Fréttablaðið - 21.02.2008, Qupperneq 4
4 21. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
129,6093
66,91 67,23
130,14 130,78
98,36 98,9
13,156 13,232
112,456 12,53
10,511 10,547
0,6197 0,6233
105,73 106,37
Komdu núna í Bílaland B&L og kynntu þér kostina
Glæsilegt úrval lúxusbílaLÚXUS
Opið virka daga frá kl. 10 til 18
og á laugardögum frá kl. 12 til 16
Bílaland B&L, Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík
575 1230 - luxusbilar@bilaland.is. 575 1230
L.R RANGE ROVER V8 diesel
Nýskr: 12/2006, 3600cc, 5 dyra,
Sjálfskiptur, Grár, Ekinn 25.000 þ.
Verð: 11.100.000
ALLIR INNFLUTTIR
OG ÞJÓNUSTAÐIR
AF UMBOÐI
LÖGREGLUMÁL Fyrir liggur að Ann-
þóri Kristjáni Karlssyni fylgdu
ekki nauðsynlegar upplýsingar um
tilhögun og framkvæmd vistunar,
þegar hann strauk af lögreglustöð-
inni við Hverfisgötu 15. febrúar.
Hins vegar eru ekki uppi grun-
semdir um að starfsmenn embætt-
isins hafi komið að málinu með
refsiverðum hætti.
Þetta kemur fram í tilkynningu
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu um gang rannsóknar á stroki
gæsluvarðhaldsfangans.
Þegar liggur fyrir að móttaka og
vistun fangans sem og eftirlit með
honum var ekki í samræmi við
gildandi verklagsreglur.
Þegar niðurstöður rannsóknar
embættisins á því hvað úrskeiðis
fór liggja fyrir verður metið hvern-
ig unnt sé að koma í veg fyrir að
slíkt gerist á ný og viðeigandi
úrbætur gerðar á framkvæmd og
skipulagi þessara mála hjá emb-
ættinu. Jafnframt mun lögreglu-
stjóri upplýsa dóms- og kirkju-
málaráðuneytið um niðurstöður
athugunar embættisins og hvernig
brugðist verði við því sem aflaga
fór í meðferð embættisins á gæslu-
varðhaldsfanganum.
Af þessu tilefni hefur lögreglu-
stjóri einnig ákveðið að flýta fyrir-
hugaðri úttekt innri endurskoðun-
ar embættisins á starfsemi
fangamóttöku LRH. - jss
LÖGREGLUSTÖÐIN Fyrstu niðurstöður á
rannsókn á stroki Annþórs liggja fyrir.
Annþóri Kristjánssyni fylgdu ekki nauðsynlegar upplýsingar þegar hann strauk:
Verklagsreglur voru brotnar
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
6°
8°
4°
5°
6°
12°
13°
9
7°
8°
17°
15°
10°
11°
21°
1°
24°
12°
LAUGARDAGURÁ MORGUN
5-10 m/s en hvassara
allra syðst.
-3
0
5-15 m/s, hvassast
sunnan til
-4
41
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
RÓLEGHEIT Veðrið
í dag einkennist
af hægum vindi
um mest allt land
og éljum, eink-
um vestan til og
sunnan. Á morgun
andar hann vestri
með snjókomu eða
slyddu sunnan til
og éljum vestan til.
Á laugardag verður
lægð að mjaka sér
til austurs með
suðurströndinni og
henni fylgir úrkoma
um mest allt land.
-5
-3
-3
-3
0
2
0
2
0
-2 -5
3
1
1
5
2
3
2
13
2 3
-5 -5
-3
0
0
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsráð-
herra hefur orðið við tilmælum
Hafrannsóknastofnunar um að
stöðva loðnuveiðar og tekur það
bann gildi í hádeginu í dag.
Útgerðarmenn í Vestmannaeyj-
um og á Austurlandi segja fyrir-
tæki verða af milljarðatekjum
vegna þessa.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðs-
stjóri nytjastofnasviðs Hafrann-
sóknastofnunar, segir að á grund-
velli mælinga undanfarið sé mat
veiðistofns loðnu á bilinu 200 til
270 þúsund tonn. Stærð stofnsins
sé því langt undir því sem gild-
andi aflaregla geri ráð fyrir að
skilið sé eftir til hrygningar sem
eru 400 þúsund tonn. Hann ítrek-
ar þó að fylgst verði með miðum
áfram.
Verðum að skoða reksturinn
„Við verðum af um tveimur og
hálfum milljarði af rekstrartekj-
um okkar ef fram fer sem horfir
og það gefur auga leið að við verð-
um nú að skoða okkar rekstur og
leita svo leiða til að skera niður
kostnað,“ segir Gunnþór Ingva-
son, framkvæmdastjóri Síldar-
vinnslunnar. Hann segir ekki
tímabært að tala um uppsagnir á
þessu stígi. Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson, framkvæmda-
stjóri Vinnslustöðvarinnar, segir
einnig að ekki sé tímabært að
huga að uppsögnum nú en segir
þó ljóst að þetta muni þýða mikla
tekjuskerðingu fyrir starfsfólk
sitt.
„Ætli þetta þýði ekki milljarð í
minni launatekjur fyrir Eyja-
menn,“ segir Sigurgeir Brynjar.
Hann telur að útgerðarfyrirtækin
í Vestmannaeyjum verði af um
þriggja milljarða rekstrartekjum
vegna veiðibannsins.
Gunnþór segir vissulega þungt
hljóðið í Austfirðingum. „Það eru
um 400 til 500 manns hér fyrir
austan sem hafa lifibrauð sitt af
þessu svo þetta hefur gríðarleg
áhrif,“ segir hann.
