Fréttablaðið - 21.02.2008, Page 51

Fréttablaðið - 21.02.2008, Page 51
GLÆSILEIKI VIÐ SJÁVARSÍÐUNA Svalir 6,8 fm Herb. 12,1 fm Stofa/eldhús 63,7 fm Bað 7,2fm Þvottur 3,3 fm Anddyri 4,8 fm Föt 4,6 fm Svalir 13,6 fm Herb. 10,9 fm Dæmi um 3ja herbergja íbúð Þessir hlutir fylgja ekki með íbúð LÓÐIN Sameign og lóð eru fullfrágengin með snjóbræðslukerfi í bílageymslurampa og hellulögðum göngustígum og bílastæðum. Brunaviðvörunarkerfi er í sameign og íbúðum og lyklalaust aðgengi að stigahúsum. Í bílageymsluhúsi er aðstaða til bílaþvotta og á þaki bílakjallarans er sameiginlegur garður með leiksvæði, garðbekkjum og púttvelli. NÝTÍSKULEG FJÖLBÝLISHÚS Norðurbakki 15–21 eru fjögur stórglæsileg fjölbýlishús, hönnuð af arkitektastofunni Batteríinu. Húsin eru við sjávarsíðuna á móti suðri og í göngufæri við alla þjónustu í Hafnarfirði. Frágangur er mjög vandaður. Íbúðum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum en baðherbergi og þvottahúsgólf eru flísalögð. Húsin eru einangruð að utan, klædd með álklæðningu og að hluta með harðvið. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Húsin þarfnast því lágmarksviðhalds. Húsin eru á fjórum og fimm hæðum með sameiginlegri bílageymslu. Alls eru átta stigahús með tveimur eða þremur íbúðum á hverri hæð um hverja lyftu. • Viðhaldslítið • Stór og björt rými • Sérstaklega er hugað að hljóðeinangrun • Gólfhiti • Gluggar ná niður í gólf • Góð lofthæð • Tvennar svalir með flestum íbúðum • Einungis tvær eða þrjár íbúðir á hæð um hverja lyftu • Mynddyrasími • Snjóbræðslukerfi í göngustígum • Loftskiptakerfi • Brunaviðvörunarkerfi • Færanlegir vindskermar á svölum • Nútímalegar innréttingar með eldunareyju • Íbúðir eru afhentar fullbúnar með gólfefnum Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200www.iav.is FRAMSÝNT FYRIRTÆKI Á TRAUSTUM GRUNNI ÍAV byggja á rúmlega hálfrar aldar reynslu og leggja metnað sinn í að gera vönduð hús og íbúðir sem standast ítrustu kröfur. ÍAV er traust fyrirtæki sem hefur byggt um 2.000 íbúðir hérlendis. ÍAV eru eitt elsta og reynslumesta fyrirtæki á landinu á öllum sviðum mannvirkjagerðar, bæði hvað varðar framkvæmdir og þróun nýrra leiða á fasteignamarkaði. Íbúðir og hús ÍAV eru ekki bara traust heldur einatt nútímaleg og vel hönnuð. ÍAV hafa í gegnum árin fengið fjölmargar viðurkenningar fyrir hönnun og frágang.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.