Fréttablaðið - 09.12.2007, Page 2
2 9. desember 2007 SUNNUDAGUR
SJÓRÆNINGJAFRÆÐI
Lubber skipstjóri er
á hælunum á
sjóræningjanum
Arabellu Drummond
og einkennilegum
félögum hennar.
Sjóræningjafræði er
af sama meiði og hin
geysivinsæla Dreka-
fræði, sem seldist upp
í fyrra haust en er loks
fáanleg á ný.
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
KÚBA Fjórum af fimm föngum í
fangabúðunum við Guantánamo-
flóa sem búsettir eru í Bretlandi
verður brátt sleppt. Bresk
stjórnvöld fóru í ágúst fram á að
öllum mönnunum yrði sleppt eftir
að hafa áður neitað að skerast í
leikinn þar sem mennirnir voru
ekki breskir ríkisborgarar.
Flutningurinn hefur ekki enn
verið staðfestur og nákvæm
dagsetning er óljós. Lögmaður
mannanna, Clive Stafford, segir þó
að samningurinn sé tryggður og að
fangarnir fjórir muni snúa heim.
Óvíst sé hvenær það verður þar
sem málinu fylgi mikil skriffinnska
af hendi Bandaríkjamanna. - hs
Fangabúðirnar í Guantánamo:
Fjórir fangar
látnir lausir
FANGABÚÐIR Bandarísk stjórnvöld segja
erlenda ríkisborgara sem hafðir eru í
haldi utan Bandaríkjanna hafa engin
viðurkennd stjórnarskrárréttindi.
NORDICPHOTOS/AFP
S-KÓREA Olía úr skemmdu
tankskipi hefur náð vesturströnd
Suður-Kóreu og er olíubrákin
stutt frá verndarsvæði.
Neyðarsveitir í Taean-héraði
berjast við að koma í veg fyrir að
brákin, sem er nú um 20 km löng,
skaði dýralíf og verðmætan
sjávarbúskap. Meira en 10.000
smálestir af olíu láku í sjóinn
eftir að 146.000 tonna olíuflutn-
ingaskip, Hebei Spirit, lenti í
árekstri við pramma.
Samkvæmt sjávarútvegsráðu-
neyti Suður-Kóreu var skipið við
festar þegar það lenti í árekstri
við iðnaðarpramma. - hs
Umhverfisslys vegna olíuleka:
Olíubrák ógnar
Suður-Kóreu
S-KÓREA Suður-kóreskir sjálfboðaliðar
hreinsa upp strandlengjuna í Mallipo.
VEÐUR Margir hafa áhuga á að vita
hvernig kemur til með að viðra
um jólin og snýst þá aðalspurning-
in oftar en ekki um hvort jólin
verða rauð eða hvít. Sigurður Þ.
Ragnarsson veðurfræðingur veitti
okkur innsýn í komandi veðurfar.
„Það eru komnar reiknaðar spár
fyrir aðfangadag og jóladag og
þær gefa tilefni til að ætla að í
aðdraganda jólanna verði talsvert
hlýtt, sér í lagi á sunnanverðu
landinu, og því eru yfirgnæfandi
líkur á rauðum jólum sunnan-
lands,“ segir Sigurður.
„Á Norðurlandi eru hins vegar
töluvert meiri líkur á nettum
snjóalögum í innsveitum. Þar eru
því meiri líkur á hvítum jólum.“
Horfur eru á að lágþrýst verði í
kringum landið sem þýðir ein-
hvern lægðagang og hlýindi. „Þó
að það sé frost og kalt þessa dag-
ana þá er sá kuldagangur ekki sjá-
anlegur í aðdraganda jólanna,“
segir Sigurður þótt enn sé mögu-
leiki á snjó fyrir norðan. Veðrið
verður væntanlega fremur milt og
hiti þrjú til sex stig og jafnvel smá
rigning. „Ef þessi spá helst þá
verður ekki vandamál að ferðast á
milli landshluta en ég legg auðvit-
að áherslu á að menn fylgist með
spám þegar nær dregur,“ segir
Sigurður og telur veðrið vera í
takt við hlýnandi loftslag. - hs
Reiknaðar spár fyrir aðfangadag og jóladag sýna lágþrýst svæði og hlýindi:
Búist við rauðum jólum
SIGGI STORMUR Sigurður spáir rauðum
jólum um sunnanvert landið en
hugsanlegum snjóalögum norðan til í
innsveitum. Síðastliðin ár hefur veðurfar
um jólin verið svipað og er það í takt við
hlýnandi veðurfar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÖGREGLUMÁL Kona um fimmtugt
fannst látin í íbúð sinni í Hátúni 10
á miðvikudag. Talið er að hún hafi
verið látin í rúma viku áður en líkið
fannst.
