Fréttablaðið - 21.02.2008, Síða 78
50 21. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
FÓLK MEÐ ÓTRÚLEGA KRAFTA
SEM GETA BREYTT ÖLLU
KALLAST STÖKKVARAR!
NÝTT Í BÍÓ!NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
12
14
7
7
16
14
7
JUMPER kl. 5.50 - 8 - 10
RAMBO kl. 10
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.50 ÍSLENSKT TAL
BRÚÐGUMINN kl. 8
12
16
7
12
16
14
16
JUMPER kl.6 - 8 - 10
BEFORE THE DEVIL KNOWS kl.5.30 - 8 - 10.20
MEET THE SPARTANS kl.6 - 8 -10
WALK HARD kl.6 - 8
THE ALIEN VS PREDATOR kl. 10.10
JUMPER kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
JUMPERLÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
MEET THE SPARTANS kl. 4 - 6 - 10.30
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 3.30 - 5.40 ÍSLENSKT TAL
CLOVERFIELD kl. 8 - 10
BRÚÐGUMINN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
INTO THE WILD kl. 6 - 9
RAMBO kl. 8 - 10
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.30 ÍSLENSKT TAL
ATONEMENT kl. 5.30 - 8 - 10.30
BRÚÐGUMINN kl. 5.50 - 8 - 10.10
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
EITTHVAÐ SKELFILEGT
ER Á SVEIMI!
FRÁBÆR SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA
“BOURNE IDENTITY OG
”MR. & MRS SMITH”
SANNIR SPARTVERJAR
FRIÐÞÆING
STÓRKOSTLEG MYND Í LEIKSTJÓRN SEAN PENN.
S.V. - MBL.
B.B - 24 STUNDIR
HAMINGJAN
FELST EKKI Í
EFNISLEGUM
GÆÐUM.
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 16
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 8 - 10:30 VIP
MR. MAGORIUMS WO... kl. 6 L
P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10:30 L
SWEENEY TODD kl. 8 - 10:30 16
UNTRACEABLE kl. 8 - 10:30 16
UNTRACEABLE kl. 5:30 VIP
CHARLIE WILSON´S WAR kl. 10:30 12
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8 7
BÝFLUGUMYNDIN M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L
JUMPER kl. 6 - 8 - 10 12
MR. MAGORIUMS WON... kl. 6 - 8 L
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl.10 16
P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10:30 L
Ó S K A R S ® T I L N E F N I N G A R
MEÐAL ANNARS
B E S T A M Y N D I N
H.J. MBL
UNTRACEABLE kl. 8 - 10:10 16
WONDER EMPORIUM kl. 8 L
CLOVERFIELD kl. 10:10 14
BRÚÐGUMINN Lau. og sun. 7
JUMPER kl. 8 - 10 12
MEET THE SPARTANS kl. 8 7
SWEENEY TODD kl. 10 16
MR. MAGORIUMS... kl. 8 L
UNTRACEBLE kl. 10 16
P.S. I LOVE YOU kl. 8 L
NO COUNTRY FOR... kl. 10:30 16
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
JUMPER kl. 8 og 10 12
LOVEWRECKED kl. 6 og 10 L
RAMBO kl. 6, 8 og 10.30-P 16
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.30 ÍSL TAL L
2
- 24. Stundir
- V.J.V., Topp5.is
Jumper er vísindaskáldsaga og
hálfgerð ofurhetjumynd um strák
einn, sem uppgötvar að hann býr
yfir fjarflutningi og getur flakkað
á milli heimshorna á augabragði.
Lífið er gott þegar auðvelt er að
stökkva inn í bankageymslur og
hrifsa peningabúnt, en gamanið
kárnar þegar hann finnur sig í
ævafornu stríði á milli sinna líka
og veiðimanna sem vilja koma
honum fyrir kattarnef.
