Fréttablaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 114
46 9. desember 2007 SUNNUDAGUR
Stofnfjárútboð SPVF
Sparisjóður Vestfi rðinga býður nú út nýtt stofnfé að nafnverði
kr. 788.028.846. Farið er með útboðið skv. reglum um almennt
útboð verðbréfa, en stofnfjáreigendur sem skráðir eru við upphaf
útboðsins eiga forgangsrétt til áskriftar í samræmi við hlut-
fallslega eign sína, sbr. lög um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 og
samþykktir sjóðsins.
Útboðstímabilið er 10. desember - 17. desember 2007 og fellur
áskrift í eindaga 31. desember 2007. Verð hverrar krónu nafnverðs
í útboðinu er kr. 1,051465 og er heildarverðmæti útboðsins því
kr. 828.584.751. Heildarnafnverð stofnfjár fyrir hækkunina er kr.
1.365.179.392 og verður eftir hækkunina kr. 2.153.208.238, að því
gefnu að allt seljist.
Umsjónaraðili útboðsins er Sparisjóðurinn í Kefl avík og má nál-
gast lýsingu og önnur gögn sem tengjast útboðinu á heimasíðu
Sparisjóðs Vestfi rðinga www.spvf.is og í afgreiðslum hans frá og
með 10. desember 2007.
Sparisjóðsstjórn
Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
www.expressferdir.is
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
SKÍÐAFERÐ
TIL LECH
16.–23. febrúar 2008
Express Ferðir eiga nokkur sæti laus í einstaka ferð til skíðapara-
dísarinnar Lech í Austurríki. Endalausar brekkur, alltaf nægur snjór
og frábær aðstaða!
Innifalið: Flug með sköttum, akstur til og frá flugvelli, gisting á
hinu þriggja stjörnu Hotel Felsenhof, morgunverður og þríréttaður
kvöldverður.
123.900 kr.Verð á mann í tvíbýli
FÓTBOLTI Katrín Jónsdóttir, fyrir-
liði Íslandsmeistara Vals og
íslenska kvennalandsliðsins,
hefur framlengt samning sinn
við Val um tvö ár. Þetta er mikið
gleðiefni fyrir bæði lið enda
Katrín í mjög stóru hlutverki á
báðum stöðum.
„Mig langaði alltaf að halda
áfram og sérstaklega vegna þess
að landsliðið er búið að ná það
góðum árangri að það er mögu-
leiki á að fara á EM 2009,“ segir
Katrín sem hugsaði meira um að
hætta í fyrra.
„Maður var því að velta þessu
meira fyrir sér í fyrra. Nú tekur
maður eitt ár í einu, ég er búin
að taka góða pásu núna og að
sjálfsögðu langar mig til þess að
halda áfram. Það hefur gengið
vonum framar og vonandi held-
ur það áfram,“ segir Katrín sem
hefur unnið sjö Íslandsmeist-
aratitla, þar af þrjá með Val frá
árinu 2004.
Katrín skoraði 7 mörk í 15
leikjum í sumar og var einn af
bestu leikmönnum Landsbanka-
deildarinnar. „Þetta er með
bestu tímabilunum á mínum
ferli. Ég átti mjög gott tímabil
2002 þegar við urðum Noregs-
meistarar í Kolbotn en þetta er
besta tímabilið síðan þá,“ segir
Katrín sem hefur leikið 66 lands-
leiki og ætti að fá möguleika á
að bæta landsleikjametið á
Algarve Cup í mars.
„Ég er ekkert að hugsa um
landsleikjametið því ég stefni
bara á að ná góðum árangri með
liðinu. Maður er búinn að vera í
þessum fótbolta frá því að
maður var sjö ára og þegar loks-
ins er möguleiki á að komast inn
á úrslitakeppni Evrópumóts þá
vill maður gera allt sem maður
getur til þess að ná þeim
árangri,“ segir Katrín sem tók
við fyrirliðabandinu í landslið-
inu af Ásthildi Helgadóttur sem
hefur lagt skóna á hilluna.
Það er einmitt Ásthildur sem
á landsleikjametið en finna má
ítarlegt viðtal við hana á síðum
16 og 17 í Fréttablaðinu í dag.
„Við Ásthildur byrjum eigin-
lega bara á sama tíma en hún er
árinu eldri en ég. Við erum
búnar að vera saman í þessu,
fyrst hjá Breiðabliki og svo með
landsliðinu. Það verður skrítið
að hún verði ekki lengur með í
þessu,“ segir Katrín og það er
ljóst að landsliðið hefði ekki
mátt við því að missa hana líka.
