Fréttablaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 12
9. desember 2007 SUNNUDAGUR
HERMANN GUNNARSSON
FJÖLMIÐLAMAÐUR ER 61
ÁRS.
„Ljósið hefur verið ráð-
andi, sem betur fer, en
það væri ekkert gaman
ef ég hefði ekki upplifað
eitthvað mótlætið.“
Hermann Gunnarsson er
mikill íþróttamaður og
hefur verið vinsæll fjöl-
miðlamaður í fjölda ára.
Brautarholtskirkja á Kjalarnesi á 150
ára afmæli og stendur sóknin fyrir há-
tíðahöldum í dag klukkan 14.00 í Fólk-
vangi á Kjalarnesi í tilefni afmælis-
ins.
Séra Gunnar Kristjánsson, sóknar-
prestur í Reynivallaprestakalli, segir
heilmikla dagskrá verða í Fólkvangi í
dag.
„Hátíðin byrjar á helgistund sem ég
sé um ásamt héraðsprestunum Krist-
ínu Þórunni Tómasdóttur og Kjartani
Jónssyni,“ segir Gunnar. „Svo syngur
barnakór Klébergsskóla undir stjórn
Ásrúnar Kondrup og formaður sókn-
arnefndar, Ásgeir Harðarson, flyt-
ur ávarp. Þá mun Karlakór Kjalnes-
inga syngja undir stjórn organistans,
Páls Helgasonar, lög við texta eftir
Matthías Jochumsson sem var prestur
í Brautarholti í sex ár frá 1867-73.“
Ásthildur Skjaldardóttir, húsfreyja
og afkomandi kirkjusmiðar Brautar-
holtskirkju, mun flytja erindi um sögu
staðarins sem Jón Þ. Þór sagnfræð-
ingur tók saman og að því loknu verð-
ur tónlistarflutningur í umsjá Egils
Ólafssonar, Jónasar Þóris og Hjörleifs
Valssonar.
„Loks verður kynning á verkefnum
áttunda bekkjar í Klébergsskóla sem
þau unnu sérstaklega vegna afmæl-
isins,“ segir Gunnar og bætir því við
að Ólafur J. Engilbertsson hafi útbú-
ið sögusýningu sem sýnd verði á há-
tíðinni.
Sjálfur þekkir Gunnar ágætlega til
sögu kirkjunnar en hún var byggð árið
1857 af Eyjólfi Þorvarðarsyni sem bjó
á næsta bæ, Bakka á Kjalarnesi. „Þetta
er nú frekar lítil kirkja og tekur ekki
nema fimmtíu manns í sæti. Á þess-
um árum smíðaði hann nokkrar aðrar
kirkjur eins og í Saurbæ á Kjalarnesi,
Þingvallakirkju, Saurbæ á Hvalfjarð-
arströnd og Úlfljótsvatnskirkju,“ segir
Gunnar en tíu árum eftir að kirkjan
var byggð kom Matthías Jochumsson
og þjónaði kirkjunni í sex ár.
„Hann hóf þarna sinn prestsskap
en sá tími sem hann dvaldi í Brautar-
holti var mikill sviptingatími í hans
lífi. Hann missti þarna fyrri tvær
konur sínar og kynntist þeirri þriðju,
Guðrúnu Runólfsdóttur frá Saurbæ,“
segir Gunnar og bendir á að á þessum
tíma hafi Matthías þó þýtt fjögur leik-
rit Shakespeares og samið heilmargt
annað.
„Um það leyti sem hann fór frá
Brautarholti samdi hann þjóðsöng-
inn og við ætlum einmitt að ljúka dag-
skránni í dag með því að karlakór-
inn syngur þjóðsönginn og allir taka
undir,“ segir hann.
Í Brautarholtssókn eru í dag um sex
hundruð manns og eftir að Kjalarnes-
ið sameinaðist Reykjavík varð sókn-
in jafnt sú nýjasta í Reykjavík sem sú
minnsta en kirkjan er jafnframt elsta
timburkirkjan í Reykjavík.
sigridurh@frettabladid.is
BRAUTARHOLTSKIRKJA: 150 ÁRA AFMÆLI
Minnsta og yngsta sóknin
með elstu timburkirkjuna
Í BRAUTARHOLTI Séra Gunnar Kristjánsson stendur hér við Brautarholtskirkju sem á 150 ára afmæli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á þessum degi
árið 1992 til-
kynnti breski for-
sætisráðherrann
John Major um
skilnað Díönu
prinsessu og
Karls krónprins.
