Fréttablaðið - 21.02.2008, Side 74
46 21. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ÆVI EMINEM
Rapparinn Eminem hefur haf-
ist handa við að skrifa ævi-
sögu sína. Hún er væntan-
leg í bókahillur í haust og
mun einnig innihalda óbirtar
myndir af rapparanum,
uppköst að textum og
skissur hans. Útgefand-
inn segir bókina sýna
hver Eminem er í raun
og veru og kveðst viss
um að hún verði ein af
bókum ársins.
Beyoncé Knowles fer með hlutverk
blússöngkonunnar Ettu James í kvik-
myndinni Cadillac Records sem er á
leiðinni í framleiðslu. Adrien Brody, sem
vann Óskarinn fyrir The Pianist, fer
einnig með stórt hlutverk í myndinni.
Cadillac Records fjallar um banda-
ríska plötufyrirtækið Chess og
stormasamt líf nokkurra stjarna
þess, þar á meðal Muddy
Waters, Chuck Berry og Etta
James, sem sló í gegn
með laginu I Just Want
to Make Love to You.
Brody mun leika
Leonard Chess, stofnanda fyrirtækisins.
Beyoncé ætlar að taka upp fjögur lög
sem hljóma í myndinni, auk þess
sem hún verður aðstoðarfram-
leiðandi hennar. Jafnframt
ætlar hún að gefa hluta af
launum sínum fyrir myndina
til Survivor-samtakanna, sem
aðstoða eiturlyfjafíkla við að
komast aftur á rétta braut.
Beyoncé virðist ætla sér
sífellt stærri hluti í Hollywood
en hún var tilnefnd til Golden
Globe-verðlaunanna fyrir
hlutverk sitt í Dreamgirls.
Beyoncé gerist blússöngkona
BEYONCÉ Söng- og leikkonan Beyoncé
leikur Ettu James í nýrri kvikmynd.
ADRIEN BRODY Brody
leikur á móti Beyoncé
í næstu mynd sinni,
Cadillac Records.
Föndurverslun
Síðumúli 15
S: 553-1800
Sjón er sögu ríkari
Þungarokkssveitin Slayer hefur
boðað komu sína á Hróarskeldu-
hátíðina í sumar. Sveitin þurfti að
aflýsa tónleikum sínum á
hátíðinni í fyrra og ætlar að bæta
upp fyrir það í ár.
Slayer er ein virtasta þunga-
rokkssveit heims og þykir
virkilega öflug á tónleikum. Auk
Slayer ætlar bandaríska sveitin
Battle og hin þýska The Notwist
að spila á Hróarskeldu í ár.
Bætast þær í hóp sveitanna
Radiohead, Chemical Brothers,
My Bloody Valentine og Band of
Horses sem munu spila.
Slayer spila á
Hróarskeldu
SLAYER Rokkararnir í Slayer eru á leið-
inni á Hróarskelduhátíðina.
Þýska ofurfyrirsætan Heidi Klum
hefur boðist til að hjálpa söngkon-
unni Britney Spears við að
komast í gegnum erfiðleika sína í
einkalífinu. „Hún getur hringt í
mig og komið og gist í húsinu
okkar í nokkra mánuði,“ sagði
Klum, sem er þriggja barna
móðir og gift söngvaranum Seal.
Búa þau saman í glæsivillu í
Beverly Hills. „Ég myndi hjálpa
henni að ná áttum. Mér þykir
mjög leiðinlegt þegar ungar
manneskjur lenda í svona miklum
ógöngum,“ sagði hún.
Vill Britney í
heimsókn
Von er á hollenska tónlistarmann-
inum Fedde le Grand til Íslands.
Fedde nýtur mikilla vinsælda um
þessar mundir í hnakkrænu
danspoppi og hefur átt þrjú
gríðarlega vinsæl lög á Íslandi,
fyrst Put your hands up for
Detroit, svo The Creeps og nú Let
me think about it. Öll lögin hafa
náð toppnum á vinsældarlista
FM957, síðastnefnda lagið er nú í
þriðja sæti á leiðinni niður.