- óój
Katrín Jónsdóttir, fyrirliði Vals og landsliðsins, ætlar að spila áfram næstu tvö ár:
Mitt besta sumar síðan 2002
MEISTARI Katrín Jónsdóttir hefur lyft
Íslandsbikarnum tvö ár í röð sem
fyrirliði Valsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
HANDBOLTI Grótta vann öruggan 11
marka sigur á Fylki í N1-deild
kvenna í handbolta í gær og FH
vann þriggja marka heimasigur,
24-21, á Akureyri.
Gróttustúlkur jöfnuðu þar með
Stjörnustúlkur að stigum og nú
munar aðeins tveimur stigum á
efsta liðinu, sem er Fram, og
Gróttu sem er í 4. sætinu.
Sigur Gróttu var sannfærandi,
liðið var komið sex mörkum yfir í
hálfleik, 15-9, og vann að lokum
með 11 marka mun, 31-20. Pavla
Plaminkova, sem kom frá ÍBV
fyrir tímabilið, var í miklu stuði í
liði Gróttu og skoraði 15 mörk en
hún hafði skorað 4,9 mörk að með-
altali í fyrstu níu leikjunum.
Þetta var þriðji sigur Gróttu-
liðsins í röð og liðið ætlar sér
greinilega að blanda sér í toppbar-
áttuna. Pavla var langatkvæða-
mest en Karólína Gunnarsdóttir,
Tatjana Zukovska, Ingibjörg Jóns-
dóttir og Arndís María Erlings-
dóttir skoruðu allar þrjú mörk.
Natasa Damiljanovic skoraði 10
mörk fyrir Fylki og Sunna María
Einarsdóttir var með fimm mörk.
FH komst upp fyrir HK í 7.
sætið með naumum þriggja marka
sigri á Akureyri, 24-21, en staðan
var 12-12 í hálfleik. FH-liðið er
búið að endurheimta leikmenn og
tvær þeirra voru markahæstar í
þessum leik.
Ragnhildur Rósa Guðmunds-
dóttir skoraði átta mörk fyrir FH-
liðið og Dröfn Sæmundsdóttir var
með sex mörk. Guðrún Helga
Tryggvadóttir skoraði síðan fimm
mörk gegn sínum gömlu félögum
að norðan.
Lilja Þórisdóttir var markahæst
í liði Akureyrar með átta mörk en
Anna Valgerður Erlingsdóttir
skoraði fimm. - óój
Grótta og FH unnu góða heimasigra í N1-deild kvenna í handbolta í gær:
Pavla skoraði fimmtán mörk
N1-deild karla í handbolta
Stjarnan – Akureyri 30-29 (14-14)
Mörk Stjörnunnar: Heimir Örn Árnason 9/4
(13/4), Ragnar Helgason 6 (7), Guðmundur
Guðmundsson 3 (5), Ólafur Víðir Ólafsson 3 (7),
Björgvin Hólmgeirsson 3 (12), Volodymyr Kysil
2 (2), Gunnar Ingi Jóhannsson 2 (4), Kristján
Kristjánsson 1 (2), Björn Friðriksson 1 (3)
Varin skot: Roland Valur Eradze 17/1 (40/2)
42,5%, Hlynur Morthens 7 (19/2) 36,8%
Hraðaupphlaup: 10 (Heimir Örn 3, Ragnar 2,
Kysil 2, Gunnar Ingi, Björn, Ólafur Víðir)
Fiskuð víti: 4 (Björn, Björgvin, Ólafur Víðir, Rati)
Utan vallar: 6 mínútur
Mörk Akureyrar: Goran Gusic 7/3 (9/3), Einar
Logi Friðjónsson 6 (11), Rúnar Sigtryggsson 5 (7),
Björn Óli Guðmundsson 3 (4), Nikolaj Jankovic
3 (4), Andri Snær Stefánsson 3 (11), Eiríkur
Jónasson 1 (1), Heiðar Þór Aðalsteinsson 1 (2),
Jónatan Þór Magnússon (4/1)
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 11 (24/2)
45,8%, Hörður Flóki Ólafsson 7 (24/2) 29,2%
Hraðaupphlaup: 11 (Andri 3, Einar Logi 2, Jankov
ic 2, Gusic 2, Heiðar, Eiríkur)
Fiskuð víti: 4 (Björn Óli 2, Einar Logi, Rúnar)
Utan vallar: 4 mínútur
ÍBV-Valur 28-40 (8-18)
Mörk ÍBV: Sergey Trotsenko 13/3, Nikolaj Kulikov
4, Zilvinas Grieze 2, Vignir Stefánsson 2, Leifur
Jóhannesson 2, Brynjar Karl Óskarsson 2, Grétar
Þór Eyþórsson 1, Grétar Stefánsson 1.
