Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.12.2007, Qupperneq 68

Fréttablaðið - 09.12.2007, Qupperneq 68
ATVINNA 9. desember 2007 SUNNUDAGUR30 Kristín Ástgeirsdóttir á glæstan feril í jafn- réttismálum og í byrjun september tók hún við starfi framkvæmdastýru Jafnréttisstofu á Akur- eyri. Jafnréttisstofa var stofnuð í Jafnréttisráði árið 2000 og flutti í kjölfarið til Akureyr- ar. Kristín Ástgeirsdóttir tók við stöðu framkvæmda- stýru þann fyrsta septemb- er síðastliðin en óhætt er að fullyrða að fáir hafi jafnvíð- tæka þekkingu á íslenskri jafnréttisbaráttu og Krist- ín. „Áhugi minn á jafnréttis- málum hófst fyrir alvöru þegar ég hóf nám við Há- skóla Íslands. Þá tók ég þátt í seinni hluta ævi Rauð- sokkahreyfingarinnar og var þá smátt og smátt að vakna til vitundar um stöðu kvenna og hversu mikið hall- aði á konur á öllum sviðum þjóðfélagsins,“segir Krist- ín, sem að sjálfsögðu kýs að kalla sig framkvæmdastýru en ekki stjóra. Kristín er menntaður sagnfræðingur og nefnir einnig fög á borð við stjórn- málafræði og félagsfræði auk kynjafræðinnar sem góðan grunn fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa að jafnréttismálum. Í kjölfar kvennaársins 1975 gekk Kristín til liðs við Rauðsokkurnar og var einn stofnenda Kvennafram- boðsins árið 1982 og sat á þingi fyrir Kvennalistann frá 1991-1999. Síðan starfaði Kristín fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Kosovo á árunum 2000 til 2001 en ákvað svo að ljúka meistaranámi í sagnfræði. Í kjölfarið tók Kristín að sér stundakennslu við Há- skóla Íslands og árið 2005 tók hún við stöðu forstöðu- manns á Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræð- um. „Ég starfa við mitt aðal- áhugamál í dag eins og ég hef gert undanfarin ár og í raun hef ég sinnt kvenna- baráttunni í fullu starfi frá 1991,“ útskýrir Kristín sem segir starfið í stuttu máli ganga út á úthlutun verk- efna, gerð starfsáætlun- ar, fjármál stofunnar og að sinna norrænu og evrópsku samstarfi. Auk þess sem það kemur í hlut Kristínar að flytja fyrirlestra, skrifa greinar, svara fyrirspurn- um og eiga samskipti við fjölmiðla og stjórnvöld. „Fyrri starfsreynsla hefur reynst mér mjög vel í þessu starfi. Auk stjórnmála og félagsstarfa en síðan get ég einnig nefnt þjálfun sem ég fékk sem blaðakona fyrir mörgum árum sem ég nýt enn góðs af. Þar lærði ég að vinna út aðalatriðin, þjappa saman texta og miðla þeim upplýsingum sem áttu að komast til skila,“ útskýr- ir Kristín, sem segir starf- ið bæði viðamikið og spenn- andi. „Það leiðinlegasta er hins vegar neikvæð viðhorf og þekkingarleysi og skort- ur á að fólk þori að viður- kenna að það halli á konur í íslensku samfélagi. Það skemmtilegasta við starfið er hins vegar fjölbreytileik- inn og allt fólkið sem ég hitti og starfa með,“ segir Krist- ín. Allar nánari upplýsingar um Jafnréttisstofu má finna á www.jafnretti.is rh@frettabladid.is Jafnréttið er fjölbreytt og spennandi Kristín Ástgeirsdóttir á glæstan feril innan jafnréttismála og hefur nú tekið við stöðu framkvæmdastýru Jafnréttisstofu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þekking og öflug þjálfun er forskot ICELANDAIR FÆR STARFSMENNTAVERÐLAUN Í FLOKKI FYRIR- TÆKJA OG FÉLAGASAMTAKA. Starfsmenntaverðlaunin 2007 voru nýverið afhent í áttunda sinn og varð Icelandair hlutskarpast í flokki fyrirtækja og félagasamtaka. Sú áhersla sem fyrirtækið leggur á þjálfun og símenntun starfsmanna til að ná samkeppnisforskoti hafði þar úrslitaáhrif. Þá fékk Þórunn Sveinbjarn- ardóttir, fyrrverandi formað- ur starfsmannafélagsins Sókn- ar og fyrrverandi varaformaður Eflingar, verðlaun í opnum flokki fyrir frumkvæði í starfsmennta- málum. Miðstöð símenntunar á Suðurnesj- um hlaut síðan verðlaun í flokki fræðsluaðila fyrir öfluga starfsemi. Þetta kemur fram á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins, www.sa.is - rve Áhersla Icelandair á þjálfun og símenntun starfsmanna sinna tryggði fyrirtækinu starfsmenntaverðlaun. 