Fréttablaðið - 21.02.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500021. febrúar 2008 — 51. tölublað — 8. árgangur
HAFNARFJÖRÐUR
Draumadagur í hafn-
arbænum í hrauninu
Sérblað um Hafnarfjörð
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
MELKORKA ÓLAFSDÓTTIR
Fann forláta jakka
á götumarkaði
tíska heilsa heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Arnar á hæðinni
Leikarinn og
miðbæjarrottan
Arnar Jónsson
auglýsir nýtt hverfi á
Arnarneshæð.
FÓLK 58
Mótvægisaðgerð í
uppsveitum
Ný rannsóknarstofa í
íþrótta- og heilsufræði
var nýlega stofnuð við
Kennaraháskólann á
Laugarvatni.
TÍMAMÓT 34
Nú reynir á
„Bankarnir verða að standa á eigin
fótum. Þeir geta ekki verið þekktir
fyrir að hlaupa undir pilsfald ríkis-
ins,“ skrifar Þorvaldur Gylfason.
Í DAG 26
FÓLK Mette-Marit, krónprinsessa
Noregs, skartaði hárspöng frá
íslenska hönnuðinum Thelmu
Björk Jónsdóttur við afhendingu
Nóbelsverðlaunanna í desember
síðastliðnum. Mette-Marit var
færð spöngin að gjöf frá sameig-
inlegum vinum hennar og
Thelmu.
„Að hún skyldi nota hana við
þetta tækifæri er náttúrlega
æðislegt, og mikill heiður fyrir
mig,“ segir Thelma, sem er búsett
í París. Hárskraut hennar hefur
vakið töluverða athygli, og komst
meðal annars á síður breska
Vogue. Það er nú fáanlegt í fimm
löndum. - sun / sjá síðu 46
Hárskraut Thelmu vinsælt:
Íslensk hönnun
á Nóbelnum
YFIRLEITT HÆGVIÐRI Í dag
verður víðast hæg vestlæg átt. Snjó-
koma eða slydda sunnan til, stöku
él á landinu vestanverðu annars
úrkomulítið. Frost 0-7 stig.
VEÐUR 4
-5 -3
0
0
0
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Flautuleikarinn Melkorka Ólafsdóttir er hrifin af
vönduðum og kvenlegum fötum en lætur tísku-
bylgjur lítið á sig fá.
Melkorka hefur sjaldan fylgt sérstökum bylgjum eða
tískustraumum heldur farið sínar eigin leiðir í fata-
vali. „Mér hefur stundum verið strítt á því að ég sé
voðalega góð í því að finna flíkur sem enginn a
rekst á í ólíklegustu búðu “er hú
heldur að hann geti verið frá Suður-Ameríku og jafn-
vel frá Austur-Evrópu. „Ég mundi segja að þetta væri mjög vandaður jakki.
Hann er svartur í grunninn en þó alsettur litríku
munstri. Svo er hægt að snúa honum við og þá verður
hann ennþá litríkari,“ lýsir Melkorka en hún gengur
mikið í rauðu, grænu og bláu Hún k i
fötum sínum e l
Fer sínar eigin leiðir
GÓÐAR Í GRÁUStjörnurnar virðast margar hrifnar af gráa litnum þessa dagana.
TÍSKA 2
ÖÐRUVÍSI ÚTIHURÐIRÚtidyrahurðin skiptir óneitan-lega máli fyrir ásýnd hússins.HEIMILI 6
Melkorka keypti jakkann á götumarkaði í Amsterdam en það er alls kostar óljóst hvað-an hann er upprunninn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FIMMTUDAGUR
hafnarfjörður Bærinn í hrauninuÁ hundrað árum hefur íbúum Hafnarfjarðar fjölgað úr 1.469 í rúmlega 24 þúsund. BLS. 2
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008
VelduektaMyllu
Heimilsbrauð
- brauðið semallir
á heimilinu velja
Skráning á
landsbanki.is
VEÐRIÐ Í DAG
VIÐSKIPTI Tillaga um stórfellda
lækkun þóknunar til stjórnar- og
varastjórnarmanna var samþykkt
með lófataki á aðalfundi Glitnis í
gær. Tillöguna lagði fram Þor-
steinn Már Baldvinsson, nýr
stjórnarformaður bankans.
Laun formanns stjórnar lækka
úr rúmri milljón í 550 þúsund
krónur á mánuði og laun almennra
stjórnarmanna lækka um 100
þúsund, verða 250 þúsund krónur á
mánuði.
Þorsteinn segir að tími hagræð-
ingar, ráðdeildar og sparnaðar sé
fram undan hjá bankanum. Glitni
segir hann eiga að vera leiðandi í
að skera niður kostnað svo
hluthafar og viðskiptavinir geti vel
við unað. - óká / sjá síðu 24
Ráðdeild ráði hjá Glitni:
Laun stjórnar-
manna lækkuð
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde forsæt-
isráðherra metur það sem kost að
Ísland standi utan við Evrópusam-
bandið þegar ný efnahagsstórveldi
á borð við Kína og Indland eru að
verða til.