Samkvæmt Myspace-síðu Feddes
er hann um þessar mundir á
mikilli hnattreisu og meðal
áfangastaða er Broadway í
Reykjavík þar sem hann spilar
23. apríl. Fedde kom hingað síðast
snemma í fyrra og lék við hvern
sinn fingur fyrir dansþyrsta
Íslendinga.
Fedde snýr aft-
ur til Íslands
KEMUR AFTUR Í APRÍL Fedde Le Grand
spilar á Íslandi.
Fatahönnuðinum Thelmu Björk Jónsdótt-
ur hefur gengið margt í haginn á síðustu
árum. Nú síðast bar Noregsprinsessan
Mette-Marit hárspöng eftir Thelmu við
afhendingu Nóbelsverðlaunanna.
Thelma, sem er búsett í París, hannar sérstakar hár-
spangir og höfuðföt undir merkinu Thelma design.
Spangirnar hafa gert mikla lukku og meðal annars
birst á síðum breska Vogue. Þær prýddu einnig
höfuð Bjarkar Guðmundsdóttur á síðasta tónleika-
ferðalagi hennar, en nú síðast var það norska prins-
essan Mette-Marit sem skartaði hárspöng frá
Thelmu, og það við afhendingu Nóbelsverðlaunanna
í desember síðastliðnum.
„Ég vissi að hún ætti þessa spöng. Vinir mínir
þekkja til hennar, og þeir keyptu þessa spöng af mér
til að færa henni að gjöf,“ útskýrir Thelma. „Það var
bara í nóvember í fyrra, eftir að ég sýndi í show-
roomi hérna í París. Þau voru búin að segja mér að
hún hefði verið ofsalega ánægð með hana, en maður
veit svo sem aldrei. Að hún skyldi nota hana við
þetta tækifæri er náttúrulega æðislegt, og bara mik-
ill heiður fyrir mig,“ segir hún.
Thelma er nú nýsnúin aftur til Parísar, eftir að
hafa sýnt vörur sínar í Tókýó ásamt öðrum íslensk-
um hönnuðum, á vegum Útflutningsráðs. Hárskraut
hennar er nú fáanlegt í einum fimm verslunum í
Tókýó, í Bon Marché í París, Trilógíu á Íslandi, á
Ítalíu og í Þýskalandi. „Þetta gengur bara voðalega
vel, ég hef ekki yfir neinu að kvarta,“ segir
Thelma.
París hefur verið heimili Thelmu í tvö ár, en þar af
varði hún hálfu ári í skólagöngu við École Lesage,
þar sem nemendur læra aldagamlar handverkshefð-
ir. „Chanel á 80 prósent í þessu fyrirtæki, sem gerir
öll handbróderuðu og handgerðu efnin fyrir hátísku-
sýningarnar hérna í París,“ útskýrir Thelma. „Stefn-
an hjá þeim er að vera með skóla svo að kunnáttan
deyi hreinlega ekki út. Ég bætti heilmiklu við mig
og nota þetta mikið í spangirnar,“ segir Thelma, sem
er alls ekki á leið heim, en gæti hugsað sér til hreyf-
ings í austurátt. „Ég er mjög hrifin af Tókýó. Þetta
er líka stór markaður og Japanarnir hafa verið
hrifnir af minni vöru, svo hver veit nema ég færi
mig aðeins um sess þangað,“ segir Thelma.
sunna@frettabladid.is
Spangir Thelmu vinsælar
PARÍS-TÓKÝÓ Thelma Björk Jónsdóttir er búsett í París, en
hárspangir hennar eru meðal annars fáanlegar í Tókýó, borg
sem Thelma kveðst heilluð af. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„72 prósent? Já, það er eðlilegt.
Allar þessar kannanir eru alger-
lega ómarktækar. Þeir eiga að
spyrja: Ferðu á skemmtistaði oftar
en einu sinni í mánuði? Ef svo er
ekki þarf ekkert að spyrja frekar,“
segir Kormákur Geirharðsson hjá
Félagi kráareigenda.
