Fréttablaðið - 09.12.2007, Blaðsíða 67
ATVINNA
SUNNUDAGUR 9. desember 2007 2917
ÆVINTÝRALEG
STÖRF Í BOÐI!
Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins óska eftir starfsmönnum í fullt starf/hlutastarf.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtileg störf í hreinu fjallalofti s.s. lyftuvörslu,
miðasölu og veitingasölu um helgar.
Umsækjendur verða að vera áreiðanlegir, tilbúnir í mikla vinnu og hafa gaman af útiveru.
Ekki er nauðsynlegt að hafa bíl. Störfin henta fólki á öllum aldri, konum og körlum,
strákum og stelpum.
Vinnutími fyrir 100% starf er breytilegur. Mikill þegar opið er og í kringum opnun
en annars minni.
Vinnutími fyrir hlutastarf: Unnið eingöngu þegar opið er í fjöllunum.
Einnig er hægt að bjóða uppá fastar vaktir.
Um tímabundna ráðningu er að ræða eða út apríl 2008.
Laun eru skv. Kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkur.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn á heimasíðu Skíðasvæðanna www.skidasvaedi.is
eða á Magnús Árnason magnus@skidasvaedi.is
Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur I Bæjarhálsi 1
Sími 411 5000 I Bréfsími 411 5009 I www.itr.is I itr@itr.is
Velferðasvið
Droplaugarstaðir hjúkrunarheimili er í miðbæ Reykja-
víkur. Heimilið er allt endurnýjað og búa allir íbúar okkar í
einbýlum með sér baði. 8 eða 10 manns búa saman í litlum
heimiliskjörnum með sér borðstofu og dagstofu. Við leggjum
áherslu á heimilislegt umhverfi og er unnið eftir nýjum
áherslum í skipulagningu og umönnun íbúa.
Komið er til móts við þarfi r starfsmanna um sveigjanlega
vinnutíma með Time Care tímastjórnunar kerfi nu.
Á heimasíðunni er einnig að fi nna ýmsar upplýsingar um
heimilið og starfsemi þess.
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingar með áhuga á hjúkrun aldraðra
óskast til starfa sem allra fyrst á morgun-, kvöld- og
helgarvaktir, einnig á 40% næturvaktir .
Hjúkrunarfræðingur sinnir almennum hjúkrunarstörfum og er
stjórnandi vaktar. Vinnuhlutfall samkomulag.
Hæfniskröfur:
• Íslenskt starfsleyfi
• Reynsla í öldrunarhjúkrun æskileg
• Frumkvæði, þolinmæði og jákvætt viðhorf
Yfi riðjuþjálfi
Laus er staða yfi riðjuþjálfa frá 1. febrúar 2008.
Yfi riðjuþjálfi stjórnar iðjuþjálfun heimilismanna og ber ábyrgð
á henni í samræmi við hugmyndafræði, markmið og gæða-
kerfi heimilisins. Einnig sér iðjuþjálfi um að skipuleggja störf
aðstoðarfólks við iðjuþjálfun. Um fullt starf er að ræða.
Hæfniskröfur:
• Íslenskt starfsleyfi
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Samskiptahæfi leikar
• Reynsla af vinnu með öldruðum æskileg
• Frumkvæði, þolinmæði og jákvætt viðhorf
Sjúkraliði
Sjúkraliðar óskast til starfa á á morgun-, kvöld- og
helgarvaktir.
Sjúkraliði sinnir aðhlynningu samkvæmt hjúkrunaráætlun og
vinnur við hlið hjúkrunarfræðings á deildum
Vinnuhlutfall samkomulag.
Hæfniskröfur:
• Íslenskt starfsleyfi
• Reynsla í öldrunarhjúkrun æskileg
• Frumkvæði, þolinmæði og jákvætt viðhorf
Starfsmenn í umönnun
Óskum er eftir áhugasömum starfsmönnum í umönnun
sem fyrst eða eftir nánari samkomulagi. Um vaktavinnu
er að ræða. Starfsmenn vinna með hjúkrunarfræðinugum
og sjúkraliðum við umönnun og persónulega aðstoð við íbúa
heimilisins. Lágmarksaldur er 18 ár.
Hæfniskröfur:
• Góð almenn menntun
• Reynsla af umönnun aldraðra æskileg
• Góð íslenskukunnátta
• Frumkvæði, þolinmæði og jákvætt viðhorf
Nánari upplýsingar um ofangreind störf gefa Ingibjörg Bern-
höft forstöðumaður í síma 414 9502, netfang:
ingibjorg.bernhoft@reykjavik.is og Ingibjörg Þórisdóttir deild-
arstjóri starfsmanna- og gæðamála í sima 414 9503, netfang:
ingibjorg.halla.thorisdottir@reykjavik.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Droplaugar-
staða, ennfremur á heimasíðu heimilisins
www.droplaugarstadir.is
Umsóknum skal skila á Droplaugarstaði hjúkrunarheimili,
Snorrabraut 58, 105 Reykjavík eða í framangreind netföng
fyrir 22. desember nk.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag
sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar,
4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Droplaugarstaðir hjúkrunarheimili
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Sundsamband Íslands
óskar að ráða framkvæmdastjóra sambandsins.
Starfi ð er laust frá 1. janúar 2008 eða eftir nánara sam-
komulagi.
Um fullt starf er að ræða. Framkvæmdastjóri þarf að geta
unnið sjálfstætt og í nánu samstarfi við stjórn SSÍ.
Hæfniskröfur:
• Innsýn í málefni íþróttahreyfi ngarinnar og áhugi
á íþróttum
• Góð tölvukunnátta
• Þekking á markaðsmálum
• Vald á einu norðurlandamáli og ensku eða
frönsku.
Umsókn ásamt ferilskrá og mynd berist skrifstofu SSÍ,
Engjavegi 6, 104 Reykjavík fyrir 20. desember 2007.
Upplýsingar veitir Hörður J. Oddfríðarson formaður SSÍ í
síma 821-4597.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið s
undsamband@sundsamband.is .
» Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík
Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Ert þú í
atvinnuleit?
Skrifstofustörf
Lagerstörf
Verslunarstörf
Bókhaldsstörf
Ræstingarstörf
Sérfræðistörf
Útkeyrslustörf
Sölustörf
Stjórnunarstörf
Störf við kerfisstjórn
Störf við forritun
Framleiðslustörf
Iðnstörf
Þjónustustörf
Fjöldi starfa í boði.
» Kannaðu málið á
www.hhr.is
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA