Fréttablaðið - 09.12.2007, Qupperneq 65
Glæsilegar íbúðir í Danmörku
Svinget og Hollænderdybet
2 til 4 herbergja íbúðir í göngufæri við Miðbæ
Stærð: 68-122 fm
Fjöldi herbergja: 2-4
Byggingarár: 2007
Brunabótamat: 0
Bílskúr: Nei
Verð: Frá 26.700.000
Við höfum fengið til sölu eftirsóttar íbúðir í aðeins nokkurra mínútna göngufæri við Íslandsbryggju sem er
með strandaðstöðu og fjölda grænna svæða. Það tekur aðeins ferð yfir Langebro og minna en 10 mínútur á
hjóli að komast á Ráðhústorgið í hjarta Kaupmannahafnar. Nánasta umhverfi einkennist af nútimalegum
byggingastíl, nýja óperuhúsinu á Holmen og grænni útivistarparadís fyrir alla fjölskylduna á Amagerfælled.
Íbúðirnar eru nálægt lestarstöð, Háskólanum í Kaupmannahöfn og Kristjánshöfn. Staðsetingin er einnig
mjög góð með tilliti til verslana á Strikinu, Amagerbrogade og verslunarmiðstöðvana Field’s og Fisketorvet,
en búið er að setja upp hjóla- og göngubrú frá Íslandsbryggju að Fisketorvet. Það tekur aðeins stuttan
hjólatúr að fara í Strandgarðinn á Amager, Kongens Nytorv eða Nýhöfn. Staðsetningin er kjörin hvort sem
um er að ræða barnafólk sem vill vera nálægt skólastofnunum og grænum svæðum eða óskar þess að búa
nálægt hjarta stórborgarinnar í iðu kaffihúsa og íþróttaiðkana eða er á efri árum með unun fyrir leikhús og
menningu. Byggingarnar eru nýjar með bílastæðum í kjallara, fallegum grænum garði með leiksvæði,
lyftum, þjófavarnarkerfi og glæsilegum svölum. Það er takmarkaður fjöldi bílastæða í kjallaranum sem
bjóðast fyrstu kaupendum til kaups. Íbúðirnar eru bjartar og nútímalega innréttaðar með eldhúsi/alrými með
útgengi á svalir, hágæða tækjum í eldhúsi, viðargólfum, baðherbergi með svörtum flísum og gólfhita, stórar
bjartar stofur og sum herbergjana eru með frönskum svölum. Innréttingarnar sem uppfylla kröfur
nútímafólks um þægindi og gæði. Íbúðirnar eru 2,3 eða 4 herbergja á einni eða tveimur hæðum og eru frá
68 til 122 fermetrar. Verð frá ÍSK 27,600,000
24
Lind
Þórarinn Jónsson
Lögg. fast. hdl.
Konráð Konráðsson
Sölufulltrúi
thorarinn@remax.is
konrad@remax.dk
RE/MAX Lind - Bæjarlind 14-16 - 201 Kópavogur - Sími: 5209500 - www.remax.is
0045 30693680