Fréttablaðið - 24.01.2008, Side 40
24. JANÚAR 2008 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● vetrarlíf
Þótt Kaldbakur við austanverðan Eyjafjörð
bjóði upp á eina lengstu skíðabrekku lands-
ins þegar aðstæður leyfa þá er þar lítið um að
vera nú vegna snjóleysis.
„Það er hálfgert hörmungarástand hér í
snjómálum og starfsemin liggur því niðri eins
og er. Við erum alls ekki ánægð með þetta,“
segir Sigurbjörn Höskuldsson, eigandi Kald-
baksferða ehf. Hann er þekktur fyrir að koma
fólki upp á Kaldbak með snjótroðara. Sigur-
björn er þó frekar bjartsýnn og vonast til að
hægt verði að byrja með fastar ferðir upp í
næsta mánuði. „Við erum með áform um
heilmikla starfsemi með vorinu. Til dæmis
er margt planað í maí,“ segir hann og bendir
fólki á að fylgjast með á heimasíðunni www.
kaldbaksferdir.com.
Snjótroðarinn fer upp í 1.174 metra hæð
þegar best lætur og tekur ferðin 45 mínút-
ur á toppinn. Þaðan er útsýni stórbrotið. Fólk
getur svo valið hvort það tekur sér far með
tækinu niður aftur eða brunar á skíðum, sleð-
um eða snjóþotum.
„Góðu fréttirnar eru þær að vegur var lagð-
ur upp á Grenjárdal í haust í um 430 metra
hæð og því verður hægt að fara í troðaraferðir
lengur fram á vorið þótt snjóinn taki úr Greni-
víkurfjallinu,“ segir Sigurbjörn.
Margt planað í maí í lengstu skíðabrekku landsins
Sigurbjörn vonast til að hægt verði að
hefja ferðir upp í næta mánuði.
Kaldbakur við Eyjafjörð er heillandi til útivistar þegar
nægur snjór er.
SKAUTAHÖLLIN Í LAUGARDAL
Börn: 500 krónur
Fullorðnir: 700 krónur.
Leiga á skautum: 300 krónur
Leikskólabörn borga 200
krónur bæði fyrir aðgang og
skautaleigu.
Afsláttur er veittur fyrir hópa
yfir 20 manns á almennings-
tímum.
SKAUTASVELLIÐ EGILSHÖLL
Börn: 450 krónur
Fullorðnir: 500 krónur.
Skautaleiga: 300 krónur.
Eldri borgarar, öryrkjar og leik-
skólabörn frá ókeypis aðgang.
SKAUTAHÖLLIN Á AKUREYRI
Börn frá 5 til 16 ára: 400 krón-
ur
Fullorðnir: 500 krónur
Skautaleiga: 300 krónur.
Skautasvell
Alltaf gaman á skautum.
WWW.N1.ISN1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
27
79
/
T
A
1
0.
20
07
SUPER SWAMPER
GROUND HAWG
DEKK OG FELGUR
FYRIR JEPPA
Fellsmúla 24, Rvk. s: 530 5700
Réttarhálsi 2, Rvk. s: 587 5588
Ægisíðu 102, Rvk. s: 552 3470
Langatanga 1, Mos. s: 566 8188
Reykjavíkurvegi 56, Hfj. s: 555 1538
Dalbraut 14, Akranes. s: 431 1777
EAGLE ALLOYS
POLISHED
DOTZ
LUXOR
U.S. WHEEL
SILVER TRACKER
U.S. WHEEL
CHROME TRACKER
COOPER
DISCOVERER ATR
JEPPA OG JEPPLINGADEKK
COOPER
DISCOVERER M+S
JEPPA OG JEPPLINGADEKK
GROUND HAWG II
FÁANLEGT Í 36 - 44"
15 -16,5" FELGUR
SUPER SWAMPER
SSR
FÁANLEGT Í 35 - 38"
15 -18" FELGUR
SUPER SWAMPER
IROK
FÁANLEGT Í 33 - 49"
15 -18" FELGUR
EAGLE ALLOYS
1144
Skíðastaðagangan fer fram
norður á Akureyri um helg-
ina, en þar verður keppt í 5, 10
og 20 kílómetra skíðagöngu. Að
sögn Jóhannesar Kárasonar,
formanns skíðagöngunefndar
Skíðafélagsins á Akureyri, nýtur
gangan sífellt meiri vinsælda á
milli ára og þess vænst að þátt-
taka verði góð í ár.
„Þeim fer fjölgandi sem taka
þátt, en í fyrra gengu 80 manns
þótt sá fjöldi hafi auðvitað deilst
niður á vegalengdir,“ segir
Jóhannes máli sínu til stuðn-
ings, en þess má geta að gangan
er hluti af svokallaðri Íslands-
göngu, sem er samheiti yfir
göngur vítt og breitt um landið
og lýkur með göngu á Ísafirði.
Engin skilyrði eru sett fyrir
þátttöku í göngunni þótt Jóhann-
es mæli reyndar með því að
menn hafi undirbúið sig gerist
þeir svo djarfir að ganga 20 kíló-
metra. Þeir sem ná því hljóta að
launum stig en verðlaun og við-
urkenningar verða veittar og
boðið upp á kaffi í dagslok.
Gangan hefst klukkan 13 á
laugardag við Gönguhúsið í
Hlíðarfjalli, en nánari upplýs-
ingar fást á heimasíðunni www.
skidi.is.
Aukin þátttaka