Aðstandendur Jumper eru ágæt-
ir, en leikstjóri er Doug Liman,
sem á m.a. að baki The Bourne
Identity og Mr. & Mrs. Smith, og
meðal handritshöfunda eru David
S. Goyer (Batman Begins) og Jim
Uhls (Fight Club). En það dugar
ekki til því Jumper mætti segja
skólabókardæmi um hvernig
klúðra skuli góðri hugmynd.
Myndin mistekst á nánast öllum
sviðum og er flöt allan liðlangan
tímann með lélegri og illa unninni
sögu og persónum, vondum hasar
og slæmum tæknibrellum.
Þá er ónefndur slæmur leikur,
sem Jumper þjáist mikið af.
Stjörnustríðsleikarinn Hayden
Christensen er mjög stífur og líf-
laus, líkt og honum er lagið, og
sömu sögu má segja af Rachel Bil-
son, sem þekktust er úr The O.C.-
þáttunum. Jamie Bell úr Billy
Elliott reynist þó fínn og sömu-
leiðis hvíthærður Samuel L. Jack-
son, þótt sá virðist aðeins í þessu
fyrir launaseðilinn.
Loftur Ingi Bjarnason - Topp5.is
Marflöt vísindaskáldsaga
KVIKMYNDIR
Jumper
Leikstjóri: Doug Liman. Aðalhlut-
verk: Hayden Christensen, Rachel
Bilson, Jamie Bell og Samuel L.
Jackson.
★★
Jumper reynir hvað hún getur til að
virðast bæði spennandi og stórbrotin
og upphafið að nýjum kvikmynda-
bálki. Hún missir marks svo um
munar og útkoman er arfaslæm
mynd sem reynist hvorki fugl né
fiskur.
Bandarísku sveitadurgarn-
ir í Hayseed Dixie halda
tónleika á Nasa á sunnu-
dagskvöld. Freyr Bjarnason
spjallaði við aðaldurginn
í Nashville, John Wheeler,
um bjórdrykkju, íslenskt
kvenfólk og Sykurmolana.
„Ég veit ekki mikið um Ísland og
þess vegna hlakka ég mikið til. Ég
hef aldrei komið þangað áður og
því ákváðum við að hefja túrinn
okkar þar,“ segir John Wheeler
með hnausþykkum suðurríkja-
hreim. „Við verðum því með nýja
tónleikadagskrá, þannig að við
fáum að sjá hvort þetta virkar
fyrir framan fólk sem hefur aldrei
séð okkur áður.“
AC/DC eftir 29 bjóra
Hayseed Dixie hóf störf fyrir um
átta árum og hefur á þessum tíma
gefið út fimm plötur og haldið yfir
þrjú hundruð tónleika um allan
heim. Á lagalista sveitarinnar eru
slagarar á borð við Black Dog,
Back In Black, Walk This Way,
Strawberry Fields Forever og I
Don´t Feel Like Dancin´. „Hljóm-
sveitin varð til þegar við ákváðum
að hittast og spila nokkur lög og
drekka bjór á veröndinni, það er
heilagur sannleikur,“ segir Wheel-
er. „Í kringum bjór númer 29
fórum við að spila lög með AC/DC
en við ólumst upp við að spila á
banjó og mandólín og svoleiðis
hljóðfæri. Okkur fannst þetta
hljóma vel og fannst gaman að
spila þetta á meðan við drukkum
þannig við hugsuðum að kannski
hefðu aðrir drykkjumenn gaman
af þessu líka. Þá kom það í ljós að
það er mikið af drykkjufólki þarna
úti,“ segir hann og hlær. „Við feng-
um tilboð frá plötufyrirtækjum og
ákváðum að halda tónleika, aðal-
lega vegna þess að við fengum
bjórinn okkar ókeypis. Hann getur
nefnilega verið mjög dýr og ég hef
heyrt að íslenski bjórinn sé sá dýr-
asti í heimi. Sem betur fer erum
við með hann á óskalistanum
okkar, þannig að við fáum hann
ókeypis.“
Einn stór mökunardans
Wheeler ætlar að reyna að skoða
sig um á meðan hann dvelur hér á
landi. „Ég hef heyrt að þarna séu
hverir sem gufa rýkur úr,“ segir
hann og hlakkar einnig mikið til
að sjá íslensku fjöllin. Hann segir
að mikilvægt sé að allar stelpur
hristi rassinn eins og þær eigi
lífið að leysa á tónleikunum á
Nasa. „Þá fer allt að hristast og
þannig getum við skipst á gena-
efnum, farið burt af þessari plá-
netu og þróast áfram. Allt sem
við gerum er í rauninni einn stór
mökunardans. Hluti af ástæðunni
fyrir komu okkar til Íslands er
einmitt sú að við erum í herferð
fyrir börn heimsins. Við viljum
sjá til þess að þið verðið ekki of
innræktuð. Við viljum að þið hafið
fjölbreytt gen enda höfum við
mjög fjölbreytta genauppbygg-
ingu. Við erum alveg til í að deila
þeim með útvöldum stelpum frá
Íslandi. Ég hef mjög góð gen og
fyrst ég verð þarna í þrjár nætur
þarf ég að dreifa þeim með á bil-
inu sex til tíu stelpum,“ segir
hann og hlær dátt.
