Fréttablaðið - 21.02.2008, Side 66

Fréttablaðið - 21.02.2008, Side 66
38 21. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýningu á verkum listakvennanna Freyju Önundardóttur og Sigríðar Helgu Olgeirsdóttur í Gallerí 100°, húsi Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1. Hinar ólíku myndir orkunnar og kraftsins í náttúrunni eru viðfangsefni í málverkum Freyju og skúlptúrum Sigríðar Helgu. Sýning- in hefur verið vel sótt og fengið góðar viðtök- ur. Sýningunni lýkur á laugardag, en þá verður galleríið opið á milli kl. 13-17 og verða listakonurnar á staðnum. - vþ Sýningarlok í 100° KRAFTBIRTING Sýningunni lýkur nú um helgina. Kl. 15.30 Í tilefni af alþjóðlegum móðurmáls- degi UNESCO stendur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fyrir málþingi í Þjóðminjasafninu í dag kl. 15.30. Á málþinginu verður fjallað um móðurmálskennslu tvítyngdra barna. Tvítyngi hefur aukist verulega á Íslandi undanfarin ár og er því fróðlegt að velta fyrir sér hvernig menntastofnanir hafa brugðist við. Aðgangur að málþinginu er ókeypis og öllum opinn. Enn og aftur dregur til tíðinda hjá Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Það hefur vart farið fram hjá tónlistarunnendum að hljómsveitin er einstaklega lunkin við að laða til sín góða gesti. Einn slíkur kemur fram á tónleikum með sveitinni í kvöld; enginn annar en sellósnilling- urinn Daniel Müller-Schott. Hann leikur einleik í sellókonsert eftir Joseph Haydn. Müller-Schott er óumdeilanlega ein skær- asta stjarna sellóheimsins í dag. Fimmtán ára gamall vann hann Tsjaíkovskí-keppnina fyrir unga tónlistarmenn í Moskvu og skömmu síðar tók fiðlusnillingurinn Anne-Sophie Mut- ter hann upp á arma sína og greiddi götu hans í námi og upphafi ferilsins, sem hefur einmitt verið einkar farsæll. Mikil eftirvænting ríkir meðal íslenskra tón- listarspekúlanta vegna komu Müller-Schotts, og eru einungis örfá sæti enn óseld á tónleik- ana í kvöld. Auk sellókonsertsins verða á efnisskrá hljómsveitarinnar tvö af ástsælustu verk- um klassíska tímabilsins: forleikurinn að Töfraflautunni eftir Mozart og Sveitasinfónía Beethovens. Hljómsveitarstjóri er Norðmað- urinn Eyvind Aadland. Tónleikarnir fara fram í Háskólabíói og hefjast kl. 19.30. Ekki má gleyma að minnast á súpufundi Vinafélags Sinfóníuhljómsveitarinnar, en þeir eru hugsaðir til þess að krydda tónleikaupp- lifunina. Á súpufundunum fara fram tónleika- kynningar og fræðsla fyrir tónleika og fer slíkur fundur einmitt fram fyrir tónleikana í kvöld. Þar mun Ingibjörg Eyþórsdóttir tónlistarfræð- ingur fjalla um tónskáldin og verkin sem flutt verða á meðan gestir gæða sér á veitingum. Súpufundurinn verður haldinn á Hótel Sögu og hefst kl. 18. Aðgangseyrir að fundinum er 1.200 kr. og allir eru velkomnir. - vþ Haydn í Háskólabíói Hin hefðbundna febrúar- frumsýning Íslenska dans- flokksins er fram undan, en á föstudag frumsýnir flokk- urinn tvo verk, bæði eftir áberandi norræna danshöf- unda, Jo Strömgren hinn norska, sem hefur þegar vakið nokkra athygli hér á landi, og nýtt verk eftir hinn unga og efnilega danshöf- und Alexander Ekman. Báðir eru þeir í fremstu röð dans- höfunda á Norðurlöndum þessi misserin, Ekman er rísandi stjarna en Strömgren er þegar orðinn virtur um alla Evrópu fyrir dansverk sín. Hann hefur áður unnið með dans- flokknum, samdi fyrir hann verkið Kraak 2001, en nú kemur hann hing- að og vinnur verkið Kvart að þörf- um flokksins og fær sér til liðsinni hinn mikilsmetna fatahönnuð, Stein- unni Sigurðardóttur, sem kemur nú í fyrsta sinn að búningasköpun fyrir dansflokk á sviði. Frumsýningin á föstudag er einn af hátindum í danslífi hér á landi, en auk hennar eru fimm sýningar fyr- irhugaðar á verkunum tveimur: sunnudag og síðan 2., 7., 9., og 16. mars. Sýnt er á Stóra sviðinu. Í verki Strömgrens, Kvart, er dansað á hvítu teppi og er ætlun höfundar að rannsaka dans sem sést ekki oft á sviði þá dansarar dansa fyrir hvorn annan – líkt og þjóðflokkar í Kongó gera eða hiphop-dansarar í úthverf- um Parísarborgar. Tónlistin er eftir finnska tónskáldið Kimmo Pohjon- en. Strömgren átti annað verk á sviðum Borgarleikhússins fyrir skemmstu, en sviðsetning hans á Ræðismannsskrifstofunni var á Nýja sviðinu í hans eigin sviðsetn- ingu fyrir Leikfélag Reykjavíkur. Jo Strømgren