Fréttablaðið - 10.11.2007, Page 90
Edduverðlaunin verða af-
hent í beinni útsendingu á
sunnudag. Fréttablaðið tal-
aði við tvo formenn kvik-
myndafélaga í framhalds-
skólum og fékk þá til að spá
í spilin.
„Mér finnst Veðramót skara fram
úr í flokki kvikmynda,“ segir
Geoffrey Þ. Huntingdon-Willi-
ams, oddviti myndbandaráðs
Menntaskólans við Hamrahlíð.
„Bæði Veðramót og Foreldrar
eru góðar myndir sem fjalla um
áhugavert efni en mér finnst und-
arlegt að mynd eins og Vand-
ræðamaðurinn sé tilnefnd og Ast-
rópía ekki. Ég held að Veðramót
taki þetta, leikurinn kemur meira
á óvart en í Foreldrum og hún var
skemmtilegri áhorfs.“ Hann
spáir Sigtinu án Frímanns Gunn-
arssonar sigri í flokki leikins
sjónvarpsefnis. „Þættirnir um
Næturvaktina eru frábærir. Allt
sem Jón Gnarr snertir virðist
verða að gulli. Ég myndi engu að
síður skjóta á að Sigtið sigri þótt
þetta sé tvísýnt. Sá þáttur hefur
meiri rótfestu, er frábærlega
leikinn og fer vel með áhugavert
efni. Mér finnst þessir þættir
þrepinu ofar en Stelpurnar hvað
gæði varðar. Sketsaþættir verða
þreyttir til lengdar.“ Geoffrey
spáir Gunnari B. Guðmundssyni
leikstjóraverðlaununum fyrir
Astrópíu. „Hann var mikið til að
vinna með leikara sem ekki eru
menntaðir sem slíkir og tókst vel
upp. Auk þess er myndin sjón-
rænni en báðar hinar. Það þarf að
vera gott til að ganga upp eins og
í Astrópíu.“ Hann telur að Veðra-
mót verði sigurvegari kvöldsins
á Eddunni. „Myndin er frábær og
verður tvímælalaust sett í flokk
með bestu myndum síðustu ára-
tuga.“
Árni Pétur Arnarsson, formað-
ur kvikmyndafélags Menntaskól-
ans á Akureyri, finnst Vandræða-
maðurinn besta kvikmyndin sem
tilnefnd er. „Hún er frumleg og
fjallar um annað efni en hefð-
bundnar íslenskar myndir. Hinar
myndirnar eru báðar ágætar en
helst til „íslenskar“ – of líkar
öðrum íslenskum myndum og
ófrumlegar. Ég er samt alls ekki
viss um að Vandræðamaðurinn
sigri.“ Árni Pétur spáir því að
Næturvaktin beri sigurorð af
Stelpunum og Sigtinu. „Það er
mikið afrek að búa til svona marga
fáránlega karaktera og fá það til
að ganga upp eins og í Sigtinu.
Húmorinn er góður og virkar. Ég
held að Næturvaktin vinni engu að
síður. Nýir, vinsælir, stórir og
góðir þættir sem eru að slá í gegn.
Þeir verða að teljast líklegir.“ Árni
Pétur spáir því að Ragnar Braga-
son vinni leikstjóraverðlaunin.
„Þótt Guðný hafi staðið sig vel
myndi ég veðja mínum peningum
á Ragga. Mér finnst það einhvern
veginn liggja beint við. Foreldrar
er bara meiri „leikstjóramynd“ en
Veðramót. Þar er sagan ekki bara
sögð með leikurum heldur upp-
setningu, myndatöku og sjónræn-
um elementum.“ Og hver verður
sigurvegari hátíðarinnar? „Mér
finnst líklegt að Veðramót fái flest
verðlaun en tel að Foreldrar muni
standa sig vel í þeim flokkum þar
sem hún er tilnefnd.“
Heimildarmyndin Reiði guðanna
vann til enn einna verðlauna á
dögunum á kvikmyndahátíðinni
Red Rock í Bandaríkjunum sem
besta heimildarmyndin. Þetta eru
sjöttu verðlaunin sem myndin
vinnur til eftir að hafa verið sýnd
á átta hátíðum víðs vegar um
heiminn. „Myndin hefur alls stað-
ar hlotið mjög góða dóma,“ segir
Jón Ármann Steinsson, annar
framleiðenda myndarinnar. Reiði
guðanna var sýnd í Sjónvarpinu
fyrir skemmstu en hún fjallar um
þær raunir sem kvikmyndalið
Bjólfskviðu rataði í þegar tökur á
myndinni fóru fram hér á landi.
„Reiði guðanna hefur tvisvar verið
send inn sem
kandídat til
Eddutilnefn-
ingar en í hvor-
ugt skiptið
hefur hún hlot-
ið náð fyrir
augum nefnd-
arinnar,“ segir
Jón Ármann
sem segist spyrja sig þeirrar
spurningar hvort kjarkleysi valdi
því að heimildarmynd sem sýni
kvikmyndaiðnað á Íslandi í óþægi-
legu ljósi sé ekki tilnefnd. „Er
bransinn á Íslandi ekki þroskaðri
en svo að þeir þori ekki að tilnefna
þessa mynd? Ég er ekki að segja
að Reiði guðanna sé endilega verð-
launamynd á íslenskan mæli-
kvarða en mér finnst skrítið að
hún skuli ekki einu sinni tilnefnd
miðað við það lof sem hún fær alls
staðar annars staðar. Vonandi er
yrkisefninu ekki um að kenna því
þá eru tilnefningarnar mjög pólit-
ískar á kvikmyndagerðarvísu.“
Hann bætir því við að það veki
einnig furðu sína að Astrópía skuli
ekki fá fleiri tilnefningar. „Það er
út í hött. Veðramót fær ellefu til-
nefningar en Astrópía, mynd sem
hefur hlotið hylli áhorfenda, er
bæði frumleg skemmtun og góð
kvikmyndagerð er nánast hunds-
uð. Það hefur ekki komið betri
kvikmyndagerð úr íslenskum
ranni í mörg herrans ár.
Furðar sig á
Eddutilnefningum
Hljómsveitin Sigur Rós hefur ýtt
úr vör samkeppni í tengslum við
heimildarmyndina Heima sem
kom út víða um heim fyrir
skömmu. Aðdáendum sveitarinn-
ar gefst kostur á að búa til sína
eigin heimildarmynd í kringum
óútgefið myndefni úr Heima, sem
þeir geta sótt á netinu.
Senda þeir síðan myndina inn á
heimasíðuna Youtube og munu
meðlimir Sigur Rósar ásamt
leikstjóra Heima, Dean DeBlois,
og fleiri aðilum sem unnu við
gerð myndarinnar velja þar
sigurvegarann. Skilafrestur er til
fimmta desember og í fyrstu
verðlaun eru innrammaðar
ljósmyndir úr Heima, áritaðar af
Sigur Rós.
Samkeppni
Sigur Rósar
NÝJAR VÖRUR Í JÓLALÍNUNA Í HVERRI VIKU