450 tonn í einu kasti
Í fyrrinótt var mikil veiði á loðnu-
miðum og segjast margir sjó-
menn undrandi á niðurstöðum
Hafrannsóknastofnunar. „Við
fengum 450 tonn í einu kasti og
við erum með grunnnót,“ segir
Magnús Jónasson, stýrimaður á
Sighvati Bjarnasyni VE.
„Við sáum þarna mikla loðnu og
aðrir bátar voru að fá vel. Það er
lítið gert úr fiskifræði sjómanna
ef einungis á að hlusta á fræðing-
ana sem einhverra hluta vegna
finna ekkert.“
Alvarlegt áfall
Einar K. Guðfinnsson segir þetta
vera alvarlegt áfall en hins vegar
að allt hafi verið reynt sem hægt
er til að mæla stærð loðnustofns-
ins. „Við erum búnir að mæla um
270 þúsund og í fremstu göngunni
voru um 40 til 50 þúsund tonn og
úr þeirri göngu hafa menn verið
að veiða þannig að það er ekkert
óeðlilegt að menn sjái töluvert
stórar torfur. Það breytir þó engu
um heildarniðurstöðuna.“
Hann segir að ekki hafi gefist
ráðrúm til að huga að því hvort að
farið verði í einhverjar mótvæg-
isaðgerðir fyrir þá sem fyrir
áfallinu verða. jse@frettabladid.is
Bann við veiðum á
loðnu gengur í gildi
Veiðistöðvun á loðnu tekur gildi á hádegi í dag. Útgerðir á landsbyggðinni verða
af milljörðum. Sjómenn eru ósáttir við niðurstöður Hafrannsóknastofnunar.
LOÐNUVEIÐAR Vel bar í veiði hjá áhöfn á Sighvati Bjarnasyni VE í fyrrinótt en nú
verður bið á því að loðnu verður dælt í lest þar. Sjómenn undrast niðurstöður Haf-
rannsóknastofnunar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
LÖGREGLUMÁL Sérsveit Ríkislög-
reglustjóra æfði í Nauthólsvík-
inni í gær með Landhelgisgæsl-
unni umgengni við þyrlur.
Var um reglubundna æfingu að
ræða, meðal annars sig úr
þyrlunni. „Það er kallað hraðsig
eða „fastrope“. Þá er verið að
fara úr þyrlunni á sem skemmst-
um tíma niður á ákveðinn stað,“
segir Guðmundur Ómar Þráins-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn
hjá Ríkislögreglustjóra.
„Í dag voru slysahjálparmenn-
irnir okkar, sem eru sérfræðingar
í slysahjálp, einnig að búa um
mann í körfu og hífa hana upp í
þyrluna. Það er nauðsynlegt að
menn kunni þetta alveg upp á
tíu,“ segir Guðmundur. - ovd
Sérsveit Ríkislögreglustjóra:
Æfðu hraðsig
í Nauthólsvík
FRÁ ÆFINGUNNI Samvinna sérsveitar-
manna og þyrluáhafnar þarf að vera góð
á ögurstundu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ölvunarakstur í Hveragerði
Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu
um að bifreið hefði verið ekið á staur
í Hveragerði um fimm leytið á þriðju-
daginn. Ökumanninn sakaði ekki en
hann er grunaður um ölvunarakstur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur
karlmaður hefur verið dæmdur í
45 daga skilorðsbundið fangelsi
fyrir að reyna að hrækja í andlit
lögreglumanns, hóta honum og
starfsfélaga hans lífláti og hóta
að vinna fjölskyldum þeirra
mein. Atvikið átti sér stað í
lögreglubifreið.
Maðurinn játaði brot sitt fyrir
dómi. Hann lýsti yfir iðrun á
athæfi sínu.
Í dómsniðurstöðu segir að hann
virðist hafa tekið sér tak og
breytt líferni sínu. Í ljósi þess og
ungs aldurs hans ákvað dómurinn
að skilorðsbinda refsinguna. - jss
Tvítugur maður dæmdur:
Hrækti og hót-
aði tveim lífláti
PAKISTAN, AP Þegar flestöll
atkvæði höfðu verið talin í
þingkosningunum í Pakistan í
gær var ljóst að tveir stærstu
stjórnarandstöðuflokkarnir fengu
samanlagt nógu mörg þingsæti til
að mynda meirihluta. Stjórnar-
flokkur Pervez Musharraf forseta
beið afhroð og fékk þriðju flest
atkvæði.
Viðræður um meirihlutamynd-
un eru þegar hafnar og munu
leiðtogarnir, Nawas Sharif og Asif
Ali Zardari, hittast í dag. - sdg
Talningu atkvæða nær lokið:
Stjórnarmyndun
hafin í Pakistan
SIGRI FAGNAÐ Flokkur fyrrverandi for-
sætisráðherrans Benazir Bhutto, sem var
myrt í desember, fékk flest atkvæði.
NORDICPHOTOS/AFP
GENGIÐ 20.02.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
HEILBRIGÐISMÁL Líffæragjafakort
lýsa einungis almennum vilja
þess sem hefur undirritað kortið.
Slíkt getur gert eftirlifandi
ættingjum hægara um vik að taka
ákvörðun á örlagastundu, en
lagalegt gildi þeirra er ekki
bindandi á nokkurn hátt.
Kom þetta fram í svari
heilbrigðisráðherra við fyrir-
spurn um líffæragjöf á Alþingi í
gær. Í máli ráðherra kom fram að
fram til síðustu áramóta hefðu 10
fengið 11 hjartaígræðslur, 24
fengið 26 lifrarígræðslur og 151
fengið 169 nýrnaígræðslur, þar af
96 frá lifandi gjöfum en 73 frá
látnum gjöfum. - ovd
Auðvelda ákvörðun ættingja:
Kortin lýsa bara
almennum vilja