Fréttablaðið - 09.12.2007, Page 94
... AÐ TJALDABAKI
menning
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
Leiklist.is er aftur
komin á stjá eftir
að hafa verið í
nokkrum dróma
um tíma. Þar
eru raktar ýmsar
fréttir af leiklist-
arlífi og ætla forstöðumenn
vefjarins að einbeita sér að
upplýsingum um starfsemi
áhugamannafélaga, sjálf-
stæðra leikhópa og svokall-
aðra stofnanaleikhúsa. Fyrir
eru vefir Þjóðleikhússins,
www.leikhusid.is, Borgarleik-
hússins, www. borgarleikhus.
is, sjálfstæðu leikhúsanna
auk síðna margra smærri
hópa að ógleymdum vefjum
Íslenska dansflokksins, www.
id.is, og Leikminjasafnsins,
www.leikminjar.is sem
geymir margháttaðar upplýs-
ingar um hið kröftuga starf
leikhúsfólks.
Baltasar Kor-
mákur stendur í
ströngu í æfing-
um á Ivanov
en samstofna
er kvikmynd
sem hann er
nú að klippa. Þá mun hann
setja upp Óþelló í Barbican
á næsta ári og er einnig í
viðræðum um sviðsetningu
á Design for Living í Old Vic.
Forest Whitaker mun leika
márann en Ingvar Sigurðsson
Jagó öðru sinni en hann fór
með það hlutverk í minnis-
stæðri sviðsetningu Guðjóns
Pedersen fyrir Nemendaleik-
húsið fyrir nær sextán árum
en þá lék Balti Óþelló.
Óþelló, Desdemóna og Jagó
er heiti á verki sem Gunnar
Guðsteinsson setur á svið
í upphafi næsta árs í eigin
leikgerð. Sýningin er sam-
vinnuverkefni Draumasmiðj-
unnar, Leikfélags Reykjavíkur
og Íslenska dansflokksins
sem frumsýnd verður á litla
sviði Borgarleikhússins í jan-
úar. Aðeins eru þrjú hlutverk
í verkinu og hvert þeirra
hefur sitt eigið tjáningarform:
í hlutverki Óþellós er dans-
arinn Brad Sykes, í hlutverki
Desdemónu er heyrnarlausa
leikkonan, Elsa Guðbjörg
Björnsdóttir, sem tjáir sig á
táknmáli og í hlutverki Jagós
er leikarinn Hilmir Snær
Guðnason sem fer með allan
talaðan texta á íslensku.
desember 2007
einstakt
eitthvað alveg
Skipholt 50A • sími: 581 4020
www.gallerilist.is