Lögreglan rannsakar nú andlát
konunnar sem búið hafði í íbúðinni
frá því í júní í sumar. Opnað var inn
í íbúð hennar eftir að farið var að
óttast um hana.
Íbúðirnar í fjölbýlishúsinu í
Hátúni 10 eru reknar af hússjóði
Öryrkjabandalagsins. „Ég harma
mjög þennan atburð,“ segir Sigur-
steinn Másson, formaður Öryrkja-
bandalagsins. Hann segir það sem
gerst hafi sérstaklega mikil von-
brigði í ljósi þess að fyrir tveimur
árum hafi önnur kona í húsinu fund-
ist látin eftir að hafa legið látin í
íbúð sinni í um tvær vikur.
„Þá kallaði ég saman stjórnenda
hússjóðs Öryrkjabandalagsins og
þá aðila sem bera ábyrgð á þjónust-
unni og krafðist þess að gripið yrði
til viðeigandi ráðstafana þannig að
það væri lágmörkuð áhættan á því
að slíkt gæti gerst aftur,“ segir Sig-
ursteinn sem líkt og fyrir tveimur
árum hefur rætt við þá sem komu
að málum í Hátúni. „Ég mun fara
yfir það með þessum aðilum í næstu
viku með hvaða hætti var brugðist
við í fyrra skiptið og hvaða örygg-
isráðstafanir voru gerðar í fram-
haldi af þeim atburði.“
Sigursteinn, sem frétti fyrst af
málinu síðdegis á föstudag, segir
að svara þurfi hvaða þjónustu
konan hafi átt rétt á og hvaða þjón-
ustu hún hafi notið. Fyrir liggi að
hún hafi hvorki haft heimaþjónustu
né nýtt sér heilbrigðisþjónustu sem
sé í boði í Hátúni.
„Það þarf ekki að vera óeðlilegt
að hún hafi ekki fengið þessa þjón-
ustu en það er alveg ljóst að í þess-
um húsum er meira af fötluðu fólki
og sjúku heldur en nokkurs staðar
annars staðar á landinu. Það verður
að gera mjög skýrar kröfur um
öryggi og stuðning til handa íbúun-
um og því ætla ég
að fylgja eftir,“
segir Sigur-
steinn.
Nágrannar
konunnar í
Hátúni segjast
slegnir yfir því
sem gerst hafi.
Maður sem býr á
sama gangi og
konan sem lést
lýsir kringum-
stæðum við andlát hennar sem
skelfilegum.
Hjá lögreglu fengust þær upp-
lýsingar að dánarörsök konunnar
væri enn til rannsóknar. Engin
grunur væri um afbrot. Konan
lætur eftir sig börn, systkini og for-
eldra. - gar
Látin í viku áður en
hún fannst í Hátúni
Fara á yfir öryggi og þjónustu í íbúðum Öryrkjabandalagsins í Hátúni eftir að
kona hafði fundist látin í íbúð sinni rúmri viku eftir að hún dó. Dánarorsökin er
ókunn. Íbúar eru slegnir og formaður Öryrkjabandalagsins harmar atburðinn.
INNSIGLI LÖGREGLU Andlát konunnar er
til rannsóknar hjá lögreglunni sem hefur
innsiglað íbúð hennar.
HÁTÚN 10 Fyrir tveimur árum fannst kona látin í þessu húsi í Hátúni eftir að hafa
verið látin í rúma viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SIGURSTEINN
MÁSSON
FÓLK Röð myndaðist fyrir utan
verslun Máls og Menningar á
Laugaveginum í morgun þegar
gefin voru fimmtíu listaverk eftir
Erró.
