Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.11.2007, Qupperneq 98

Fréttablaðið - 10.11.2007, Qupperneq 98
Nýliðar Stjörnunnar hafa vakið mikla athygli í Iceland Express-deild karla. Stjarnan sem tapaði öllum 22 leikjunum þegar þeir voru síðast í deildinni hefur unnið þrjá af fyrstu sex leikjum sínum, þar á meðal þriggja stiga sigur í Ljónagryfj- unni í Njarðvík á fimmtudags- kvöldið. Lykillinn að góðum leik liðsins hefur verið frammistaða Make- dóníumannsins Dimitars Kar- adzovski sem hefur skorað 20 stig, sett niður 4,3 þrista og gefið 5,3 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu sex leikjum tímabilsins. Bragi Magnússon er að gera góða hluti á sínu fyrsta ári sem úrvalsdeildarþjálfari. „Ég sem leikmaður í 12 til 13 ár í úrvals- deild fór ekkert oft til Njarðvíkur og vann. Þetta var fyrsti útisigur- inn í sögu félagsins og við erum eigilega að slá met í hverjum leik sem við spilum. Okkar markmið er úrslitakeppnin og hefur verið það frá byrjun. Við erum á áætl- un,“ segir Bragi, sem sá annað og betra í Dimitar en að hann væri leikstjórnandi. „Dimitar er búinn að vera mjög góður í öllum leikjunum. Hann var notaður mikið sem leikstjórn- andi hjá Skallagrími en ég nota hann meira sem skotbakvörð. Þá opnast meira fyrir hann og hann getur einbeitt sér meira að því að vera skytta og skorari. Það gat ég gert af því að ég fékk líka Sævar frá Haukunum. Sævar sér um hit- ann og þungann af leikstjórn- andastöðunni og það er að koma rosalega vel út fyrir Dimitar að geta einbeitt sér að því að vera skotbakvörður,“ segir Bragi, sem hefur einnig náð miklu út úr öðrum reynsluminni leikmönnum liðsins. „Kjartan [Kjartansson], Sigur- jón [Lárusson] og Fannar [Helga- son] eru þessir Íslendingar sem eru að spila einna mest hjá okkur. Fannar hefur spilað lengi í úrvals- deild en Sigurjón og Kjartan eru að stíga sín fyrstu skref og eru samt oft og tíðum að spila eins og reyndir menn. Ég hef verið að reyna að vinna með þessum strák- um og reyna að fá þá til þess að átta sig á því að spila leikinn en ekki bara hverja sókn fyrir sig. Ég er að reyna að koma því inn í hausinn á þeim að hugsa um heild- ina og ég held að það sé að takast á margan hátt,“ segir Bragi, sem er ánægður með alla leiki nema einn. „Það hefði reyndar mátt vera meiri baráttuandi í liðinu í Fjölnis- leiknum sem við töpuðum því með fullri virðingu fyrir Fjölni þá var það kannski eini leikurinn sem við spiluðum illa. Alla aðra leiki spiluðum við vel hvort sem við höfum tapað eða unnið. Grindavík rétt skreið út úr Ásgarði með sigurinn og við fórum upp á Stykkishólm og vorum yfir lengi í leiknum þang- að til að við misstum þetta á loka- mínútunum. Eftir því sem meiri reynsla dettur inn þá eigum við eftir að klára fleiri leiki,“ segir Bragi. Hann er ánægður með nýja Bandaríkjamanninn sinn, Maurice Ingram. „Ein af ástæðunum fyrir því að við tókum hann inn var að vega upp reynsluleysið innan liðsins. Maurice er að skila okkur því sem við vorum að leita að en Steven var ekki að skila okkur. Það er klárt að Steven Thomas var góður leikmaður en var ekki það sem okkur vantaði,“ segir Bragi. Stjörnuliðið er að spila allt annað en auðvelda leiki þessa dagana. „Við sáum að við værum að fara að spila við þrjú bestu liðin á landinu í einni röð. Við vorum nýbúnir að spila við Grindavík og Snæfell og tapa naumlega og við sögðum því að ef við næðum að vinna einn af þessum þremur leikjum þá yrðum við glaðir. Við gerðum ekki ráð fyrir að vinna neinn þeirra en ef við myndum vinna einn þá værum við voðalega ánægðir. Við byrjuð- um á því að vinna Njarðvík þannig að við erum strax búnir að ná markmiðum okkar út úr þessum leikjum. Ef við vinnum annan leik þá sef ég ekkert af gleði næstu vikurnar. Við mætum bara í leik- ina á móti KR og Keflavík alveg eins og við gerðum í Njarðvík, reiðubúnir að leggja okkur alla fram og sjá síðan til hver staðan verður í lokin,“ sagði Bragi að lokum. Bragi Magnússon, þjálfari Stjörnunnar, færði Dimitar Karadzovski úr stöðu leikstjórnanda í byrjun leik- tíðar og leyfði honum að einbeita sér að því að vera skytta. Nýliðar Stjörnunnar hafa unnið þrjá af fyrstu sex leikjum sínum og Dimitar hefur verið illviðráðanlegur það sem af er í Iceland Express-deild karla. Steve McClaren, lands- liðsþjálfari Englendinga, valdi David Beckham í hópinn fyrir leiki á móti Austurríki og Króatíu en Beckham snýr nú aftur eftir meiðsli sem héldu honum frá síð- ustu landsleikjum. Englendingar mæta Austur- ríkismönnum í vináttulandsleik á föstudaginn eftir tæpa viku og spila síðan afar mikilvægan loka- leik í undankeppninni gegn Króatíu á Wembley 21. nóvember næstkomandi. Króatar