Fréttablaðið - 10.11.2007, Side 72

Fréttablaðið - 10.11.2007, Side 72
Þegar Oasis varð frægari en Blur í Bretlandi flúði Damon til Íslands til að losna undan áreitinu. Hér var honum tekið með virktum, Ingvar Þórðarson bauð honum eins pró- sents hlut í Kaffibarnum til að aug- lýsa staðinn og Damon klæddist gömlum handboltatreyjum merkt- um Icelandair á tónleikum úti í heimi. Damon hefur haldið góðri tryggð við Ísland síðan. Svo vel leið honum hérna að hann lét byggja fyrir sig hús í Grafarvogi. Byggingaraðil- arnir voru reyndar ekki betri landkynning en svo að enn standa yfir málaferli vegna aukakostnaðar við bygginguna. Kanadískur geimfari með íslenskt nafn. Þegar Kanadamenn skutu geimskutlu upp í loftið fyrir ára- tug tóku Íslendingar að sjálfsögðu eftir þessum manni og hann varð þjóðhetja í kjölfarið. Jafnvel þótt hann talaði ekki stakt orð í íslensku eða hefði heimsótt landið. En hann kíkti reyndar við í kjölfarið. Vinir og óvinir Íslendinga Fyrir skemmstu komst hálfíslenskur maður í heimsfréttirnir fyrir tilraun til fjárkúgunar við bresku krúnuna. Þetta vakti vita- skuld mikla hneykslan og umræðu meðal þjóðarinnar og flestir virtust sammála um að maðurinn gæti nú vart talist Íslending- ur. Þannig virðast kaupin á eyrinni líka gerast; Íslendingum sem hneyksla á erlendri grundu er afneitað, og misjafnt er hvernig erlendum gestum er tekið. Fréttablaðið rifjaði upp nokkrar hetjur og skúrka sem tengjast þjóðinni. Sú frétt fór eins og eldur í sinu um heimsbyggðina fyrir tveimur vikum að Íslendingur sæti í gæslu- varðhaldi í Bretlandi eftir að hafa reynt að kúga fé út úr meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar. Hér var um að ræða Paul Adalsteins- son, sem reyndar kallar sig í dag Ian Strachan, sem allt sitt líf hefur búið í Bretlandi en á íslenskan föður. Paul virðist litlu sambandi hafa haldið við Ísland og því snerti fréttin landsmenn ekki eins mikið og ella. En þetta var samt sem áður heitasta umræðuefnið á kaffistof- unum þá vikuna. Lögfræðingur Pauls, Giovanni Di Stefano, er auk þess mikill Íslandsvinur. Hann kvaðst í samtali við Fréttablaðið hafa aðsetur í Vestmannaeyjum og eiga í viðskiptum við Glitni. Danski fótboltamaðurinn sem er svo heppinn, eða óheppinn eftir því hvernig á það er litið, að eiga íslenskan afa. Þegar Tomasson varð þekkt nafn í boltanum reyndu margir íslenskir fjölmiðlar að fá hann til að ræða um íslenskan upp- runa sinn. Hann væri jú eftir allt Íslendingur. Tomasson gaf ekki mikið fyrir þetta, var snubbóttur í svörum og vildi lítið kannast við íslenskan uppruna sinn. Síðan hefur landinn lítið gefið fyrir þennan fúllynda Dana. Umdeildi skáksnillingurinn Bobby Fisher virtist ekki eiga sér við- reisnar von þegar hópur Íslend- inga hóf að berjast fyrir lausn hans úr varðhaldi í Japan í árs- byrjun 2005. Áður en langt um leið hafði Alþingi hins vegar samþykkt að veita honum ríkisborgararétt af mannúðarástæðum og Fischer var flogið hingað til lands í mars sama ár. Mikill fjölmiðlasirkus var við komu hans hingað, sirkus sem venjulegt fólk áttaði sig engan veginn á. Koma Fischer hingað til lands virðist ekki hafa snert almenning að nokkru marki, fæst- ir verða varir við skáksnillinginn sem hefur sig ekkert í frammi. Ómögulegt virðist vera að fá manninn til að tefla, sem í augum margra hefði kannski verið það eina