Verkin fylgdu með fyrstu fimm-
tíu bókunum „Erró í tímaröð: Líf
hans og list“ sem er ítarlegt yfir-
litsrit yfir verk hans og ævi eftir
Danielle Kvaran. Þetta voru hand-
þrykkt grafíkverk og átti Erró
sjálfur hugmyndina að gjöfunum.
Inga Rún Sigrúnardóttir aðstoð-
arverslunarstjóri sagði að fyrir
klukkan átta hefði verið komin
myndarleg röð og fengu fyrstu
fimmtíu miða með númeri upp á
listaverk og voru að vonum
ánægðir. Um sjötíu manns stóðu í
röðinni snemma í gærmorgun og
voru því ekki allir svo heppnir að
fá listaverk en nóg var til af bók-
inni. - hs
Handþrykkt grafíkverk eftir Erró voru gefin með bók:
Fyrstu 50 fengu verk eftir Erró
ÖRTRÖÐ Í MÁL OG MENNINGU Fimmtíu heppnir listunnendur fengu listaverk eftir
Erró að gjöf með bókinni um hann. Biðröð myndaðist fyrir utan Mál og Menningu
áður en verslunin opnaði í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÉLAGSMÁL Velferðarráð Reykja-
víkur hefur óskað eftir því að
borgin finni hentugan stað fyrir
færanleg smáhýsi handa utan-
garðsfólki.
Velferðarráð segir smáhýsin
auka fjölbreytileika í þjónustu við
heimilislausa. „Með því er hægt
að koma til móts við þarfir
ákveðins hóps innan heimilis-
lausra sem hingað til hefur
gengið erfiðlega að koma til móts
við,“ segir í greinargerð. Vel-
ferðarráð vill að smáhýsin verði
nálægt hvert öðru til að auðvelda
þjónustu við íbúa þeirra. Til
stendur að kaupa fjögur eða fimm
hús til viðbótar. - gar
Nýjung fyrir heimilislausa:
Leita að stað
fyrir smáhýsi
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn
Sveitarfélagsins Hornafjarðar
hefur skorað á Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra að endurskoða
breytingar á lögregluumdæmum.
„Það er skoðun bæjarstjórnar
Sveitarfélagsins Hornafjarðar að
markmið breytinganna um
hagræðingu og eflingu starfsem-
innar hafi ekki náðst á Swuðaust-
urlandi. Þvert á móti hafi
breytingarnar veikt starfsemi
lögreglunnar á Hornafirði og
bæjarstjórn minnir á að Höfn er
fjölmennasti þéttbýliskjarninn
innan lögregluumdæmis sýslu-
mannsins á Eskifirði,“ segir í
áskorun Hornfirðinga. - gar
Hornfirðingar ósáttir:
Lögreglan á
Höfn veikari
Kjartan, eruð þið bara fýlu-
púkar hjá Orkuveitunni?
„Það er einhver lykt af þessu máli.“
Brennisteinslykt frá virkjunum Orku-
veitunnar hefur fundist í Reykjavík og
Hvergerðingar óttast mikla lyktarmengun
frá fyrirhugaðri Bitruvirkjun. Kjartan
Magnússon er í stjórn Orkuveitunnar.
PORTÚGAL Kanslari Þýskalands,
Angela Merkel, talaði opinberlega
gegn kúgun og mannréttindabrot-
um í Simbabve á fundi evrópskra
og afrískra leiðtoga í Portúgal.
Þátttaka Mugabe, forseta
Simbabve, sem sætir ferðabanni
til ESB-landanna, hefur sett
mikinn svip á aðdraganda
fundarins. Merkel fordæmdi
stefnu Mugabes og sagði að hann
ylli skaða á ímynd hinnar nýju
Afríku. Sagði hún að ekki væri
hægt að líta undan þegar traðkað
væri á mannréttindum. - hs
Mannréttindabrot gagnrýnd:
ESB þrýstir fast
á Simbabve
SPURNING DAGSINS