Fréttablaðið - 21.02.2008, Blaðsíða 80
52 21. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR Sjö íþróttakonur fengu í
gær úthlutað úr Afrekskvenna-
sjóði Glitnis og ÍSÍ en sjóðurinn
hefur það að markmiði að styðja
við bakið á afrekskonum í íþrótt-
um og gera þeim betur kleift að
stunda sína íþrótt og ná árangri.
Að þessu sinni voru tvær og hálf
milljón króna til úthlutunar.
Þær sem fengu styrk að þessu
sinni eru: Ásdís Hjálmsdóttir
frjálsíþróttakona sem stefnir
ótrauð að þátttöku á ÓL í Peking.
Embla Ágústsdóttir, sundkona úr
íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík,
sem á Íslandsmetið í öllum þeim
sundgreinum sem hún keppir í.
Erla Dögg Haraldsdóttir sund-
kona sem hefur verið í stöðugri
framför og keppir að því mark-
miði að tryggja þátttökurétt á ÓL
síðar á árinu.
Ragnheiður Ragnarsdóttir sund-
kona, sem er eina sundkonan sem
tryggt hefur sér þátttökurétt á ÓL
í sumar.
Sigrún Brá Sverrisdóttir sund-
kona sem hefur á undanförnum
árum sýnt stöðugar framfarir og á
nú þrjú gildandi Íslandsmet í
kvennaflokki og 16 í unglinga-
flokkum. Silja Úlfarsdóttir frjálsí-
þróttakona sem er ein af okkar
bestu frjálsíþróttakonum og er
nálægt lágmörkum fyrir ÓL í Pek-
ing í 400 metra grindahlaupi.
Sonja Sigurðardóttir sundkona,
sem hefur nú þegar tryggt sér
þátttökurétt í 50 metra baksundi á
ÓL fatlaðra sem keppir á opna
Breska meistaramótinu.
Alls bárust 97 umsóknir í
Afrekskvennasjóðinn að þessu
sinni og nam heildarfjárhæð
þeirra um 150 milljónum króna.
Næsta úthlutun úr sjóðnum verð-
ur í september 2008.
- óój
Úthlutað var í þriðja sinn úr Afrekskvennasjóði Glitnis og ÍSÍ í gær en alls bárust 97 umsóknir:
Fimm sundkonur meðal sjö styrkþega
EIN AF SJÖ Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona úr KR fékk styrk.Hún sést hér með
Svöfu Grönfeldt, formanni sjóðsstjórnar. FRÉTTAABLAÐIÐ/ARNÞÓR
> Fjárfestir fjármagnaði kaup Sverris
Sænska félagið GIF Sundsvall upplýsti á heimasíðu sinni
í gær að kaupin á Sverri Garðarssyni hefðu að mestu
verið fjármögnuð af fjárfestingafyrirtækinu
AB Norrlandsinvest en fyrirtækið ku sér-
hæfa sig í áhættufjárfestingum. Kaupin á
Sverri eru ein þau stærstu í sögu félagsins
en Sverrir kostaði félagið á bilinu 20-30
milljónir króna. Sverrir mun væntanlega
skrifa undir samninginn við félagið
ytra í dag en hann samdi til ársins
2010.
Kristján Örn Sigurðsson og félagar í Íslendingaliðinu Brann
mæta fullir sjálfstrausts í seinni leik sinn gegn
Everton í Evrópukeppni félagsliða sem fram fer á
Goodison Park í Liverpool í kvöld eftir naumt tap í
fyrri leik liðanna í Björgvin.
„Okkur fannst úrslitin úr fyrri leiknum í Björgvin, þar sem
Everton vann 0-2, ekki gefa rétta mynd af því hvernig leikur-
inn spilaðist. Við munum bara nota það til að peppa okkur
upp í undirbúningnum fyrir seinni leikinn og við stefnum
klárlega á að ná betri úrslitum þá. Við höfum náttúrlega engu
að tapa og ætlum bara að hafa gaman af þessu og getum
farið afslappaðir inn í leikinn og þá rúllar þetta vonandi
betur hjá okkur,“ sagði Kristján Örn sem var af öðrum
ólöstuðum besti maður Brann í fyrri leik liðanna og hlaut
sérstakt hrós frá Phil Neville, fyrirliða Everton, í viðtölum í
leikslok.
