Fréttablaðið - 21.02.2008, Blaðsíða 69
FIMMTUDAGUR 21. febrúar 2008 41
Litla svið Borgarleikhússins
verður í kvöld undirlagt
sýningum ungs fólks sem allar
hverfast um líkamann með
einum eða öðrum hætti.
Sýningarnar eru afrakstur
samstarfsverkefnis Borgar-
leikhússins, Listaháskóla
Íslands og Hins hússins.
Boðið verður upp á sýningar
eftir nemendur í 10. bekk Austurbæj-
arskóla og nemendur af listasviði
Fjölbrautaskólans í Breiðholti, en þessir
hópar urðu hlutskarpastir í hugmyndasam-
keppni Borgarleikhússins sem bar titilinn
„Viltu láta rödd þína heyrast?“
Að auki koma fram annars árs nemar í
leiklistardeild Listaháskóla Íslands
og sýna verk sem unnin eru í
tengslum við námskeið sem fjallar um
líkamann í sviðslistum. Leiklistar-
nemar á þriðja ári sýna dansleik-
húsverk undir stjórn Ólafar
Ingólfsdóttur, Götuleikhús unga
fólksins sýnir atriði utan húss og
sérstakir gestir verða vinnings-
hafar hæfileikakeppninnar Skrekks,
hópur úr Hlíðarskóla, en vinningsatriði
þeirra fjallaði einmitt um líkamann. Dag-
skráin hefst kl. 20. Aðgangur er ókeypis og
öllum opinn. - vþ
Líkaminn frá ýmsum
sjónarhornum
VAXTARÆKTARTRÖLL Mannslíkaminn
birtist í mörgum stærðum og gerðum.
Tónlistarlegt uppeldi er öllum
börnum til góðs. Dagur tónlistar-
skólanna er nú á laugardag og
miðar að því að vekja athygli á því
mikla og góða starfi sem fer fram
innan þessara stofnana. Í tilefni
dagsins efnir Tónlistarskólinn á
Akureyri til tónleika í Ketilhús-
inu, frá kl. 11 til kl. 17 á laugardag.
Þar koma fram nemendur á öllum
stigum, einir sér eða í hópum, stór-
um sem smáum.
Haldnir verða tónleikar á
klukkustundar fresti frá kl. 11 og
lýkur dagskránni með Þorgerðar-
tónleikum kl. 16, en þeir eru haldn-
ir ár hvert til styrktar minningar-
sjóði Þorgerðar Eiríksdóttur.
Nemendur af framhaldsstigum
skólans koma þar fram og leika
fagra tóna fyrir gesti.
Frítt er inn á alla tónleikana en
tekið er á móti frjálsum framlög-
um í Þorgerðarsjóð allan daginn.
- vþ
Dagur tónlistarskólanna
UNGIR TÓNLISTARMENN Nemendur við
Tónlistarskólann á Akureyri.
Hársnyrtinemar
athugið
Staða laus á
Rauðhettu og Úlfi num
Upplýsingar í síma 511-4004