Mörk Vals: Fannar Þór Friðgeirsson 12/4, Kristján
Þór Karlsson 8, Gunnar Harðarson 4/2, Elvar
Friðriksson 4, Orri Freyr Gíslason 3, Anton
Rúnarsson 3, Ernir Hrafn Arnarsson 3, Sigfús Páll
Sigfússon 2 og Baldvin Þorsteinsson 1.
Valsmenn náðu mest 17 marka forustu í leiknum
og hafa nú náð í 11 stig af síðustu 12 mögulegum
í deildinni.
ÚRSLITIN Í GÆR
SKREFINU Á UNDAN Ebba Særún Brynj-
arsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir FH gegn
Akureyri í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Stjarnan marði mikil-
vægan sigur á Akureyri, 30-29, í
sveiflukenndum leik í Mýrinni.
Stjarnan hélt þar með lífi í titil-
vonum sínum en liðið er sex stig-
um á eftir toppliði Hauka og á einn
leik til góða. Akureyri er enn í
bullandi fallbaráttu með sex stig
líkt og Afturelding í sjötta og sjö-
unda sæti N1-deildarinnar.
Það var einstaklega fámennt í
Mýrinni í gær og vel undir 100
manns að fylgjast með leiknum
þótt starfsmenn og varamenn lið-
anna séu taldir með. Það var eins
og fámennið slægi heimamenn út
af laginu og liðið teldi sig vera að
spila æfingaleik, slíkt var and-
leysið.
Gestirnir frá Akureyri voru
aftur á móti tilbúnir í verkefnið og
skoruðu sex af sjö fyrstu mörkum
leiksins. Akureyri gerði enn betur
og náði sjö marka forystu þegar
13 mínútur voru til leikhlés, 4-11.
Þá hrökk Stjarnan í gang og
skoraði tíu mörk gegn þrem fram
að leikhlé og jafnaði metin í 14-14.
Sóknarleikur Akureyrar hrundi
þegar Jónatan Þór Magnússon var
tekinn úr umferð og virtist liðið
ekki hafa fundið lausnir við varn-
arleik Stjörnunnar í upphafi síðari
hálfleiks. Stjarnan náði fljótt
þriggja marka forystu, 19-16.
Akureyri skoraði þrjú næstu mörk
leiksins og Stjarnan svaraði með
því að komast í 23-20.
Þá hrundi leikur heimamanna á
ný og Akureyri komst í 26-28
þegar fimm mínútur voru til leiks-
loka. Stjarnan skoraði þá þrjú
mörk í röð en Akureyri náði að
jafna metin þegar 40 sekúndur
lifðu leiks og virtist liðið hafa nælt
sér í stig. Það var ekki því Akur-
eyringurinn Heimir Örn Árnason
sem fór fyrir liði Stjörnunnar í
leiknum tryggði sínum mönnum
sigur með marki úr erfiðri stöðu
þegar fjórar sekúndur voru eftir
af leiknum og Akureyri hafði ekki
tíma til að koma boltanum í leik á
ný.
Heimir Örn, hetja Stjörnunnar,
sagði að tapið gegn Fram í Eim-
skipsbikarnum á mánudaginn
hefði setið í mönnum.
„Ég veit ekki hvað þetta var hjá
okkur. Þetta var hörmung. Það er
eðlilegt að bikarleikurinn sitji
aðeins í mönnum en ekki svona
mikið. Við tókum seinni bylgju og
hraðaupphlaup þegar við kom-
umst inn í leikinn á ný en það
hefur vantað í síðustu leikjum.
Það er erfitt að eiga við þetta lið
Akureyrar. Þá vantar mann til að
klára þessa jöfnu leiki, þeir eru
inni í öllum leikjum.“ - gmi
Heimir tryggði Stjörnunni sigurinn
Lánleysi Akureyringa heldur áfram í N1-deild karla en þeir töpuðu með einu marki gegn Stjörnunni í gær
þar sem norðanmaðurinn Heimir Örn Árnason skoraði sigurmarkið þegar fjórar sekúndur voru eftir.
LÉK VEL Ragnar Már Helgason skoraði 6 mörk úr 7 skotum gegn Akureyri í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR