Fréttablaðið - 24.01.2008, Page 8
8 24. janúar 2008 FIMMTUDAGUR
1. Hversu mörg ár voru í gær
liðin frá því að eldgosið á
Heimaey hófst?
2. Hvaða leikkona er að læra
ensku með íslenskum hreim
fyrir hlutverk sitt í kvikmynd
sem byggð er á bókinni Slóð
fiðrildanna?
3. Hvað heitir forseti Pakistans
sem nú er á ferð um Evrópu og
segir Vesturlönd hafa „lýðræðið
á heilanum“.
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 54
Auglýsingasími
– Mest lesið
GAZASTRÖNDIN, AP Tugir þúsunda
íbúa Gazastrandarinnar streymdu
yfir landamærin inn í Egyptaland
í gær eftir að sautján jarð-
sprengjur voru notaðar til að
sprengja upp hluta af tólf kíló-
metra vegg sem skilur að Gaza og
Egyptaland. Vika er síðan Ísrael
lokaði sínum landamærum að
Gaza til refsingar fyrir tíðar eld-
flaugaárásir þaðan.
Fólk gekk óhindrað yfir fallinn
málmplötuvegg sem hafði áður
hindrað för yfir landamærin og
sneri svo aftur með ýmsar vörur.
Forseti Egyptalands, Hosni
Mubarak, fyrirskipaði landamæra-
lögreglunni að hleypa Palestínu-
mönnunum í gegn því þeir væru
að „svelta“ vegna landamæra-
lokunar Ísraela.
Egypski landamærabærinn
Rafah fylltist af fagnandi Gaza-
búum sem keyptu sígarettur, elds-
neyti á plastbrúsum og aðrar vörur
sem skortur hefur orðið á eftir
miklar hömlur á ferðafrelsi til og
frá Gaza undanfarna mánuði.
Sumir sáust bera til baka sjónvörp
og bíldekk, jafnvel mótorhjól.
Þessi tímabundna opnun landa-
mæranna kemur sem blessun fyrir
Hamas-samtökin sem fara með
stjórn á Gaza þar sem hún léttir
um stund álaginu sem landamæra-
lokun Ísraela veldur.
Palestínumenn hafa brotið sér
leið gegnum landamærin að
Egyptalandi nokkrum sinnum
síðan Ísrael hvarf burt af Gaza
árið 2005 og hafa egypsk stjórn-
völd lokað þeim aftur yfirleitt
samdægurs. Aldrei fyrr hefur
jafn mikið af veggnum verið eyði-
lagður en tveir þriðju hlutar hans
féllu í gær. Veggurinn var reistur
árið 2001 af Ísraelsmönnum sem
þá fóru með stjórn á Gaza.
Hamas tók ekki ábyrgð á
sprengingunum en ólíklegt þykir
að slík aðgerð geti hafa farið fram
án þátttöku eða að minnsta kosti
vitundar Hamas.
sdg@frettabladid.is
Gazabúar streymdu
yfir fallin landamæri
Jarðsprengjur felldu í gær vegg sem aðskilur Gaza og Egyptaland. Gazabúar
þustu í gegn og keyptu vörur eftir marga mánuði af skorti vegna skerts ferða-
frelsis. Vika er síðan landamærum að Ísrael var lokað til refsingar fyrir árásir.
FRELSINU FEGNIR Palestínumenn frá Gaza þramma yfir fallinn vegg sem aðskildi Gaza og Egyptaland. Margir notuðu tækifærið
og birgðu sig upp af vörum sem skortur er á heima fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMGÖNGUR Flugstjóri áætlunarvélar Iceland
Express frá Kaupmannahöfn í fyrrakvöld hemlaði á
miðri braut rétt áður en vélin átti að hefja sig á loft.
