Fréttablaðið - 21.02.2008, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 21.02.2008, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 21. febrúar 2008 33 UMRÆÐAN Stóriðja Nokkur óvissa ríkir nú í efnahags- málum. Með réttum aðgerð- um má tryggja áframhaldandi grundvöll fyrir traust efnahags- líf og fjölbreytta atvinnustarf- semi í landinu um leið og lagður verður grunnur að nýrri sókn á landsbyggðinni. Allir sem vilja stuðla hér að áframhaldandi hag- vexti og uppbyggingu öflugs atvinnulífs gera sér grein fyrir því að grundvöllur þess er að nýta þær náttúruauðlindir sem við höfum aðgang að. Nú þegar eru á teikniborðinu áform um slíka nýt- ingu vegna áliðnaðar í Helguvík, á Bakka við Húsavík og fjölbreytt- ari atvinnustarfsemi víðar. Undanfarið hefur umræða um næstu skref í þessum verkefnum verið nokkuð áberandi. Í henni hafa komið fram mismunandi áherslur og hugmyndir um hvar skuli fyrst farið af stað og hvenær raunhæft sé að hefja framkvæmd- ir. Á Suðurnesjum hafa menn talað um að taka skóflustungu einhvern næstu daga á meðan aðrir, þ.á m. ráðherra í ríkisstjórninni, tala fyrir því að skynsamlegra sé að leggja áherslu á að hefja framkvæmdir við Bakka á Húsavík. Í miðri þess- ari umræðu koma síðan fram ráð- herrar sem tala á þeim nótum að umræðan sé alls ekki tímabær og að engar framkvæmdir geti hafist á næstu misserum. Við þessar aðstæð- ur getur verið erfitt að átta sig á því hver raunveruleg staða mála er. Ég hef skilið það svo að undirbún- ingur við álver í Helguvík sé kom- inn það langt á veg að framkvæmd- ir geti hafist fljótlega. Sama gildi um álver við Bakka. Sé vilji ráða- manna, sem haft geta áhrif á for- gangsröðun, staðsetningu og tíma- setningu framkvæmda hins vegar óskýr skapar það óvissu sem er óþolandi í þessu mikla hagsmuna- máli. Að mínu áliti ber að horfa til þeirra staða þar sem þörfin fyrir ný atvinnutækifæri er mest þegar rætt er um staðsetningu fyrir nýja stór- iðju. Sum þeirra landssvæða sem um er rætt hafa farið mjög illa út úr byggðaþróun undanfarinna ára og áríðandi að bregðast við svo fljótt sem verða má. Ljóst er að ekki verður ráðist í mörg verkefni á sama tíma og heppilegast að dreifa framkvæmdum yfir lengra tímabil. Sé sú staða uppi varðandi næstu verkefni í stóriðju að við eigum val- kost um hvar verður hafist handa ber að mínu áliti að velja þá stað- setningu þar sem þörfin fyrir fram- kvæmdir og nýja atvinnuuppbygg- ingu er ríkust. Því segi ég það að sé mögulegt að hefja uppbyggingu á stóriðju á Húsavíkursvæðinu fljót- lega, þá á að velja þá leið. Fá svæði á landinu hafa farið verr út úr þeirri byggðaröskun sem landsbyggðin hefur mátt búa við undanfarin ár en norðausturhornið. Þær hugmyndir sem andstæðingar uppbyggingar stærri vinnustaða hafa komið fram með til atvinnu- uppbyggingar á landsbyggðinni eru að flestu leyti óraunhæfar. Til að snúa við þeirri byggðaþróun sem fylgt hefur aukinni tækni og minni mannaflaþörf í sjávarútvegi og landbúnaði þarf uppbyggingu fjöl- breyttari atvinnutækifæra þar sem eðlileg nýting náttúruauð- linda okkar skiptir grundvallar- máli. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þar sem þörfin er mest JÓN GUNNARSSON UMRÆÐAN Atvinnumál Á meðan ótrúleg uppbygging hefur átt sér stað á suðvest- urhorni landsins hefur atvinnu- tækifærum fækkað á Norðaust- urlandi og íbúum um leið. Brýnt er að snúa þessari þróun við og sem allra fyrst. Það verður ekki gert nema með því að skapa öfluga kjölfestu í atvinnumálum og þar er orkufrek stóriðja eini raunhæfi kosturinn. Þetta vitum við sem ennþá búum á Norðausturlandi og höfum upplifað efnahagslega hnignun svæðisins síðustu fimmtán árin. Þetta vita líka þeir sem stjórna þessu landi og þeim ber að tryggja jöfnuð milli landsvæða í stað þess að stuðla enn frekar að því að Ísland verði borgríki með einum þéttbýliskjarna á suðvestur- horni landsins. Nú er röðin komin að Norðaustur- landi. Við þurfum ekki að horfa langt aftur í tímann til að sjá dæmi um það hvað stór og öflugur vinnu- staður getur haft jákvæð áhrif á nærliggjandi samfélög. Nýtt álver í Reyðarfirði er gott dæmi um það. Lítil byggðarlög á Austurlandi þar sem árum saman hafði ríkt stöðnun eða samdráttur eru nú í blóma. Uppbyggingin hefur verið með ólíkindum og þar sem áður ríkti óvissa og óöryggi er nú festa, fjöldi nýrra atvinnutækifæra og efnahagur íbúanna annar og betri. Álver á Bakka við Húsavík er því varla valkostur fyrir íbúa á Norðausturlandi, nær er að segja að álverið sé lífsspursmál fyrir áframhaldandi byggð á svæðinu. Undanfarna tæpa tvo áratugi hefur byggðarlagið orðið fyrir hverju áfallinu af öðru sem hafa leitt af sér keðjuverkun sem erfitt hefur verið að stöðva, þrátt fyrir mikinn vilja heimamanna. Verulegur samdráttur í frumatvinnugreinunum varð til þess að íbúum fækkaði umtalsvert. Það hefur aftur orðið til þess að iðnfyrirtæki á svæðinu hafa annað hvort þurft að hætta starfsemi eða leitað nýrra markaða á suðvesturhorni landsins. Starfsemi fjarri markaðssvæðunum hefur skekkt samkeppn- isaðstöðuna og oft hafa blómleg fyrirtæki á Norðausturlandi verið keypt og flutt suður, því heimamarkaðinn vantar. Það er skilyrðislaus réttur íbúa Norðurþings að geta lifað og starfað í heimabyggð og þar gegnir álver á Bakka lykilhlutverki, verði það að veru- leika. Álverið mun skapa um 500 störf í Norður- þingi og önnur 500 utan þess. Gert er ráð fyrir að íbúum í Þingeyjarsýslum fjölgi um þúsund með álverinu og þá er fyrst kominn raunhæfur mögu- leiki á að byggja upp blómlega byggð með fjölda atvinnutækifæra. Þar horfi ég helst til lítilla sérhæfðra iðnaðarfyrirtækja, smiðjuþjónustu og fyrirtækja á sviði verkfræði, tæknifræði, náttúru- fræði og tölvuþjónustu. Álverið skapar því spennandi starfsvettvang fyrir ungt fólk sem kýs að vinna og starfa annars staðar en í þéttbýlinu á suðvesturhorninu. Og vissulega er þörf fyrir þessi störf, því á síðasta áratug hefur íbúum 40 ára og yngri fækkað um 25% í Norðurþingi. Þetta segir allt sem segja þarf. Væntanlegt álver á Bakka hefur mikla sérstöðu, ekki bara hér á landi heldur í heiminum öllum. Rætt er um álver sem nýtir orku sem sótt er í háhitasvæði í grenndinni án þess að eitt einasta vatnsfall verði virkjað. Gnótt jarðvarma er helsta auðlind svæðisins og það er bæði sjálfsagt og eðlilegt að nýta auðlindina á jákvæðan hátt í uppbyggingu á svæðinu í stað þess að geyma hana ónýtta í iðrum jarðar. Sú staðreynd skiptir líka miklu máli að framkvæmdum við jarðvarmavirkj- anir fylgir lítið náttúrurask sem er að mestu afturkræft. Það er metnaður okkar Þingeyinga að vernda þær náttúruperlur sem við eigum og mikil áhersla er lögð á það við væntanlegar framkvæmdir. Við höfum tækifæri til að byggja upp öfluga þekkingu í náttúruvernd og jákvæðri auðlindanýtingu á öllum skólastigum, samhliða uppbyggingu á orkufrekri stóriðju á Bakka. Þegar er kominn vísir að því í Öxarfjarðarskóla þar sem mikil áhersla er lögð á náttúruvernd í tengslum við nálægar náttúruperlur, Ásbyrgi og þjóðgarðinn í Jöklusár- gljúfrum. Á þennan hátt geta Þingeyingar orðið leiðandi í að nýta auðlindina og vernda náttúruna um leið. Í náttúruvöktuninni samhliða stóriðju- framkvæmdunum felast mikil atvinnutækifæri. Höfundur er vélstjóri á Kópaskeri. Réttur á að starfa í heimabyggð JÓN GRÍMSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.