eru á toppi riðilsins með 26 stig og tvo leiki eftir. Eng- land er með 23 stig og einn leik eftir en Rússar, sem eru með 21 stig, eiga tvo leiki eftir á móti Ísrael og Andorra. Ef Rússar vinna sína leiki þá eru þeir öruggir áfram en Englendingar verða að treysta á að þeir misstígi sig á sama tíma og þeir klára sinn leik við geysisterkt lið Króata. „Aðalvonbrigðin við þessa stöðu er að þetta er ekki lengur í okkar höndum. Ég hélt alltaf að þetta myndi ráðast í Króatíu- leiknum og ég er enn á þeirri skoðun. Pressan er á Rússum,“ sagði Steve McClaren um leið og hann tilkynnti hópinn en hann segist bjartsýnn um að komast í úrslitakeppnina næsta sumar og að hann treysti á að Ísraelar geti náð stigum af Rússum þegar þeir heimsækja Jerúsalem. David Beckham er á höttunum eftir því að verða fimmti leik- maðurinn sem nær að spila 100 leiki fyrir enska landsliðið en hann hefur spilað 97 leiki til dags- ins í dag. McClaren flaug til Los Angeles til að kanna stöðuna á Beckham áður en að hann valdi hann í hópinn. „Hann er í góðu standi, búinn að ná sér af meiðslunum og hann er í hópnum þrátt fyrir að hafa ekki spilað lengi vegna þess að hann er maður stóru leikjanna. John Terry og Rio Ferdinand verða ekki með og við þurfum á reynslumiklum manni eins og honum að halda,“ sagði McClaren á blaðamannafundi. Annar leikmaður sem kemur inn í hópinn eftir meiðsli er Owen Hargreaves hjá Manchester United sem hefur ekki spilað með landsliðinu á þessu ári. Þá eru Ashley Cole og Wayne Bridge einnig í hópnum en þeir hafa glímt við meiðsli. Nær Beckham leikjum númer 98 og 99? Björgvin Björgvinsson náði 27. sæti í svigi á Evrópubikarmóti í Landgraaf í Hollandi í gær. Þetta er mjög góður árangur hjá Björgvini þar sem allir sterkustu svigmennirnir í Evrópubikarnum í vetur voru með á þessu móti. Björgvin fór niður brekkuna á 23,67 sekúndum eða tæpri sekúndu á eftir Svíanum Hans Olsson sem vann. Þar með er Björgvin í 15. sæti í stigakeppni Evrópubikarsins eftir tvö mót. Björgvin er nú á leið til Reiteralm í Austurríki þar sem hann keppir í svigi í Heimsbik- arnum á sunnudaginn. Síðan verður karlalandsliðið við æfingar í Austurríki út næstu viku en verði veður hagstætt hefur stefnan verið sett á að liðið æfi á Íslandi eftir 18. nóvember. Björgvin stóð sig vel í sviginu Wayne Rooney, leik- maður Manchester United og enska landsliðsins, verður ekki með næstu fjórar vikurnar vegna ökklameiðsla sem hann var fyrir á æfingu. Meðal leikja sem Rooney missir af er lokaleikur enska landsliðsins á móti Króatíu en hann gæti ráðið úrslitum hvort England komist á EM. Rooney meiddist í fyrsta deildarleiknum en var kominn í hörkuform og var valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildar- innar í októbermánuði. Þessi snjalli framherji var sem dæmi búinn að skora 8 mörk í síðustu 7 leikjum United. Frá næstu fjór- ar vikurnar Serbinn Drago Pavlovic hefur sagt upp hjá Fjölni og yfirgefið liðið, sem er í harðri baráttu í Iceland Express-deild karla. Þessi 27 ára og 201 cm framherji hefur skorað 21,0 stig og tekið 5,5 fráköst að meðaltali í fyrstu sex leikjum liðsins. Hann er annar Serbinn sem yfirgefur Grafarvoginn á einni viku en Nemanja Sovic gekk til liðs við Breiðablik í síðustu viku. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins sagði Pavlovic upp fyrir leik ÍR og Fjölnis í Seljaskóla á fimmtudagskvöldið en lék hann þó. Fjölnisliðið vann þar mikil- vægan en nauman 83-85 sigur. Þetta var aðeins annar sigur liðs- ins í vetur en liðið hafði fyrir leik- inn tapað þremur leikjum í röð. Ákvörðunin um að segja upp var algjörlega komin frá Pavlovic sem var gagnrýndur á dögunum fyrir að gefa ekki boltann en hann náði ekki að gefa eina einustu stoðendingu á þeirri 151 mínútu sem hann spilaði í Fjölnisbún- ingnum. Pavlovic tók aftur á móti 99 skot á þessum tíma. Í leiknum á móti ÍR skoraði Pavlovic 11 stig og tók 4 fráköst á 27 mínútum en hann klikkaði hins vegar á 12 af 16 skotum sínum í leiknum. Fjölnir hafði tólf stiga forskot fyrir lokaleikhlutann en tapaði honum 13-23. Pavlovic hjálpaði ekki mikið á lokasprett- inum því hann klikkaði á fimm af sex skotum sínum í fjórða leik- hlutanum. Í öllum útlendingavandræðun- um gátu Fjölnismenn þó glaðst yfir framgöngu Karltons Mims sem skoraði 23 stig í ÍR-leiknum sem var 6,2 stigum yfir meðal- skori hans fyrir leikinn. Það er þó ljóst að Bárður Eyþórsson þarf að finna menn í stað þeirra Sovic og Pavlovic ætli Grafarvogsliðið að keppa á jafnréttisgrundvelli við öll hin lið deildarinnar sem eru flest með þrjá erlenda leik- menn. Pavlovic sagði upp fyrir leik
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.