Fréttablaðið - 21.02.2008, Blaðsíða 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Aldrei datt mér í hug að ég ætti eftir að segja þetta, en ég
sakna Kanans á Miðnesheiði. Hann
yfirgaf okkur með lágværu blístri,
fánar voru dregnir niður og svo
var þetta, sem hafði skipt þjóðinni
í tvennt áratugum saman, bara
búið. Aldrei hefur okkur verið
sýnt jafn augljóslega fram á að
það sem skiptir öllu máli í dag,
skiptir engu máli á morgun. Allt
er hjómið eitt, ekkert skiptir máli
á endanum – í hinu stóra sam-
hengi.
ÉG gerði mér grein fyrir söknuði
mínum þegar ég keyrði eftir
Grensásveginum. Ég fann að ég
saknaði Sölu varnarliðseigna. Þar
var lítið að hafa nema misónýtt
drasl frá Kananum sem smjör-
greiddir íslenskir karlar seldu
með alltof miklum þjósti eins og
þeir væru að gera manni stór-
greiða með því að leyfa manni að
kaupa pakka af útrunnu tyggjói.
En ég sakna búðarinnar samt og
þess lúxus að finna stolt mitt nið-
urlægt í þjóðernislegu tilliti. Það
er miklu erfiðara að berja sér á
brjóst þegar andstæðingurinn
hefur gefist upp.
Í gráblautri íslenskri tilverunni
var dulmagn Kanans mikið.
Búandi svona einangrað úti á
miðju ballarhafi voru það forrétt-
indi að geta þefað af öðrum heimi,
sérlega heppilegt að á pínulitlum
bletti á okkar pínulitla bletti væri
annar veruleiki vel varinn innan
girðingar. Manni fannst spennandi
að horfa í gegnum girðinguna og í
þau fáu skipti sem maður slapp
inn var það ævintýri líkast. Ævin-
týri þrungið af skömm og særðu
ættjarðarstolti en ævintýri engu
að síður.
EINU sinni átti ég ameríska kær-
ustu og við fórum á völlinn. Örugg-
isgæslan var nú ekki meira en svo
að það var nóg að hún talaði með
suðarríkjahreimi við brodda-
klippta unglinginn í hliðinu til að
við kæmumst inn. Ég hefði getað
verið stórhættulegur hryðju-
verkamaður og skottið fullt af
sprengjum. Við rúntuðum um
svæðið og fórum í búðina. Hvílíkt
góss og á hvílíkum prís!
NÝLEGA fór ég að heimsækja
vini míni sem hafa komið sér fyrir
í gamalli Kanablokk. Það var hálf
óraunveruleg upplifun í ljósi sög-
unnar. Svona bjó þá verndarinn.
Við fórum í búðina sem ég hafði
farið í forðum. Henni hefur nú
verið breytt í alíslenska verslun
með alíslensku vöruúrvali og þess
sem verst er, alíslensku verði. Þá
fattaði ég hvers ég sakna mest við
Kanann. Farmsins.
Kanasöknuður
Í dag er fimmtudagurinn 21.
febrúar, 52. dagur ársins.
9.08 13.41 18.16
8.56 13.26 17.57
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Garðskagaviti
Drangajökull
Grímsey
Hofsjökull
Húnaflói
Blöndulón
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Nýtt langdrægt GSM kerfi
Að lokinni uppsetningu nýrra senda víða um land býður
Vodafone upp á stærsta GSM þjónustusvæðið á Íslandi.
Þetta er bylting fyrir fólk á landsbyggðinni, sjómenn og
ferðamenn á fjölmörgum stöðum þar sem ekki hefur verið
GSM samband til þessa.
Meðan við höldum uppbyggingunni áfram skiptir þú yfir til
Vodafone, án þess að skipta um símanúmer, með einu
símtali í 1414 – strax í dag.
Stærsta GSM
þjónustusvæðið