Fréttablaðið - 09.12.2007, Page 22

Fréttablaðið - 09.12.2007, Page 22
22 9. desember 2007 SUNNUDAGUR Solis-safapressa Hvað? Safapressur slógu í gegn hjá Íslendingum um síðustu jól og miðað við eftirspurnina í dag virðist sem heilsuvakningu Íslendinga sé hvergi nærri lokið. Margir hefja líkamsræktarátak strax á nýju ári og þá er betra að hafa mataræðið í lagi. Solis-safapressurnar hjálpa óumdeilan- lega við það með því að búa til bragð- góða og safaríka drykki úr gulrótunum, eplunum, vínberjunum og eiginlega öllu því sem hægt er að láta sér detta í hug. Hvar? Bræðurnir Ormsson Fyrir hvern? Konur og karla á öllum aldri – sem vilja hafa línurnar í lagi. Verð: Frá 16.737 kr. Senseo-kaffivél Hvað? Kaffivitund Íslendinga tekur sífelldum breytingum, kröfurnar um gott og ekki síður fjölbreytt gæðakaffi eru orðnar meiri og er óhætt að fullyrða að gamla, góða uppáhellingarvélin sé smátt og smátt að verða úrelt. Senseo-kaffivélarnar eru góð lausn fyrir þá sem huga að endurnýjun í þessum efnum því þær bjóða upp á kaffi af mörgum gerðum, t.d. cappuchino og latte. Hvar? Heimilistæki Fyrir hvern? Alla þá sem kunna að meta gott og gæðamikið kaffi. Verð: Frá 8.995 kr. iPod Touch Hvað? Fyrir þá sem eru haldnir tækjadellu á einhverju stigi, þá er iPod Touch einfaldlega málið í dag. Græjan er í raun eins og iPod í grunninn, en býður þó upp á ótal fleiri möguleika. iPod Touch er hin fullkomna lófatölva sem sameinar allt í senn; netið, tónlist, gagnaflutning, dagbók, myndbönd og margt fleira. Svo má ekki gleyma að gripurinn er einfald- lega töff! Hvar? Apple-búðin Fyrir hvern? Alla þá sem vilja eiga nýjustu og nútímalegustu græjuna á markaðnum í dag. Verð: Frá 42.900 kr. iPod-vagga Hvað? iPod er hjá mörgum orðinn að jafn nauðsynlegum fylgihlut hins daglega lífs eins og veski, sími og lyklar. iPod-inn hefur hins vegar ekki fengið jafn mikið vægi og halda mætti á heimilum fólks. Einhver breyting virðist þó vera þar á því vöggurnar, sem eru til í öllum stærðum og gerðum, hafa rokselst það sem af er mánuði. Virkni þeirra getur ekki verið mikið einfaldari; iPod-inum er einfaldlega stungið í græjuna og allt er tilbúið. Hljómburðurinn leynir á sér, auk þess sem um er að ræða litla og netta hátalara sem auðvelt er að taka með sér í sumarbústaðinn. Hvar? Apple-búðin. Fyrir hvern? Alla þá sem eiga iPod og leyfa öðrum að heyra tónlistina sína. Verð: Frá 12.900 kr. Stjörnusjónauki Hvað? Áhugi Íslendinga á gígjum og fjöllum tunglsins, stórum kúluþyrpingum, björtum og fallegum tvístyrnum, stjörnu- þokum og jafnvel fjarlægum vetrarbrautum virðist vera að aukast mikið miðað við sölutölur á stjörnusjónaukum síðustu vikur. Sjónaukarnir njóta einna mestra vinsælda meðal barna og unglinga, sem vilja ólm hafa einn slíkan við herbergisgluggann til að kíkja í fyrir svefninn. Hvar? Ormsson Fyrir hvern? Alla þá sem hafa áhuga á veröldinni sem við lifum í, ekki síst fyrir stráka og stelpur frá 12 ára og upp úr. Verð: Frá 9.900 kr. Hárplokkari Hvað? Ef marka má áhuga kvenna á hárplokkurum fyrir þessi jól virðist sem að stór hluti þeirra sé búinn að fá nóg af því að gera sér ferð á snyrtistofu með reglulegu millibili til að láta vaxa á sér fæturna. Hárplokkararnir rífa hárin upp frá rótum og innihalda sérstakt kælikerfi sem deyfa sársaukann. Þessi græja plokkar óæskileg hár hratt og auðveldlega og skilar mjúkri áferð sem endist í vikur. Með öðrum orðum: Algjör snilld! Hvar? Elko Fyrir hvern? Konur sem eru búnar að fá nóg af því að fara í vax. Verð: Frá 3.495 kr. Nintendo Wii Hvað? Þessi nýjasta afurð Nintendo-leikjatölvuframleiðand- ans býður upp á byltingarkennda möguleika sem gera kröfu um heldur meiri virkni spilanda en áður hefur tíðkast. Tölvan virkar þannig eins og ákveðinn sýndar- veruleiki, þar sem spilendur eru hluti af leiknum. Fjarstýring Wii er búin hreyfiskynjun og með því að beina henni að skjánum, sveifla henni, snúa, hrista, velta eða hvað sem leikurinn biður um, þá færast þær hreyfingar yfir á skjáinn. Hvar? Í öllum betri raftækja- verslunum Fyrir hvern? Börn og unglinga frá 8 ára aldri sem vilja hreyfa sig við að spila tölvuleiki. Einnig er ljóst er að fullorðnir geta vel gleymt sér í þeirri töfraveröld sem Wii býður upp á. Verð: Frá 29.900 kr. Þráðlaust heimabíó Hvað? Í stuttu máli; heimabí- ókerfi með engum snúrum, engum magnara og engum bakhátölurum. Um er að ræða tæki sem samanstendur af fjölda lítilla stafrænna kraftmagnara og hátalara sem stilltir eru eftir stærð rýmis og staðsetningar tækisins. Tækið skynjar alla veggi, endurvarpar hljóði af þeim og gefur þannig þá tálheyrn að hljóðið komi aftan frá. Útkoman er fullkomið heimabíó án allra aukahluta – sem virkar. Skyldueign fyrir alla þá sem þjást af tækjadellu. Hvar? Hátækni Fyrir hvern? Konur og karla sem eru búnar að fá nóg af snúrum og ótal hátölurum úti um alla stofu. Verð: Frá 79.995 kr. Tækin og tólin – fyrir þessi jólin Fyrir þá sem haldnir eru tækjadellu á ein- hverju stigi marka jólin upphafið að helstu gósentíð árs hvers. Á jólunum gefst þeim tækifæri til að kynna sér öll nýjustu tólin og tækin, og það sem betra er – það er hægt að biðja um þau í jólagjöf. Frétta- blaðið fór á stúfana og fékk upplýsingar um þau tæki sem eru vinsælust fyrir þessi jólin.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.