Hann nefnir nýlegan samning
EFTA og Kanada og samning
Íslands og Kína sem er í farvatn-
inu. „Þetta getum við af því að við
höfum til þess meira svigrúm en
aðildarþjóðir Evrópusambandsins
sem afsala sér fullveldi gagnvart
þessu til sambandsins.“
Geir segir að nú þegar einhliða
upptaka evru sé útilokuð verði
umræðan um Evrópumál einfald-
ari. „Valkostirnir eru skýrir, að
vera fyrir utan eða vera fyrir innan.
Mín afstaða er óbreytt í því efni og
stefna ríkisstjórnarinnar er alveg
skýr, við munum ekki hreyfa okkur
í þessu máli á kjörtímabilinu.“
Í næstu viku fundar Geir með
fimm framkvæmdastjórum Evr-
ópusambandsins, þeirra á meðal
Jose Manuel Barrosso, forseta
framkvæmdastjórnarinnar. Geir
segir íslensk stjórnvöld vera í góðu
sambandi við forsvarsmenn ESB
og eðlilegt að funda reglulega þó
engin sérstök vandamál séu uppi
sem þarf að leysa. - bþs / sjá síðu 18
Forsætisráðherra telur Íslandi betur borgið utan ESB við ris nýrra efnahagsstórvelda:
Getur fært okkur viðskiptatækifæri
RÍKISFJÁRMÁL Skuld íslenska ríkis-
ins við verktakann Impregilo,
vegna skatta portúgalskra verka-
manna, eykst um eina milljón
króna á dag, eða sem nemur drátt-
arvöxtum af þeim 1,2 milljörðum
sem fyrirtækið ofgreiddi ríkis-
skattstjóra frá 2004 til 2007, og að
auki 300 milljónir í vexti, alls 1,5
milljarða.
Hæstiréttur úrskurðaði í sept-
ember að Impregilo teldist ekki
launagreiðandi portúgalskra
starfsmanna og hefði því ekki átt
að standa skil á sköttunum. Hafði
Impregilo talið að starfsmanna-
leigurnar Select og Nett ættu að
standa skil á þessum greiðslum.
Fór málið fyrir Hæstarétt sem
féllst á rök fyrirtækisins.
Eftir úrskurð Hæstaréttar leið
og beið en ríkið endurgreiddi ekki
skattana. Í janúar, þegar dráttar-
vextir voru komnir í 300 milljónir
króna, stefndi Impregilo fjármála-
ráðuneytinu, fyrir hönd ríkisins
og krafðist alls fjárins, 1,5 millj-
arða.
Málið hafði stoppað í fjármála-
ráðuneytinu, að því er Garðar
Valdimarsson, lögmaður Impreg-
ilo, greinir frá. „Ráðuneytið sagði
málið sífellt í skoðun. En Impreg-
ilo sagði á móti að búið væri að
dæma í málinu,“ segir hann.
Baldur Guðlaugsson ráðuneyt-
isstjóri segir að ein ástæða þess að
ráðuneytið hafi beðið með greiðsl-
ur sé sú að kanna hafi þurft hver
raunverulegur hlutur Impregilo í
greiðslunum hafi átt að vera. Fyr-
irtækið hafi til dæmis átt að greiða
skatt af mismuninum á íslenskum
lágmarkslaunum og þeim launum
sem starfsmannaleigurnar
greiddu mönnunum.
Starfsfólk í fjármálaráðuneyt-
inu hafi talið sig í samstarfi við
Impregilo um lausn málsins og
beðið upplýsinga frá því þegar
stefnan var kunngjörð. - kóþ
Impregilo fær eina
milljón á dag í vexti
Ríkið hefur enn ekki endurgreitt Impregilo þá 1,2 milljarða skattastaðgreiðslu,
sem Hæstiréttur úrskurðaði síðasta haust að hefði verið ranglega innheimt af
fyrirtækinu. Hver dagur kostar skattgreiðendur eina milljón í dráttarvexti.
METTE-MARIT Með íslenska hárskrautið í
Stokkhólmi í haust.
Hugsar ekki um Hearts
Guðjón Þórðarson
hefur ekkert heyrt frá
Hearts lengi en er samt
enn inni í myndinni
sem næsti stjóri
liðsins.
ÍÞRÓTTIR 54
BUBBI & GEIR Bubbi Morthens og Geir H. Haarde forsætisráðherra sungu saman lagið Lóa litla á brú á tónleikum gegn kynþátta-
hatri í Austurbæ í gærkvöldi. Lögðu þeir félagar, sem báðir eru af norskum ættum, áherslu á virðingu fyrir einstaklingum en með
framtakinu vildu tónlistarmenn bregðast við kynþáttahatri á Íslandi sem þeir segja hafa aukist. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN