trefjastriga gefur frá sér skemmtilega
birtu.
Origami-stóllinn er einfaldur og stílhreinn. MYND/CURT EKBLOM
DNA-tímaritastandur sem lítur út eins
og litningur.
MYND/CURT EKBLOM
10. NÓVEMBER 2007 LAUGARDAGUR