Fréttablaðið - 21.02.2008, Page 48

Fréttablaðið - 21.02.2008, Page 48
● fréttablaðið ● hafnarfjörður 21. FEBRÚAR 2008 FIMMTUDAGUR12 Híbýlaprýði Sívertsens-húss verður viðfangsefni Arndísar Árnadóttur hönnunarsagn- fræðings á fyrirlestri sem hún heldur í Pakkhúsinu í kvöld. Skatthol, enskir stólar og marglit gólfteppi, er yfirskrift fyrirlestrar sem Arndís heldur klukkan 20.00 í Pakkhúsinu í Hafnarfirði í kvöld. „Ég ætla fyrst og fremst að skoða húsakynni þeirra Rannveigar og Bjarna Sívertsen á vissu tímabili eða frá 1810 til 1825,“ segir Arn- dís en til er skiptagerð frá árinu 1825 þar sem innbúi þeirra hjóna er lýst, og við það styðst Arndís í umfjöllun sinni. Bjarni Sívertsen var nefndur Bjarni riddari eftir að hafa feng- ið aðalstign hjá danska kónginum. Hann var brautryðjandi á Íslandi í innlendri verslun og útgerð og hefur verið nefndur faðir Hafnar- fjarðar. Bjarni lét reisa íbúðarhús fyrir sig 1803-1805 sem í dag kall- ast Sívertsens-hús og er nú hluti Byggðasafns Hafnarfjarðar. Arndís heldur fyrirlesturinn í Pakkhúsinu en mun síðan ganga með gestum yfir í Sívertsens-hús til að skoða þá muni sem þar er að finna. „Ég ætla að taka fyrir ein- stök húsgögn, skoða þau og setja í samhengi við viðteknar venjur í híbýlaháttum og efnismenningu samtímans og hvernig hún breyt- ist. Þetta var óvenjulegt hús á þessum tíma þegar flestir bjuggu í torfbæjum með mjög einfalda innanstokksmuni og gaman að velta fyrir sér hvaðan fyrirmynd- irnar komu miðað við það sem við búum við í dag,“ segir Arndís sem hefur mjög gaman af því að geta vakið athygli á húsgögnum sem safngripum. Lítið hafi verið fjall- að um það og engin úttekt gerð á átjándu og nítjándu aldar hús- gögnum í íslenskum söfnum þótt þau sé að finna mjög víða. Af þeim húsgögnum sem minnst er á í skiptagerðinni frá 1825 eru nokkur enn í húsinu. „Skattholið er enn í húsinu eftir því sem ég best veit en einhver vafi er um ensku stólana. Þá eru þarna einnig munir sem hafa nýlega borist í húsið, yf- irleitt enskir en frá sama tíma,“ segir Arndís og finnst skemmti- legt að bera saman hvort einhver munur er á dönskum og enskum húsgögnum. Arndís er nú í óða önn að skrifa doktorsritgerð um hönnun og hí- býlahætti á tuttugustu öld á Ís- landi. „Þessi fyrirlestur er því svolítill útúrdúr en þetta tengist því að ég er að skoða mikið hvað- an fyrirmyndirnar koma að því sem smiðirnir smíða og er líka að skoða hvað er til af íslenskum snikkaraverkum í söfnum,“ út- skýrir Arndís og bendir á að í Sí- vertsens-húsi sé eitthvað af ís- lenskum smíðisgripum. Litið inn til Bjarna og Rannveigar Hafnarfjarðarbær veitir árlega húsverndarstyrki til endurgerð- ar eða viðgerða á húsnæði eða öðrum mannvirkjum sem sérstakt varðveislugildi hafa af listrænum eða menningarsögulegum ástæð- um. Þetta hefur verið gert frá árinu 2002. Áhersla er lögð á að styrkja framkvæmdir sem færa ytra byrði húsa svo sem glugga og klæðningu til upprunalegs horfs. Umsóknarfrestur er til 25. febrú- ar og þurfa umsækjendur að skila styrk umsókn ásamt greinargóð- um upplýsingum um áætlaðar framkvæmdir, kostnaðaráætlun og ljósmynd. Nánar á www.hafnarfjordur.is Styrkir til húsverndar Mörg falleg og gömul hús er að finna í Hafnarfirði. ● HÁDEGISTÓNLEIKAR Í HAFNARBORG Hádegistónleikar eru haldnir í Hafnarborg fyrsta fimmtudag hvers mánaðar. Hefur þessari hefð verið haldið á lofti frá árinu 2003 en listrænn stjórnandi þeirra frá upphafi hefur verið Antonía Hevesi píanóleikari. Næstu hádegistónleikar verða fimmtudaginn 6. mars klukkan 12.00. Þar mun Árndís Halla Ásgeirs- dóttir söngkona hefja upp raust sína. Arndís lauk 8. stigs prófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 1994. Eftir það lá leiðin til Berlínar, þar sem hún stundaði framhaldsnám. Arndís Halla Ásgeirsdóttir söngkona. Arndís Árnadóttir hönnunarsagnfræðingur heldur fyrirlestur um híbýlahætti í Sívertsens-húsi í byrjun nítjándu aldar í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Teg 2106 Teg 2064Teg 2083 Nýjar húsgagnasendingar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.