„Mér fannst við ná að loka vel á framherja Everton og
þeir voru ekki að skapa sér mörg færi í leiknum. Það
vantaði kannski örlítið upp á hjá okkur öllum og svona
öflugir leikmenn eins og hjá Everton nýta flest þau færi
sem gefast og við verðum að vera á tánum,“ sagði Kristján
Örn sem ku vera undir smásjánni hjá mörgum félögum
í Evrópu samkvæmt norskum fjölmiðlum í gær en hann
er ekkert að velta sér upp úr því.
„Það er alltaf einhver orðrómur í gangi og maður veit
í sjálfu sér ekkert hvað er til í þessu. Ég einbeiti mér
bara að því að spila vel fyrir Brann og leikurinn gegn
svo sterku liði eins og Everton er náttúrlega frábært
tækifæri til að sýna hvað maður getur,“ sagði Kristján
Örn sem er samningsbundinn Brann til loka ársins
2009 og er spenntur fyrir komandi tímabili í Noregi.
„Það var mjög gott fyrir okkur að fá þessa leiki gegn
Everton á þessum tímapunkti þar sem tiltölulega er stutt
í tímabilið í Noregi og ég tel að við séum nú þegar komnir
með gott forskot á önnur lið í deildinni í undirbúningnum. Við
höfum titil að verja og ég hef mikla trú á því að næsta tímabil
í Noregi verði skemmtilegt,“ sagði Kristján Örn að lokum.
KRISTJÁN ÖRN SIGURÐSSON: VERÐUR Í ELDLÍNUNNI MEÐ BRANN GEGN EVERTON Í EVRÓPUKEPPNINNI Í KVÖLD
Frábært tækifæri til að sýna hvað maður getur
Meistaradeild Evrópu:
Lyon-Man. Utd 1-1
1-0 Karim Benzema (54.), 1-1 Carlos Tevez (87.)
Arsenal-AC Milan 0-0
Celtic-Barcelona 2-3
1-0 Jan Vennegor of Hesselink (16.), 1-1 Lionel
Messi (18.), 2-1 Barry Robson (38.), 2-2 Thierry
Henry (52.), 2-3 Lionel Messi (79.)
Fenerbahce-Sevilla 3-2
1-0 Mateja Kezman (17.), 1-1 Edu Dracena, sjm
(23.), 2-1 Diego Lugano (57.), 2-2 Julien Escude
(66.), 3-2 Semih Senturk (87.)
Iceland Express-deild kvk:
Haukar-Valur 61-67
Stig Hauka: Kristrún Sigurjónsdóttir 24, Kiera
Hardy 21, Unnur Jónsdóttir 7, Bára Hálfdánardótt-
ir 4, Telma Fjalarsdóttir 3, Ragna Brynjarsdóttir 2.
Stig Vals: Molly Peterman 21, Þórunn
Bjarnadóttir 15, Tinna Sigmundsdóttir 10, Signý
Hermannsdóttir 9 (15 fráköst), Hafdís Helgadóttir
7, Lovísa Guðmundsdóttir 5.
Grindavík-Keflavík 101-106
Stig Grindavíkur: Tiffany Roberson 44, Jovana
Lilja Stefánsdóttir 15, Joanna Skiba 11, Ingibjörg
Jakobsdóttir 11, Ólöf Helga Pálsdóttir 10, Petrún-
ella Skúladóttir 10.
Stig Keflavíkur: TaKesha Watson 36, Susanne
Biemer 18, Rannveig Randversdóttir 17, Margrét
Kara Sturludóttir 15, Pálína Gunnlaugsdóttir 12,
Birna Valgarðsdóttir 5, Ingibjörg Vilbergsdóttir 3.
KR-Fjölnir 74-64
Þýski handboltinn:
Kiel-Flensburg 30-28
Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir
Flensburg. Nikola Karabatic skoraði ellefu mörk
fyrir Kiel.
Wilhelmshaven-Lubbecke 23-19
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Þjóðverjinn Berti Vogts
hefur sagt starfi sínu sem
landsliðsþjálfari Nígeríu lausu
eftir ágreining við helsta
yfirmann knattspyrnumála í
landinu.
Nígeríu gekk ekki sem skyldi á
Afríkumótinu á dögunum og var
mikil óánægja með árangur
liðsins. Mikið gekk á sem endaði
með því að Vogts gekk út en hann
var samningsbundinn til ársins
2010. - hbg
Berti Vogts:
Hættur að
þjálfa Nígeríu
FÓTBOLTI Ítalska félagið Reggina,
sem Emil Hallfreðsson leikur
með, hefur lagt inn kvörtun til
ítalska knattspyrnusambandsins
sem og til knattspyrnusambands
Evrópu, UEFA, vegna hegðunar
Chelsea.