Nýleg könnun Capacent Gallup
sýnir að 72 prósent aðspurðra eru
frekar eða mjög hlynnt því að
skemmtistaðir séu reyklausir. Kor-
mákur telur þetta til marks um inn-
gróna forræðishyggju því fyrir
liggi að í það minnsta 72 pró-
sent aðspurðra sæki ekki
skemmtistaði og hafi það ekki
í hyggju. Þegar tóbakslögin
voru sett á biðu kráar-
eigendur eftir öllu þessu
fólki sem er fylgjandi
reyklausum skemmti-
stöðum en ekkert bólar
á því heldur eru
skemmtistaðaeigendur
að horfa upp á um 30 pró-
senta minni veltu.
Félag kráareigenda heldur
fund í dag og þá mun Kormákur
leggja það til að þeir láti gera
könnun sem mark er á tak-
andi. Kráareigendur eru
ekki búnir að leggja árar í
bát en fyrir um mánuði
varð borgaralegrar óhlýðni vart á
skemmtistöðum og reyktu gestir
þá á mörgum staðanna. Enda
ástandið með öllu óþolandi að mati
kráareigenda. Liggur fyrir lög-
fræðiálit eigenda Barsins þar sem
segir að þeir séu enda ekki ábyrgir
fyrir því ef gestir kveiki sér í sígar-
ettu heldur sé það á ábyrgð þess
sem reykir.
„Neinei, við fórum á fund heil-
brigðisráðherra,“ segir enda Kor-
mákur aðspurður hvort þeir séu
búnir að leggja niður skottið. „Við
skilum fljótlega til hans skýrslu
þar sem við munum leggja þetta
upp út frá okkar bæjardyrum og
íbúum þessa lands sem reykja.
Ástandið er vonlaust og við viljum
sýna fram á að það er hægt að leysa
þetta án þess að klagi upp á þá hina
reyklausu,“ segir Kormákur. Hann
segir Guðlaug Þór Þórðarson hafa
tekið þeim ágætlega. „En... hann er
náttúrlega... stjórnmálamaður og
gaf ekki færi á sér.“ - jbg
Vertar ekki lagt niður skottið
KORMÁKUR Segir nýja könnun
Capacent algerlega ómarktæka
og stefnir að því að láta vinna
marktæka könnun.
REYKHERBERGI Á BARNUM Viðbrögð
heilbrigðisráðherra voru þau að láta
loka reykherbergi þingsins fremur en
leyfa reykherbergi á börum.
Íslensku tónlistarverðlaunin
verða afhent í fjórtánda skipti
þriðjudaginn fyrir páska, 18.
mars. Verðlaunum verður deilt út
í átján flokkum og verður
tilkynnt um tilnefningarnar á
morgun. Þrjú atriði verða
tilnefnd í hverjum flokki, nema í
flokknum „lag ársins“, þar þykir
ekki taka því að tilnefna færri en
fimm lög. Þriggja til fimm manna
dómnefndir funduðu stíft til að
komast að niðurstöðu um
tilnefningarnar. Nú verður sama
fólk í sömu nefndum að funda
stíft á ný og velja sigurvegara í
hverjum flokki. Þeir sem tapa
geta því huggað sig við það að
niðurstaðan er bara val örfárra
manna. Hátíðin verður haldin í
Borgarleikhúsinu og að vanda
verður Rúv með beina útsendingu
frá henni.
Verðlaunahátíð útvarpsstöðvar-
innar FM957 sem vera átti í
Háskólabíói 8. mars hefur verið
frestað um óákveðinn tíma.
Brynjar Már Valdimarsson á
FM957 segir að ýmsar ástæður
séu fyrir frestuninni en lofar
eftir sem áður „geðveikri“ hátíð
þegar hún verður loksins haldin.
Brynjar gat ekkert sagt um
endanlega dagsetningu hátíðar-
innar en lofaði þó að hún yrði á
þessu ári.
Tilnefningar
á morgun
MEÐ SKRAUT FRÁ THELMU Mette-Marit Noregsprinsessa bar
hárspöng frá Thelmu við afhendingu Nóbelsverðlaunanna í
desember síðastliðnum.