18 Leikskólasvið Leikskólasvið annast starfsemi og rekstur leikskóla. Í því felst þróun leikskólastarfs, undirbúningur stefnumörkunar, mat og eftirlit með skólastarfi og upplýsingamiðlun fyrir leikskólaráð og starfshópa á vegum ráðsins. Laus er staða fjármálafulltrúa á Leikskólasviði Reykjavíkur- borgar. Starfssvið fjármálaþjónustu er m.a. að annast fjárhags- og rekstraráætlanir, fjármálalega ráðgjöf til leikskólastjóra og fjárhagseftirlit, innheimtu, úttektir, samningagerð og uppgjör. Leikskólasvið þjónustar um 80 leikskóla auk skrifstofu sviðs- ins. Starfssvið fjármálafulltrúa: • Fjárhags- og rekstraráætlanagerð • Fjármálaleg ráðgjöf til leikskólastjórnenda • Fjárhagseftirlit • Uppgjör Menntunar- og hæfniskröfur: • Viðskiptafræði á háskólastigi eða sambærilegt nám • Framhaldsmenntun er kostur • Reynsla af fjármálaumsýslu æskileg • Lipurð í samskiptum og færni til að starfa í hópi Upplýsingar um starfi ð veita Kristín Egilsdóttir fjármálastjóri, kristin.egilsdottir@reykjavik.is og Ingunn Gísladóttir, starfs- mannastjóri, ingunn.gisladottir@reykjavik.is í síma 411-7000 Umsóknarfrestur er til og með 23. desember 2007 Umsókn fylgi yfi rlit yfi r nám og störf og sendist til Leikskóla- sviðs, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík eða starfsumsoknir. leikskolar@leikskolar.is. Laun eru skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. Fjármálafulltrúi á Leikskólasviði Reykjavíkurborgar Leikskólasvið Leikskólasvið annast starfsemi og rekstur leikskóla. Í því felst þróun leikskólastarfs, undirbúningur stefnumörkunar, mat og eftirlit með skólastarfi og upplýsingamiðlun fyrir leikskólaráð og starfshópa á vegum ráðsins. Laus er staða verkefnastjóra á Leikskólasviði. Megin verkefni eru að veita ráðgjöf og fræðslu til leikskóla vegna barna og foreldra og annast úthlutun fjármagns vegna barna af erlend- um uppruna og fylgja eftir niðurstöðum kannana. Hlutverk: • Að veita ráðgjöf til leikskóla varðandi foreldrasamvinnu, aðlögun barna, íslenskukennslu og fjölmenningar starf • Að bera ábyrgð á úthlutun fjármagns vegna barna af erlendum uppruna • Að vinna úr og fylgja eftir niðurstöðum úr könnunum • Að vera ráðgefandi varðandi kynningar og útgáfumál • Að vera fulltrúi Leikskólasviðs í nefndum og samráðshópum er varða málafl okkinn Menntun: Leikskólakennaramenntun, æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsmenntun í fjölmenningarfræðum. Hæfniskröfur: • Starfsreynsla úr leikskóla • Samskiptahæfni • Góð tölvuþekking • Skipulagshæfi leikar, frumkvæði, áhugi og metnaður Upplýsingar um starfi ð veitir Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólaskrifstofu, hildur.skarphedinsdottir@ reykjavik.is, í síma 411-7000/693-9803. Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar 2008. Umsókn fylgi yfi rlit yfi r nám og störf og sendist til Leikskóla- sviðs, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík eða starfsumsoknir. leikskolar@leikskolar.is. Laun eru skv. kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Félags leikskólakennara. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. Verkefnastjóri á Leikskólasviði Reykjavíkurborgar Verkefnastjóri tæknimála ökutækja Starfi felst einkum í mótun laga og reglna um tæknileg málefni, innlei ingu EES ger a, eftirliti me sko un og skráningu ökutækja, umsjón me sko unarhandbók og tæknilegum samskiptum vi sko unarstofur. Starfi er fjölbreytt og krefjandi og hentar einstaklingi sem hefur áhuga og ekkingu á bíltæknimálum og getur teki a sér verkefnastjórnun á ví svi i. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf á svi i verkfræ i, tæknifræ i e a sambærilegu. • Hefur gott vald á ensku og nor urlandamáli • Starfsreynsla á svi i bíltæknifræ a gó ur kostur • Hæfileiki til a skrifa íslenskan texta og róa hentugt verklag. • Leita er a einstaklingi sem er úrræ agó ur, skipulag ur, ábyrgur og gó ur hópstjóri. Umsóknarfrestur er til 17. desember. Hægt er a sækja um me eftirfarandi hætti: • á vefsvæ i Umfer arstofu á sí unni http://www.us.is/atvinnuumsokn • me ví a senda umsókn (CV/ferilskrá) á verkefnastjóra starfsmannamála, olof@us.is e a • senda skriflega umsókn á eftirfarandi heimilisfang: Umfer arstofa Bt. Ólafar Fri riksdóttur Borgatún 30 105 Reykjavík Nánari uppl singar veitir Dagn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri ökutækjasvi s, s. 580-2013. Öllum umsóknum ver ur svara egar ákvör un um rá ningu hefur veri tekin. Uppl singar um Umfer arstofu má finna á heimasí u: http://www.us.is/ 60
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.