Guðbergur Ólafsson í rekstrardeild Iceland
Express segir að eftir að vélin hafi verið komin af
stað í flugtak hafi flugmennirnir veitt því athygli að
siglingatæki sem heitir gerfisjóndeildarhringur
virkaði ekki. Vélin hafi þá verið komin á 75 hnúta
hraða. Miðað væri við að ekki væri hætt við flugtak
eftir að 120 hnúta hraða væri náð. Þeir hafi tekið þá
faglegu ákvörðun að hætta við flugtak til að láta líta
á bilunina.
Guðbergur segir að alls ekki hafi verið um
nauðhemlum að ræða. „Þeir voru aðeins að reyna að
stoppa sem fyrst og bremsuðu því rösklega,“ segir
hann og tekur fram að enginn hafi meiðst og engar
skemmdir orðið. „Það var heldur ekki möguleiki á
því.“
Að sögn Guðbergs var í fyrstu talið að viðgerðin
myndi taka stutta stund og því hafi vélinni verið
ekið með alla áttatíu farþegana að viðgerðarstæði.
Bilunin hafi hins vegar reynst tímafrekari.
„Töfin fyrir farþegana varð reyndar meiri en við
hefðum viljað,“ viðurkennir Guðbergur sem segir
farþegana á endanum hafa verið flutta inn á flugstöð
um klukkan hálftólf og þaðan á hótel þar sem þar
gistu um nóttina. Þeir hafi síðan flogið heim í
hádeginu í gær. - gar
Óþægindi og óvænt næturdvöl hjá farþegum Iceland Express í Köben:
Hemluðu rétt fyrir flugtak
ICELAND EXPRESS Bilun í siglingatæki varð til þess að hætt
var við flugtak í miðjum klíðum. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
GRINDAVÍK Um fimmtíu jarð-
skjálftar urðu skammt fyrir utan
og í Grindavík í fyrrinótt og gær-
morgun. Fyrsti skjálftinn sem
var upp á fjóra á Richter reið yfir
skömmu fyrir tvö um nóttina.
Annar skjálfti upp á tæplega
fjóra á Richter varð svo korter
fyrir sex um morguninn. Eftir-
skjálftar fylgdu í kjölfarið.
„Ég vaknaði klukkan tvö og
mér krossbrá. Ég er frekar
hrædd við þessa skjálfta því að
tilfinningin er svo óhugnanleg,“
segir Erla Dagbjört Ölversdóttir,
íbúi á Mánagötu í Grindavík. „Ég
lá við hliðina á manninum mínum
og opnaði augun þegar skjálftinn
varð. Ég leit á hann og þá lá hann
með galopin augun. Þessi jarð-
skjálfti var sterkur og óþægileg-
ur og mér tókst illa að sofna eftir
hann.“ Erla Dagbjört segist hafa
fundið svo aftur fyrir tveimur
skjálftum í gærmorgun þegar
hún var að tala við vinkonu sína í
síma.
Erla Dagbjört er með gamal-
dags hillu og styttur fyrir ofan
rúmið sitt en segir að engin stytta
hafi dottið. „Það fór ekkert úr
hillum hjá okkur en ég fór ein-
mitt að hugsa um þetta,“ segir
hún.
Hjörleifur Sveinbjörnsson,
jarðfræðingur hjá Veðurstof-
unni, segir að tveir skjálftar upp
á fjóra hafi komið, einn upp á
þrjá og svo fjöldi smáskjálfta.
Skjálftarnir hafi flestir átt upp-
tök sín um einum kílómetra norð-
austan við Grindavík en tveir
hafi þó átt upptök sín inni í
bænum, á sprungu sem liggur í
norðaustur og er um þrír kíló-
metrar að lengd. - ghs
Um fimmtíu jarðskjálftar urðu rétt fyrir utan og í Grindavík:
Vaknaði við jarðskjálftaog krossbrá
MÉR KROSSBRÁ „Ég vaknaði klukkan
tvö og mér krossbrá,“ segir Erla Dagbjört
Ölversdóttir, íbúi í Grindavík.
VEISTU SVARIÐ?