sem réttlætti að honum var veittur ríkisborgararéttur. Það var í marsmánuði árið 2004 sem DV sagði fyrst frá raunum Arons Pálma Ágústssonar, íslensks pilts um tvítugt sem setið hafði um árabil í fangelsi í Texas fyrir kynferðisbrot sem hann framdi sem barn. Í kjölfarið hóf RJF-hóp- urinn, sem unnið hafði að lausn Bobbys Fischer, tilraunir til að fá Aron framseldan heim. Það reynd- ist óvinnandi vígi, stjórnvöld í Texas töldu afbrot hans svo alvar- leg að ekki kæmi til greina að hann yrði framseldur. RJF-hópurinn studdi Aron því til háskólanáms sem hann gat stundað þegar hann var settur í stofufangelsi undir lok afplánunarinnar. Aroni var vel tekið við heimkomuna til Íslands í lok sumars. Fjölmiðlar fjölluðu á jákvæðan hátt um heimkomuna og Aron hefur lýst höfðinglegum móttökum sem hann hefur fengið. Misjafn sauður er þó í mörgu fé og fyrir skemmstu var ráðist á Aron í miðbæ Reykjavíkur. Hann slapp að mestu ómeiddur og er enn sátt- ur við lífið hér á landi. Kúbverskur handboltamaður sem flúði land og settist að á Íslandi. Gerði það gott með KA á Akureyri og fékk að endingu íslenskan rík- isborgararétt. Ekki leið á löngu þar til „Dúndranúna“, eins og hann var stundum kallaður, fór í atvinnumennsku til Þýskalands og ekki hefur spurst til hans í langan tíma. Indverska prinsessan átti í ára- löngu ástar- og haturssambandi við Ísland og Íslendinga. Á níunda áratugnum var hún áberandi sem fatafella í Reykjavík en á síðari árum gerðist hún athafnasamur tónlistarmaður. Leoncie gaf út fjölda af geisladiskum sem fengu vægast sagt misjafnar viðtökur, en alltaf mikið umtal. Titlar platn- anna bera því góða vitneskju: Sexy Loverboy, My Icelandic Man og Radio Rapist Wrestler. Leoncie var ætíð áberandi á síðum dag- blaðanna. Þar talaði hún meðal annars um sigra sína og vinsældir í öðrum löndum, gagnrýndi aðra fjölmiðla fyrir ósanngjarna umfjöllun og var ósátt við að lög hennar fengju ekki næga spilun í útvarpi og sjónvarpi. Undir það síðasta átti hún einnig í harðvítug- um deilum við nágranna sína í Sandgerði. Sagan segir að Sand- gerðisbær hafi að lokum keypt íbúð Leoncie til að flýta fyrir því að hún flytti á brott. Leoncie er nú búsett í Bretlandi en hún heldur góðu sambandi við aðdáendur sína hér á landi í gegnum Myspace. Breskur djammari sem var hand- tekinn fyrir að smygla fíkniefnum til landsins í kringum aldamótin. Kio var fljótlega gerður að óvini Íslands númer eitt. Þegar hann var svo sýknaður í Hæstarétti komu vöflur á marga. Sú samúð sem hann fékk þá var þó fljót að hverfa þegar Kio var skömmu síðar handtekinn fyrir fíkniefna- innflutning í Danmörku. Forsetafrúin er líklegast sá gest- ur sem Íslendingar hafa tekið best. Fæstir vissu hvernig þeir ættu að bregðast við þegar fregn- ir bárust af því að Ólafur Ragnar Grímsson ætti í sambandi við aðra konu. Þá var ekki langt síðan frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir lést og fyrstu viðbrögð margra voru neikvæð. Það tók Dorrit hins vegar ekki langan tíma að vinna hug og hjörtu þjóðarinnar. Ein- lægni hennar, ást hennar á forset- anum og einstakur áhugi hennar á landinu, og viðleitni til að kynna það erlendis, gerðu það að verk- um að Íslendingar tóku Dorrit opnum örmum. Og nú gætu fæstir hugsað sér Ólaf Ragnar á Bessa- stöðum án hennar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.