Fréttablaðið - 21.02.2008, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 21. febrúar 2008
FÉLAGSMÁL Barnaverndarstofa
hefur ákveðið að loka meðferðar-
heimilinu að Hvítárbakka í Borg-
arfirði. Færri umsóknir um vist á
meðferðarheimilum hafa borist
en reiknað hafði verið með og
segir sérfræðingur Barnavernd-
arstofu eina mögulega skýringu
umræðu um Breiðavíkurmálið.
Á Hvítárbakka var pláss fyrir
sex börn en eftir lokunina eru til
52 pláss á samtals sjö heimilum,
segir Bryndís S. Guðmundsdóttir,
uppeldisfræðingur á Barnavernd-
arstofu. Í dag eru aðeins þrjú
pláss laus en enginn á biðlista sem
ekki er á leið í vistun.
Fækkun beiðna um meðferðar-
heimili kemur þrátt fyrir tæplega
30 prósenta aukningu á tilkynn-
ingum til barnaverndarnefnda á
fyrstu sex mánuðum síðasta árs.
Spurð um ástæður þess að
minna er sótt um pláss á meðferð-
arheimilum segir Bryndís að eitt
af því sem þar geti spilað inn í sé
umræðan um Breiðavíkurmálið.
Mögulega hafi sú umræða hrætt
bæði starfsmenn barnaverndar-
nefnda og foreldra.
Eins hafi verið mikið álag á
barnaverndarnefndum sem geti
skilað sér í fleiri umsóknum síðar
ef dregist hafi að vinna úr
málum.
„Við viljum leysa málin sem
mest heima og erum að stefna í þá
átt,“ segir Bryndís. Nú er unnið að
undirbúningi svokallaðrar MST-
fjölþáttameðferðar sem fer fram
á heimilum. - bj
Breiðavíkurmálið gæti haft áhrif á fjölda beiðna um pláss á meðferðarheimilum:
Hvítárbakka í Borgarfirði lokað
BREIÐAVÍK Mikið var fjallað um slæma
meðferð á drengjum á meðferðarheim-
ilinu á Breiðavík á síðasta ári.
iRobot ehf.
Hólshraun 7, 220 Hfj. • S. 555 2585 • Irobot.is
Umsagnir frá eigendum iRobot Roomba
ryksuguvélmennisins:
...ég hreinlega Elska hana
Varist eftirlíkingarErt þú búin að fá þér eina?
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is
360.000,- kr.AFSLÁTTURFullt verð kr. 1.360.000,-
Tilboð kr. 1.000.000,-
Árgerð: 2006
Aukahlutir: Grjótgrind, tvöföld
gaskútafesting og skyggni
STÓRLÆKKAÐ VERÐ ÁNOTUÐUM FERÐAVÖGNUMYearling 103 fellihýsi
KOSOVO, AP Þúsundir Serba í Kos-
ovo mótmæltu í gær, þriðja dag-
inn í röð, einhliða sjálfstæðisyfir-
lýsingu héraðsins.
Mótmælendurnir héldu, eins
og fyrri dagana, að brú í bænum
Mitrovica í norðanverðu Kosovo.
Brúin skilur að albanska og serb-
neska hluta bæjarins.
Friðargæsluliðar á vegum
NATO unnu í gær að því að loka
landamærum Kosovo og Serbíu
með gaddavír. Lögreglumenn frá
Sameinuðu þjóðunum gættu
landamærastöðva, sem voru
sprengdar upp daginn áður.
Landamærunum var lokað af
ótta við að vopnaðir Serbar kæmu
frá Serbíu til að berjast í Kosovo
gegn stjórn nýja ríkisins. Íbúar í
serbneska hluta Kosovo sögðu
lokun landamæranna valda því að
matvæli bærust ekki frá Serbíu.
Nebojsa Radulovic, leiðtogi
Serba í Kosovo, krafðist þess að
landamærin yrðu opnuð á ný,
annars mætti búast við hörðum
mótmælum „með afleiðingum
sem við getum ekki spáð fyrir
um“.
Þýskaland viðurkenndi í gær
sjálfstæði Kosovo, en áður höfðu
Bandaríkin, Frakkland og Bret-
land viðurkennt Kosovo aðeins
fáeinum dögum eftir að sjálf-
stæði var lýst yfir. - gb
Serbar mótmæla áfram sjálfstæðisyfirlýsingu Kosovo:
Mótmæla lokun landamæra
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/A
FP
FRIÐARGÆSLULIÐAR
GIRÐA LANDAMÆRIN
Serbar í Kosovo krefj-
ast þess að landamær-
in verði opnuð á ný.