er viðurkenndur einn helsti frömuður dansleikhúss á Norðurlöndum og hafa verk hans verið sýnd í um fimmtíu löndum. Hann er fæddur í Noregi 1970, heillaðist af bandarískum dans- myndum sem unglingur og hóf að læra jassballett. Fljótlega færði hann sig yfir í ballett og nútíma- dans. Um tvítugt hóf hann nám við Listdansskóla Noregs og vann síðan hjá Carte Blanche í Bergen að námi loknu þar sem hann starf- aði bæði sem dansari og danshöf- undur. Þar vakti Strømgren fljótt mikla athygli fyrir verk sitt Schizo Stories fyrir bæði óvenjulegt lík- amstungumál og húmor. Síðastlið- ið vor kom hann til Íslands með farandverkið sitt vinsæla Hospi- tal. Verkið Kvart var upphaflega samið árið 2004 í tilefni af afmæl- ishátíð Oslo Danse Ensemble, en hefur nú verið endurunnið og þróað með Íslenska dansflokkinn í huga. Alexander Ekman semur nýtt verk fyrir dansflokkinn: Station Gray – Last Stop. Vísar titillinn í umfjöllunarefnið – við fylgjumst með hóp af eldra fólki sem er í leit að æskunni. Verkið er húmorískt og létt og tónlistin er úr mörgum áttum. Alexander fæddist árið 1984 í Stokkhólmi og stundaði nám við hinn Konunglega sænska ballett- skóla og gekk síðan til liðs við Kon- unglega ballettinn. Frá 2002 til 2005 starfaði hann með Nederlands Dans Theater II. Þaðan fór hann svo til Cullberg-ballettsins í Svíþjóð í eitt ár og eftir það hefur hann starfað sjálfstætt sem danshöfundur. Alex- ander hefur samið verk fyrir meðal annars Cullberg-ballettinn, Neder- lands Dans Theater, IT-dansa, Bern- ballettinn, Europe Danse í Frakk- landi og ýmsa aðra flokka í Evrópu. Árið 2006 hlaut Alexander önnur verðlaun og gagnrýnendaverðlaun- in á alþjóðlegri danshöfundakeppni í Hannover með verk sitt Swingle Sisters. Sama ár var hann einnig nefndur sem ungur danshöfundur á uppleið í árlegri útgáfu af Ball- etTanz. Alexander byrjaður að eiga við vídeólist og að festa dans á filmu. pbb@frettabladid.is Pör og gamalt fólk dansa DANSLIST Jo Strömgren, hinn norski leikhúsmaður, hefur áður unnið með flokknum en setur hér upp eldra verk sitt frá 2004, Kvart. MYND/ÍD/GOLLI DANSLIST Alexander Ekman semur nýtt verk fyrir ÍD, Station Gray – Last Stop. Verður gaman að sjá dansara Íslenska dansflokksins takast á við hreyfingar- heim eldra fólks. MYND/ÍD/GOLLI DANIEL MÜLLER-SCHOTT Ein skærasta stjarna sellóleiks í dag. Útvarpsleikhúsið á Rás 1 býður í kvöld kl. 22.20 upp á fjórða og síðasta kvöldið í fylgd leikhúslistamannsins George Tabori. Að þessu sinni er flutt eitt þekktasta leikrit hans, Móðir mín hetjan. Sonur segir frá móður sinni, dæmigerðri og dagfarsprúðri konu, sem lendir í aðstæðum sem knýja hana til að endurskoða þau verðmæti sem hún trúði á og bregðast við þeim á óvæntan hátt. Á sunnudag heldur framhaldsleikritið Nornirnar áfram kl. 15, en leikritið er gert eftir vinsælli sögu Roalds Dahl. Í hlutverk- um nornanna eru meðal annarra Brynhild- ur Guðjónsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Vert er að geta þess að á eftir hverjum þætti Nornanna á ung listakona einleik, þar sem hún kuklar í útvarp. Þáttaröðin kallast Sírenur og næsta sunnudag er það Ásdís Sif Gunnarsdóttir sem lætur að sér kveða. - vþ Kvenfólk í útvarpi BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR Hún er ein nornanna ógurlegu sem skelfa hlustendur Útvarps- leikhússins næstu sunnudaga. Þjóðmenningarhúsið efnir til mál- þings í tengslum við sýninguna Handan um höf – þýðingar og frum- samin ritverk Helga Hálfdanarson- ar í bókasal hússins á laugardag 23. febrúar kl. 15. Á málþinginu varpa frummæl- endur hver sínu ljósi á verk Helga, þeir fjalla um fræðiskrif hans og skáldskaparrýni, jafnt sem þýðing- ar hans á ólíkum verkum. Frum- mælendur eru Eysteinn Þorvalds- son, Ástráður Eysteinsson, Ásdís Sigmundsdóttir og Sveinn Einars- son. Auk þess les Borgar Garðars- son leikari einræðu úr leikritinu Prómeþeifur eftir Æskílos sem Helgi þýddi. Gauti Kristmannsson stýrir málþinginu. Málþingið verð- ur með kaffihúsasniði og verður veitingasala meðan á málþinginu stendur en að því loknu býður Þjóð- menningarhúsið gestum að þiggja léttar veitingar. Málþingið er öllum opið en það stendur í um tvær klukkustundir. . Handan um höf BÓKMENNTIR Helgi Hálfdanarson, skáld og þýðandi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.