Hinn 15 ára gamli Vincenzo
Camilleri neitaði að spila með
félaginu á dögunum og kaus þess
í stað að fljúga til London þar sem
hann átti viðræður við Chelsea.
„Þetta finnst okkur vera til
marks um óhollustu og hreinlega
rangt,“ sagði Lillo Foti, forseti
Reggina sem er langt frá því að
vera sáttur með enska félagið.
Camilleri ætlaði að skrifa undir
samning við Reggina þegar hann
verður 16 ára en hefur nú ákveðið
að semja frekar við Chelsea.
Michel Platini, forseti UEFA,
segir þetta mál vera leiðinlegt en
hans mat er að leikmenn eigi að
vera hjá uppeldisfélögum sínum
þar til þeir verða 20-22 ára.
Þær hugmyndir hafa ekki fallið
í kramið hjá stóru félögunum í
Evrópu frekar en aðrar hugmynd-
ir forsetanna stóru - Platinis og
Sepp Blatters. - hbg
Ítalska liðið Reggina:
Kvartar sáran
yfir Chelsea
ROMAN ABRAMOVICH Vinnubrögð hans
félags féllu ekki í kramið hjá Reggina.
NORDICV PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Seinni fjórir leikirnir í
sextán liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu fóru fram í gær-
kvöldi. Barcelona vann góðan
sigur í Glasgow á Celtic, 2-3, og
Man. Utd náði góðu jafntefli gegn
Lyon, 1-1, í Frakklandi. Leikur
Arsenal og AC Milan á Emirates-
vellinum endaði með markalausu
jafntefli og Fenerbahce lagði
Sevilla á heimavelli, 3-2.
Celtic hefur komið skemmtilega
á óvart í Meistaradeildinni á þess-
ari leiktíð og þeir héldu upptekn-
um hætti í gær. Í tvígang tókst
skoska liðinu að komast yfir gegn
stórliði Barcelona en það dugði
ekki til því argentínski snillingur-
inn Lionel Messi sá til þess að Bar-
celona fór heim með sigur í far-
teskinu.
Hann jafnaði leikinn í 1-1 og
skoraði svo sigurmarkið. Í milli-
tíðinni hafði Thierry Henry jafnað
með frábæru marki. Eiður Smári
Guðjohnsen kom af bekknum er
tvær mínútur lifðu leiks.
Man. Utd lenti í vandræðum
gegn sterku liði Lyon í Frakklandi.
Hinn magnaði Karim Benzema
kom franska liðinu yfir með frá-
bæru skoti utan teigs en Argent-
ínumaðurinn Carlos Tevez kom
United til bjargar er hann skoraði
skömmu fyrir leikslok með skoti
af stuttu færi. Tevez hafði áður
komið inn á sem varamaður og
hressti verulega mikið upp á leik
enska liðsins sem er í fínni stöðu
fyrir síðari leikinn sem fram fer á
Old Trafford.
Arsenal á erfitt verkefni fyrir
höndum á San Siro eftir að liðinu
mistókst að leggja AC Milan á
heimavelli. Emmanuel Adebayor
fékk sannkallað dauðafæri á loka-
andartökum leiksins en á einhvern
undraverðan hátt tókst honum
ekki að skora. Arsenal væri í tals-
vert betri málum hefði Adebayor
tekist að skora.
Mikið fjör var síðan í Tyrklandi
þar sem Fenerbahce lagði Sevilla,
3-2. Spænska liðið kvartar þó
eflaust lítið yfir úrslitunum enda
eiga þeir heimaleikinn inni og fara
heim með tvö mikilvæg útivallar-
mörk í farteskinu. henry@frettabladid.is
Kvöld Argentínumannanna
Argentínumennirnir Carlos Tevez og Lionel Messi voru hetjur sinna liða í
Meistaradeildinni í gær. Tevez tryggði Man. Utd jafntefli gegn Lyon á útivelli og
Messi tryggði Barcelona sigur í skrautlegum leik í Glasgow.
DAUÐAFÆRI Adebayor klúðrar hér
algjöru dauðafæri í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
GULLDRENGUR Carlos Tevéz skoraði gríðarlega mikilvægt mark fyrir Man. Utd í gær.
Wayne Rooney fagnar hér markinu með honum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES