Fréttablaðið - 10.11.2007, Page 52
hús&heimili
hér. Frekari uppbygging hverfisins
fer eftir því hvenær Björgun flyt-
ur með sínar höfuðstöðvar, en þá
mun bryggjuhverfið halda áfram
upp að Ingvari Helgasyni. Í milli-
tíðinni stendur þó til að reisa há-
hýsi hér lengra úti á tanganum svo
þar gæti leynst framtíðarheimili
okkar á sama góða staðnum,“ segir
Arnar Gauti. Hann saknar þess þó
að hafa ekki skóla og matvöruversl-
un í bryggjuhverfinu.
„Það vantar dálítið að geta ekki
labbað eftir nýlenduvörum í hverfis-
búðina, en hér er ekkert nema íbúðir.
Í upphafi var meiningin að hafa hér
lítið veitinga- og kaffihús og til þess
byggður sérstakur glerskáli, til
að sinna gestum og gangandi, sem
og sjófarendum sem legðu hér við
bryggjuna, en nú hefur glerskál-
anum verið breytt í íbúðir og ekk-
ert verður af þessum plönum. Það
finnst mér sorglegt því þetta hefði
getað virkað eins og í Nauthólsvík
þar sem fólk kæmi til að skoða sjáv-
arlífið og njóta útivistar í bland við
góðar veitingar,“ segir Arnar Gauti,
sem ásamt fjölskyldunni nýtur þess
hve stutt er í náttúru og fallegar
gönguleiðir í nágrenninu.
„Þetta eru rómantísk heimkynni
og yndislegt að labba um stígana
þar sem ekki heyrist niðurinn í bíla-
borginni, en bara gjálfrið í sjónum
og hljóðin í náttúrunni. Við njótum
þess mjög og förum ávallt í göngu-
túr undir Gullinbrú og meðfram
sjónum til barnamessu í Grafar-
vogskirkju á sunnudagsmorgnum,“
segir Arnar Gauti, sem þó vildi
ekki búa annars staðar í bryggju-
hverfinu en í þeim húsum sem næst
standa sjónum.
„Fyrir mér er bryggjuhverfið
þessi fremsti hluti; mér finnst
maður geta búið hvar sem er ef
maður er kominn aftast. Íbúðirnar
eru margar orðnar barn síns tíma,
og með mahóní í flestum innrétt-
ingum, en hvergi er eins brenglað
fasteignaverð og hér, því verðmæti
hefur aukist mjög síðan við keypt-
um,“ segir Arnar, sem þrátt fyrir
fagurt auga fyrir hönnun leggur
áherslu á fjölskylduvænt heimili
fram yfir ópersónulegan sýningar-
sal.
„Ég vil að heimilið sé stílhreint en
umfram allt notalegt og eðlileg um-
gjörð fyrir fjölskylduna. Ég er afar
heimakær og við Alla höfum yndi af
því að bjóða góðum gestum í mat.
Líf mitt snýst því um fjölskylduna,
heimilið og auðvitað vinnuna, en ég
er gríðarlegur pabbi og fer daglega
út með Natalíu París í hjólatúr, sund
eða annað, og gef mig heilshugar í
fjölskyldulífið í öllum mínum frí-
stundum.“ thordis@frettabladid.is
Framhald af bls. 6
Svarti fiskurinn Nemo nýtur félagsskapar stólafjölskyldu úr
hönnunarheimum við eldhúsborðið, en þar má hvílast á Maurn-
um eftir Arne Jacobsen, Ghost eftir Philippe Starck, Oscar-rókókó-
stólum og plaststól frá Ray & Charles Eames.
Þetta fallega málverk Valtýs Péturssonar frá 1952 áskotnaðist
Arnari Gauta frá miklum listaverkasafnara eftir lítilsháttar
viðvik. Málverkið er kóróna yfir Jazz-sófa frá Sancal úr Epal,
þar sem fjölskyldan á margar kósístundir saman.
Yndisfrítt prinsessuherbergi Natalíu
Parísar sem einnig nýtur þess að hafa
heimsfræga og virta hönnuði meðal
húsmuna. Arnar segir þau Öllu hafa
notið þess að gera herbergið sem
mestan ævintýraheim fyrir snótina, með
kristalsljósakrónu, málverki og litlum
útgáfum af Panton-stól og Sjöunni eftir
Arne Jacobsen.
„Draumahúsið mitt er húsið
sem karakterinn minn í Óvit-
um býr í en við erum einmitt að
sýna þá í Leikfélagi Akureyrar
um þessar mundir,“ segir leik-
arinn Guðjón Davíð Karlsson,
spurður um draumahúsið sitt.
„Þetta er einstaklega fallegt
hús og fullt af töfrum. Ég held
að það sé rosalega mikilvægt
að svoleiðis eiginleiki sé í hús-
inu sem ég ætla að búa í,“ segir
hann og bætir við. „Þar eru
líka alls konar kistur sem geta
geymt risastóra hluti, jafnvel
miklu stærri en kistan er sjálf
og það eru alls konar dósir sem
hægt er að tala í og hlusta svo á
í öðru herbergi, þannig að þetta
verður að vera algjört ævin-
týraheimili.“
Guðjón segir að húsið mætti
jafnvel alveg vera svona lítið
eins og á myndinni en þá væri
hluti töfranna sá að hægt væri
að búa í því þrátt fyrir smæðina.
„Þá væri líka ódýrara að kaupa
lóð fyrir það og hægt að troða
því hvar sem er,” segir Guð-
jón en hann segir þó aðalatriðið
vera að það sé rosalega huggu-
legt og fullt af töfrum. - sig
DRAUMAHÚSIÐ
Dreymir um töfrahús
Guðjón Davíð
Karlsson situr í miðju
draumahúsinu sínu
sem er fullt af töfrum
og huggulegheitum.
MYND/HEIDA.IS
„Li Bien“ jólakúlurnar
eru handmálaðar innan frá og
merktar með ártali. Tilvalin jólagjöf.
The Pier húsgagna- og gjafavöruverslunin
Komdu, sjáðu og upplifðu …
Smáratorgi 3 /201 Kópavogi /sími: 522 7860 /við hlið Toys’r’us
mánudagar til föstudagar 11:00 til 19:00 /laugardagar 10:00 til 18:00 /sunnudagar 12:00 til 18:00
10. NÓVEMBER 2007 LAUGARDAGUR8