Sagði ráðherr-
ann að skilnað-
urinn væri vinsamlegur. Tilkynn-
ingin kom fáum á óvart enda
hafði slúðurpressan í Bretlandi
velt því fyrir sér í mörg ár hvort
hjónabandið stæði á brauð-
fótum. Díana og Karl höfðu þá
eytt fríum hvort á sínum staðn-
um og ekki deilt herbergi í
opinberum ferðum.
Brúðkaup
Díönu og Karls
árið 1981 var í
meira lagi ævin-
týralegt og um
milljarður fylgd-
ist með athöfninni
í 74 löndum. Brátt
fór þó að halla
undan fæti og eftir
ellefu ár í hjónabandi skildu
þau að borði og sæng en lög-
skilnaðurinn fór ekki í gegn fyrr
en fjórum árum síðar. Þrátt fyrir
að Díana missti konunglegan
titil við skilnaðinn má segja að
hún hafi verið prinsessa í huga
og hjarta almennings. Hún dó í
bílslysi árið 1997.
ÞETTA GERÐIST: 9. DESEMBER ÁRIÐ 1992
Konunglegur skilnaður Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem heiðruðu minningu ástkærs föður
okkar, tengdaföður og afa,
Sigurðar Kr. Árnasonar
skipstjóra, Hrafnistu, Hafnarfirði.
Sigurður Páll Sigurðsson
Þórhallur Sigurðsson Ene Cordt Andersen
Salka, Selma, Steinar
Árni Þór Sigurðsson Sigurbjörg Þorsteinsdóttir
Sigurður Kári, Arnbjörg Soffía Ragnar Auðun
Steinar Sigurðsson Helga Sigurjónsdóttir
Þorbjörg Anna, Kristjana Björk Sigurjón Árni
Friðrik Sigurðsson Margrét Hlíf Eydal
Hrefna, Sindri Már, Brynjar Þór.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
María Sigurðardóttir
viðskiptafræðingur,
lést að Vífilsstöðum miðvikudaginn 5. desember.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn
14. desember klukkan 15.00.
Rannveig Rist Jón Heiðar Ríkharðsson
Guðbjörg Rist Jónsdóttir
María Rist Jónsdóttir
Hólmfríður Vigdís Rist Jónsdóttir
Bergljót Rist Sveinn Atli Gunnarsson
Hekla Rist
Kolka Rist
Yndislega mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Svava Hjaltadóttir,
Borgarholtsbraut 33, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
12. desember og hefst athöfnin kl. 13.00. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Barnauppeldissjóð
Thorvaldsensfélagsins.
Elsa Tryggvadóttir
Áslaug Tryggvadóttir Nebojsa Hadzic
Haraldur Tryggvason Sigrún Eiríksdóttir
Svava Tryggvadóttir Vilhelm Guðbjartsson
Sigríður Tryggvadóttir Héðinn Sveinbjörnsson
Svava Ástudóttir Kieran Houghton
barnabörn og barnabarnabörn.
40 ára afmæli
Þorgímur
Benjamínsson
og
Kristín
Kjartansdóttir
eiga 40 ára brúðkaupsafmæli í dag.
Þau eru stödd í Garðabænum.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tendgdafaðir, afi og langafi,
Sigfús Jóhannesson
múrari, Tjarnargötu 36, Keflavík,
lést þriðjudaginn 4. desember. Jarðarförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 12. desember
kl. 13.30.
Erla Árnadóttir
Valgerður Sigfúsdóttir Guðmundur Karlsson
Sigurbjörg Sigfúsdóttir Birgir Halldór Pálmason
Björg Elsa Sigfúsdóttir
Jóhannes Sigfússon Lára Ágústa Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sólveig Jónasdóttir
frá Húsavík, Gullsmára 7, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju mánudaginn 10.
desember kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er
bent á orgelsjóð Húsavíkurkirkju í versluninni Esar á
Húsavík, s. 464 1313.
Sigurður Haraldsson
Bryndís Torfadóttir
Þórunn Hulda Sigurðardóttir Bjarni Bogason
Ásdís Sigurðardóttir Bjarni Ómar Reynisson
barnabörn og barnabarnabörn.
MOSAIK
timamot@frettabladid.is