Fréttablaðið - 09.12.2007, Page 109

Fréttablaðið - 09.12.2007, Page 109
SUNNUDAGUR 9. desember 2007 41 Leikarinn Ray Liotta hefur verið dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi eftir að hann játaði fyrir rétti að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Liotta, sem er 52 ára, var handtekinn í febrúar fyrir að klessa á tvo kyrrstæða bíla í Los Angeles. Liotta þarf að borga yfir- völdum sekt og greiða eigendum bílanna skaðabætur. Einnig var honum gert að mæta á fræðslufundi um skaðleg áhrif áfengis. Nýjasta plata söngkonunnar Madonnu, sem kemur út í apríl, mun heita Licorice. Platan verður sú ellefta í röðinni frá popp- dívunni og sú fyrsta síðan Confessions on a Dancefloor kom út árið 2005 við mjög góðar undirtektir. Licorice verður síðasta platan sem Madonna gefur út hjá Warner Brothers því hún skrifaði nýlega undir stóran útgáfusamning hjá Live Nation. Leikarinn Kevin Spacey hefur hlaupið í skarðið fyrir Tommy Lee Jones sem kynnir á nóbelsverð- launatónleikum sem verða haldnir í Osló í næstu viku. Við hlið Spacey sem kynnir verður leikkonan Uma Thurman. Tónleikarnir eru haldnir til heiðurs Al Gore og loftslags- nefnd Sameinuðu þjóðanna sem hlutu friðarverðlaun- in í ár. Á meðal þeirra sem stíga á svið verða Kylie Min- ogue, Alicia Keys og Annie Lennox. Ekki hefur fengist sýningarleyfi í Kína fyrir nýjustu kvikmynd Will Smith, vís- indatryllinn I Am Legend. Orð róm- ur hefur verið um að yfirvöld í Kína hafi sett tímabundið bann á bandarískar myndir til að auka áhugann á þeim myndum sem eru framleiddar í heimalandinu. I Am Legend, sem er byggð á samnefndri skáldsögu Richards Matheson, fjallar um persónu Will Smith sem er ein af fáum eftirlifendum banvæns faraldurs sem hefur gengið yfir jörðina. FRÉTTIR AF FÓLKI „Þetta er ein af mínum eftirlætisstundum og af þáttunum tólf er þetta sá þáttur sem ég er stoltastur af,“ segir leikstjórinn Ragnar Bragason en í kvöld dregur til tíðinda í Næturvaktinni þegar öll spilin verða lögð á borðið hjá þeim Georg, Daníel og Ólafi Ragnari sem þeir Jón Gnarr, Jörundur Ragnarsson og Pétur Jóhann Sigfússon hafa leikið af mikilli snilld. Sjónvarpsáhorfendur hafa fylgst agndofa með framvindu mála hjá starfsmönnum bensínstöðvarinnar við Laugaveg og Ragnar lofar því að fólk eigi ekki eftir að verða fyrir vonbrigðum. Enda verði upplýst hvað verði um starfsmannasjóðinn, hvort umboðsmanna- draumur Ólafs Ragnars rætast og ekki síst, hvort örvar Amors hæfi þau Daníel og Ylfu í sjoppunni í hjartastað. Næturvaktin er þegar orðin vinsælasti sjónvarpsþáttur Stöðvar 2 frá upphafi og má reikna með að margir eigi eftir að bíða spenntir eftir endalokunum. Vinsældir þáttanna hafa komið leikstjóran- um skemmtilega óvart þótt Ragnar viðurkenni að hann hafi snemma gert sér grein fyrir því að þeir væru með gott efni í höndunum. „En að þættirnir skyldu hafa höfðað til svona breiðs áhorfenda- hóps kom mér í opna skjöldu,“ segir Ragnar. Og þótt þetta sé síðasti þátturinn af Næturvaktinni geta áhorfendur strax farið að hlakka til næsta vetrar enda kemur þá sjálfstætt framhald, Dagvaktin. „Við fundum það strax við gerð þáttanna að við vildum fara lengra og klára sögu þessara persóna,“ segir Ragnar. - fgg Dramatísk kveðjustund í kvöld DRAMATÍKIN ALLSRÁÐANDI Ragnar seg- ist geta lofað því að fólk eigi ekki eftir að verða fyrir vonbrigðum með síðasta þátt Næturvaktarinnar. VINSÆLASTI ÞÁTTURINN FRÁ UPPHAFI Næturvaktin hefur slegið í gegn og er þegar orðin vinsælasti sjónvarpsþáttur Stöðvar 2 frá upphafi. Hnoðuð lagkaka Holtagarðar & Smáralind & Kringlunni Nú er Jói Fel byrjaður að undirbúa jólin. Leggjum mikinn metnað í að vera með ferskt og gómsætt bakkelsi á boðstólum fyrir viðkiptavini okkar. Skoppa og Skrítla árita í Hagkaup Skoppa og Skrítla mæta og áritanýju bókina sína og nýja DVD diskinn sinn í HagkaupSmáralind kl. 13:00,Kringlunni kl. 14:00og í Holtagörðum kl. 16:00 ÁRITUNÍ HAGKAUPUM Í DAG Út er komin bókin Skoppa og Skrítla læra um tölur og dýr. Bók og hljóðdiskur í einum pakka. Þessi bók er gullmoli fyrir alla fróðleiksfúsa snúða og snældur. Einnig fáanlegir geisladiskurinn Skoppa og Skrítla á söngferðalagi og DVD diskurarnir Litla stundin með Skoppu og Skrítlu. GEISLA- DISKUR FYLGIR Skoppa og skrítla í Þjóðleikhúsinu er DVD diskur þar sem þær stöllur leika á allsoddi. Nú mætir lúsí einnig í fyrsta skipti og áritar með þeim skoppu og skrítlu - aðeins í dag!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.