Hrifinn af Sykurmolunum
Spurður hvort sveitin ætli ekki að
gera eigin útgáfu af Bjarkarlagi
segist Wheeler ekki hafa hlustað
mikið á sólóplöturnar hennar. „En
ég fíla Sykurmolana og Life´s Too
Good. Ég hef gaman af Motorc-
rash og Deus. Kannski getum við
spilað Delicious Demon því það
er með rétta taktinn fyrir okkur.“
Hann lofar skemmtilegum tón-
leikum á Nasa þar einfaldleikinn
verður í fyrirrúmi. „Við erum
bara fjórir gaurar með hljóðfæri
og tvo kassa af bjór fyrir aftan
okkur.“ Svo mörg voru þau orð.
Sveitadurgar með bjórvömb
HAYESEED DIXIE Sveitadurgarnir í Hayseed Dixie ætla að gera allt vitlaust á Nasa á
sunnudagskvöld.
Vinsælustu sálarlög síðustu ára-
tuga verða flutt á Sálarmessu
söngdeildar Tónlistarskóla
FÍH sem verður frumsýnd í
kvöld. Tónlistarstjóri er Sam-
úel Jón Samúelsson og á
meðal flytjenda eru Bryndís
Jakobsdóttir, Lísa úr hljóm-
sveitinni Ízafold og Idol-
stjörnurnar Ína og
Bríet Sunna. Sungin
verða lög þekktra
flytjenda á borð við
Arethu Franklin,
Al Green, The
Supremes, The
Temptations og
Four Tops.
„Prufurnar
voru í október og
það hefur verið
undirbúningur í
allan vetur,“ segir
Lísa Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri
Sálarmessu. „Það
hafa verið stanslausar
æfingar allan janúarmán-
uð og allan febrúar. Þetta
er allt að smella saman
og árangur erfiðisins er
að koma í ljós.“
Sálarmessan er hluti
af kennslu í atburða-
stjórnun við FÍH sem
trommarinn Pétur
Grétarsson annast.
Mikið hefur verið
lagt upp úr bún-
ingum og er
heildarútlit sýn-
ingarinnar til
fyrirmyndar.
„Þetta er sýn-
ing nemenda,
fyrir nemendur
og alla aðra,“ segir Lísa og hvetur
alla til að mæta í Tónlistarskóla
FÍH og sjá skemmtilega sýningu.
Miðaverð er 1.500 krónur og
verða sýningarnar fjórar talsins.
Miðasala fer fram á midi.is. Nán-
ari upplýsingar má finna á síðunni
nffih.com.
- fb
Syngja vinsælustu sálarlögin
SAMÚEL JÓN SAMÚELSSON Samúel Jón
er tónlistarstjóri Sálarmessu sem verður
frumsýnd í kvöld.
BRYNDÍS JAKOBS-
DÓTTIR Bryndís er
ein þeirra sem syngja
vinsælustu sálarlögin
á sýningunni.